Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Guðrún djákni er látin: „Við stöndum eftir með sorg í hjarta“

Guðrún djákni er látin: „Við stöndum eftir með sorg í hjarta“

Guðrún Kristín Þórs­dóttir, djákni og leið­sögu­maður, var jarð­sungin í kyrr­þey síð­stlið­inn mið­viku­dag. Hún var 71 árs gömul er hún lést eftir erf­iða bar­áttu við ill­vígan sjúk­dóm. Hún lætur eftir sig eig­in­mann og þrjú börn.

Guðrún fædd­ist í Reykja­vík 6. jan­úar 1950. Hún lauk sjúkra­liða­námi, BA-gráðu í sál­ar­fræði og diplóma­námi í djákna­fræðum. Guðrún lauk jafn­framt við­bót­ar­námi í sál­gæslu­fræðum, hug­rænni atferl­is­með­ferð, sál­grein­ingu og leið­sögu­námi.

Um tíma vann Guðrún sem sjúkra­liði á barna­deild Landa­kots­spít­ala. Hún setti á stofn og rak stoð­býli fyrir minn­is­sjúka, Foldabæ, og var fram­kvæmda­stjóri Félags áhuga­fólks og aðstand­enda Alzheimerssjúklinga. Árið 2013 greind­ist eig­in­maður Guðrúnar með Alzheimersjúkdóminn. Í gegnum árin hefur hún sinnt manni sínum af alúð auk þess að hlúa að öðrum í svip­aðri stöðum.

Blessuð sé minn­ing Guðrúnar.

Guðrún starf­aði sem djákni innan Þjóð­kirkj­unnar í 16 ár og var einn af braut­ryðj­end­unum hvað varðar mótun djákna­þjón­ust­unnar innan þjóð­kirkj­unnar og var for­maður Djákna­fé­lags Íslands í nokkur ár. Hún starf­aði meðal ann­ars í Áskirkju, á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli, Öryrkja­banda­lag­inu og í Laug­ar­nes­kirkju.

Útivist, hesta­mennska og ferða­lög voru hennar aðal­á­huga­mál. Af vinum er henni lýst sem gríð­ar­lega dug­legri, ósér­hlíf­inni og ein­stakrar mann­eskju. Vinkonur hennar minn­ast ynd­is­legrar vin­konu í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Elsku Gunna vin­kona okkar er ekki meðal okkar lengur en þeir sem marka djúp spor verða áfram með okkur þrátt fyrir að vera farnir á braut. Við stöndum eftir með sorg í hjarta en líka þakk­læti fyrir allar góðu stund­irnar. Gunna var stór karakter, hæfi­leik­a­rík og huguð og vakti kjarkur hennar og þor til að takast á við hlut­ina aðdáun okkar hinna.“

Bjarni Karlsson prestur minn­ist líka ein­stakrar mann­esku í minn­ing­ar­grein en þau störf­uðu saman í Laug­ar­nes­kirkju. „Ég kveð Guðrúnu með sér­stakri þökk og virð­ingu. Guðrún mætti ætíð vel und­ir­búin og hvort heldur hún flutti hug­vekju eða gam­an­mál var inn­takið ætíð það sama: Virðing og sam­líðun með fólki í Jesú nafni. Með Guðrúnu er gengin ein­stök mann­eskja og dýr­mætur kirkj­unnar þjónn,“ segir Bjarni.

Vinir Guðrúnar úr djákna­sam­fé­lag­inu senda einnig sínar hinstu kveðjur til ynd­is­legrar vin­konu. „Við erum sorg­mædd og okkur skortir orð þegar við nú kveðjum elsku­lega vin­konu okkar og sam­verka­konu. Við kynnt­umst í gegnum nám, starfs­nám og sam­starf í djákna­sam­fé­lag­inu. Guðrún var ynd­is­leg per­sóna sem eftir var tekið, glæsi­leg heims­kona með víð­tæka þekk­ingu, hlát­ur­mild, örlát og sann­kall­aður vinur vina sinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag