Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Flokkur

Andlát

Greinar

Innlent

Falleg kveðju­orð Begga til föður síns: „Fal­leg­asti eng­ill­inn á leið í sum­ar­landið“

Garðar Ingvar Sig­ur­geirs­son, sjó­maður og bíl­stjóri, er lát­inn. Garðar er faðir Guðbergs Garð­ars­sonar, eða Begga, eins og hann er alltaf kall­aður. Beggi skrifar honum afar fal­leg kveðju­orð: „Fal­leg­asti eng­ill­inn okkar er nú á leið í sum­ar­landið, elsku besti pabbi minn, ef það væru til fleiri svona englar í heim­inum þá væri heim­ur­inn betri. Svo fal­leg sál sem sást alltaf það...
Innlent

Gunnar Birg­is­son jarð­sung­inn í dag: „Eig­um eft­ir að sakna þinn­ar djúpu viskuradd­ar og hlát­urs“

„Það er gott að búa í Kópa­vogi,“ drundi í hon­um, eins og gera mundi úr tröll­un­um í fjöll­un­um og urðu óhagg­an­leg sann­mæli eft­ir því sem leið á tím­ann sem Gunn­ar hafði mest áhrif í bæn­um,“ skrifar Davíð í minn­ing­ar­orðum um Gunnar Inga Birg­is­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra og alþing­is­manns. Gunnar verður jarð­sung­inn frá Linda­kirkju í dag kl. 13. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Gunn­ars er...
Innlent

Útför John Snorra fer fram í dag: „Af­reks­maður, ein­stak­ur fjöl­skyldu­faðir og mann­vinur“

„Í þinni hinstu ferð fórstu á sama fjallið en í þetta skipti var það þín sál sem þú barst til himna. Ég sé mömmu, pabba og ömmu Krist­ínu taka á móti þér og hugga, þar sem þú varst ekki til­bú­inn að fara frá okk­ur“, skrifar Kristín Sig­ur­jóns­dóttir um bróður sinn, John Snorra Sig­ur­jóns­son en útför hans fer fram í Vídalíns­kirkju...
Innlent

Banaslys í Straum­firði á Mýrum: Ökumaður fjór­hjóls er lát­inn

Maðurinn sem slas­að­ist alvar­lega og þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar sótti á tólfta tím­anum í gær­dag er lát­inn. Þessu greinir MBL frá, en mað­ur­inn var á fjór­hjóli í nágrenni Borg­ar­ness, nánar til­tekið í Straum­firði á Mýrum, þegar slys varð. Lög­reglan á Vest­ur­landi greindi frá því í gær að slysið væri alvar­legt, en Ásmundur Kristinn Ásmunds­son, yfir­lögrelgu­þjónn á Vest­ur­landi sagði í við­tali við fjöl­miðla...
Innlent

Sólveig lést í morgun eftir slys í Hval­firði

Sólveig Katrín Hall­gríms­dóttir sem féll í skriðu í Hval­firði síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi í morgun. Sólveig var fædd 1977 og lætur eftir sig einn son. Fjöl­skylda Sól­veigar sendi frá sér til­kynn­ingu um and­lát Sól­veigar þar sem þetta kom fram. Hún var við­skipta­fræð­ingur frá Bifröst og mikil úti­vist­ar­kona með það að mark­miði að sækja heim alla fossa...
Innlent

Gunnar Birg­is­son varð bráð­kvaddur

Gunnar Birg­is­son varð bráð­kvaddur á heim­ili sínu í gær, 73 ára að aldri. Hann var fyrr­ver­andi alþing­is­maður og bæj­ar­stjóri. Gunnar var kvæntur Vigdísi Karls­dóttur sjúkra­liða en saman eiga þau dæt­urnar Auð­björgu og Agnesi sem fæddar eru 1968 og 1976. Gunnar starf­aði mikið innan Sjáf­stæð­is­flokks­ins og var áber­andi í störfum sínum. Gunnar fædd­ist þann 30. sept­em­ber 1947, for­eldrar hans voru Birgir...
Innlent

