InnlentCovid-19Sigurður lést vegna COVID-19 – Missti eiginkonu sína í mars5. apríl 2020 Sigurður Sverrisson lést á Landspítalanum í Fossvogi í dag vegna COVID-19 kórónuveirunnar, 67 ára að aldri. Fréttablaðið greinir frá að Sigurður hafi barist við sjúkdóminn undanfarnar vikur og hafi sú barátta verið afar hörð. Allt útlit var fyrir að Sigurður myndi hafa betur í baráttunni, hann var tekinn af öndunarvél fyrir helgi og virtust horfurnar vera að batna. Sjúkdómurinn ágerðist...
InnlentAndlát konu í Sandgerði rannsakað sem sakamál3. apríl 2020 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsakar nú andlát þar sem kona á sextugsaldri lést í heimahúsi í Sandgerði. Andlátið er rannsakað sem sakamál, eins og segir í tilkynningu frá lögreglu. Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins til 8. apríl. Samkvæmt tilkynningunni er nú unnið að rannsókn málsins og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
InnlentCovid-19Ágústa Ragnhildur lést af völdum COVID-19: „Þakka þér fyrir öll 60 árin okkar saman“3. apríl 2020 Ágústa Ragnhildur Benediktsdóttir, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 1. apríl, 78 ára að aldri. Ágústa Ragnhildur lést af völdum COVID-19 kórónaveirunnar. Ágústa Ragnhildur skilur eftir sig eiginmann, Bjarna Líndal Gestsson, börn og barnabörn. Ágústa Ragnhildur og Bjarni voru búsett á Ísafirði og hafa búið þar alla sína tíð, og eru þau bæjarbúum vel kunnug og mikil sorg í bænum vegna andláts...
HeimurBill Withers látinn3. apríl 2020 Bandaríski tónlistarmaðurinn Bill Withers er látinn, 81 árs að aldri. AP fréttastofan greinir frá. Withers er einna þekktastur fyrir lagið Ain’t No Sunshine sem kom út árið 1971. Hann gaf út átta breiðskífur frá árinu 1971 til ársins 1985. Hann hætti að senda frá sér tónlist um miðjan níunda áratuginn. Fjölskylda Withers greindi frá andlátinu og segir hann hafa látist... Myndband
InnlentEster Ósk lést af slysförum – Söfnun hafin til styrktar ungum syni hennar2. apríl 2020 Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir lést af slysförum 14. febrúar, aðeins 38 ára að aldri. Ester Ósk lenti í hræðilegu slysi deginum áður og komst aldrei til meðvitundar. Ester Ósk lætur eftir sig einn son, Arnar Óla, 14 ára. Yngri systir Esterar Óskar, Vilborg Helga, minnist systur sinnar sem bestu vinkonu sinnar, sálufélaga og trúnaðarvinkonu. „Hún var risa stór karakter eins...
InnlentCovid-19Tveir látist á síðasta sólarhring2. apríl 2020 Á síðasta sólarhring hafa tveir sjúklingar látist á Landspítalanum vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef spítalans. „Á síðasta sólarhring hafa tveir sjúklingar látist á Landspítala vegna Covid-19. Landspítali vottar fjölskyldum þeirra samúð,“ segir í tilkynningunni. Samkvæmt heimildum Mannlífs er annar einstaklingurinn sem lést kona um áttrætt.
HeimurCovid-1913 ára drengur látinn í London vegna COVID-1931. mars 2020 13 ára drengur lést í London í dag af völdum COVID-19 kórónaveirunnar. BBC greinir frá en King’s College Hospital Trust staðfestir andlátið. 381 létust í dag í Bretlandi vegna kórónaveirunnar, en alls hafa 1.808 látist í Bretlandi frá því að COVID-19 veiran kom þar upp. Boris Johnson forsætisráðherra býst við að ástandið eigi enn eftir að versna. „13 ára gamall...
Innlent42 ára kona lést sólarhring eftir útskrift af bráðamóttöku LSH31. mars 2020 42 ára gömul kona lést á föstudag, sólarhring eftir að hún var útskrifuð af bráðamóttöku Landspítalans. Málið er komið í farveg innan spítalans, og verið að skoða hvort álag þar hafi haft eitthvað með málið að gera, eins og segir á vef RÚV. Embætti Landlæknis hafði ekki borist tilkynning um atvikið í morgun. Samkvæmt fréttastofu RÚV var konan flutt með...
InnlentCovid-19Jóninna Margrét lést af völdum COVID-19: „Hún var afskaplega vönduð og góð kona og minn allra besti vinur“30. mars 2020 Jóninna Margrét Pétursdóttir, lést á Landspítalanum 23. mars, 71 árs að aldri. Jóninna lést af völdum COVID-19 kórónaveirunnar, og er fyrsti íslendingurinn sem deyr af völdum heimsfaraldursins. Var hún flutt mikið veik á LSH viku áður, 16. mars, en fram að því hafði hún ekki sýnt nein einkenni veirunnar. Eiginmaður hennar, sem er 75 ára gamall, liggur á gjörgæslu LSH...
InnlentHeimir Jónasson látinn28. mars 2020 Heimir Jónasson lést í dag, 53 ára að aldri. Hann greindist með taugahrörnunarsjúkdóminn Corticobasal Degeneration (CBGD) í janúar árið 2018. Heimir Jónasson Eftirlifandi eiginkona Heimis, Berglind Magnúsdóttir, greindi frá andláti hans í færslu á Facebook. Heimir skilur eftir sig þrjú börn á aldrinum 14-23 ára. „Þú ræður ekki hvað kemur fyrir þig en þú ræður hvernig þú tekst á við...
HeimurCovid-19Mark Blum látinn af völdum COVID-1927. mars 2020 Bandaríski leikarinn Mark Blum, er látinn af völdum COVID-19 kórónaveirunnar, 69 ára að aldri. Blum var þekktur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Crocodile Dundee og Desperately Seeking Susan. Á heimasíðu Samtaka kvikmyndaleikara í Bandaríkjunum (Screen Actors Guild) er Blum minnst sem leikara, bæði í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði, en ekki síst sem virks þáttakanda í samtökunum og fyrrum stjórnarmanns....
HeimurTalin hafa látist af völdum COVID-19 á heimili sínu – Sagt að hún væri ekki í hópi þeirra sem njóta forgangs26. mars 2020 Kayla Williams, 36 ára þriggja barna bresk móðir, er talin hafa látist af völdum COVID-19 á laugardaginn á heimili sínu í London. Kayla lést eftir að hafa fengið þær upplýsingar að hún yrði ekki flutt á sjúkrahús vegna þess að hún væri ekki í hópi þeirra sem njóta forgangs. Kayla var 36 ára. Guardian greinir frá. Þar segir að Fabian...