Séra Egill varð bráð­kvaddur

Séra Egill Hall­gríms­son var bráð­kvaddur á heim­ili sínu aðeins tæp­lega 66 ára að aldri. Andlát hans bar að þann 9. júní. Egill var sókn­ar­prestur í Skál­holti og naut virð­ingar og vin­sælda vegna starfa sinna. Hann fædd­ist í Reykja­vík 11. júní 1955. Faðir Egils var Hall­grímur Egilsson garð­yrkju­bóndi á Gríms­stöðum í Hvera­gerði og móðir hans var Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir. Egill lætur eftir...
Innlent

Halldór í Plötu­búð­inni er lát­inn

Hall­dór Ingi Andrés­son, sem rak um ára­bil Plötu­búð­ina á Lauga­vegi, lést 4. júní eft­ir bar­áttu við krabba­mein. Hall­dór var alla tíð mik­ill tón­list­ar­grúsk­ari. Árið 1975 fór hann að skrifa um tón­list, fyrst í Þjóðvilj­ann, síðan Vísi, Vik­una og í Morg­un­blaðið þar til hann gerð­ist út­gáfu­stjóri hjá Fálk­an­um 1981. Árið 1983 opn­aði Hall­dór Plötu­búð­ina á Lauga­veg­in­um en búð­ina rak hann um...
Innlent

Sveinn Eyjólfur drukkn­aði við Pat­reks­fjörð – Lætur eftir sig sjö börn

Sveinn Eyjólfur Tryggva­son, 48 ára gam­all, lést af slys­förum síð­ast­lið­inn sunnu­dag í botni Pat­reks­fjarðar. Hann lætur eftir sig eig­in­konu og sjö börn.Sveinn fædd­ist árið 1972 og var til heim­ilis að Sigtúni á Pat­reks­firði. Það var lög­reglan á Vest­fjörðum sem til­kynnti rétt í þessu um nafn hins látna þar sem fjöl­skyldu og aðstand­endum öllum er vottuð dýpsta samúð.Rannsókn á til­drögum slyss­ins...
Innlent

Sunna doktor í lyfja­fræði látin aðeins 35 ára: „Hjartað mitt græt­ur að hafa þig ekki leng­ur“

Sunna Jó­hanns­dótt­ir, doktor í lyfja­fræði, lést í faðmi fjöl­skyld­unnar 25. maí síð­ast­lið­inn eftir erf­iða og snarpa bar­áttu við hvít­blæði. Hún var aðeins 35 ára og lætur eftir sig eig­in­mann og tveggja ára gamla dóttur. Sunna fædd­ist í Reykja­vík 6. júlí 1985 og ólst að stærst­um hluta upp í Grafar­vogi. Hún stund­aði nám við Mennta­skól­ann við Sund. Síðar hóf Sunna nám...
Innlent

Ingi­björg er látin 28 ára með ófæddu barni: „Skyndi­lega kölluð frá okkur í blóma lífs­ins“

Ingi­björg Jóna Magn­ús­dóttir verður jarð­sungin í dag en hún var aðeins 28 ára gömul er hún lést á bráða­mót­töku eftir að hafa fengið skyndi­legan blóð­tappa í lungu. Hún var þá gengin 19 vikur með ófætt barn sem átti að fæð­ast í októ­ber. Blessuð sé minn­ing Ingi­bjargar og ófæddrar dóttur þeirra. Ingi­björg fædd­ist í Reykja­vík 16. júlí 1992. Hún lést á...
Innlent

Guðrún djákni er látin: „Við stöndum eftir með sorg í hjarta“

Guðrún Kristín Þórs­dóttir, djákni og leið­sögu­maður, var jarð­sungin í kyrr­þey síð­stlið­inn mið­viku­dag. Hún var 71 árs gömul er hún lést eftir erf­iða bar­áttu við ill­vígan sjúk­dóm. Hún lætur eftir sig eig­in­mann og þrjú börn. Guðrún fædd­ist í Reykja­vík 6. jan­úar 1950. Hún lauk sjúkra­liða­námi, BA-gráðu í sál­ar­fræði og diplóma­námi í djákna­fræðum. Guðrún lauk jafn­framt við­bót­ar­námi í sál­gæslu­fræðum, hug­rænni atferl­is­með­ferð, sál­grein­ingu...