InnlentCovid-19488 kórónuveirusmit í gær – 70% utan sóttkvíar24. desember 2021 Alls greindust 488 manns með COVID-19 í gær, þar af fjörutíu á landamærunum. Þetta er mesti fjöldi sem greinst hefur innanlands eða 448 manns. 152 voru í sóttkví eða um 31% smitaðra. Hér er visað til bráðabirgðatalna frá Almannavörnum en covid.is verður næst uppfærð á mánudag, 27.desember. Yfir hátíðirnar eru tölurnar því aðeins bráðabirgða. Nú eru 2.969 manns í einangrun...
InnlentCovid-19Willum Þór gagnrýndur af þungavigtarmönnum: „Ég held að þetta séu byrjunarmistök hjá góðum manni“23. desember 2021 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er ekki nógu ánægður með heilbrigðisráðherrann Willum Þór Þórsson. Kári Stefánsson gagnrýnir hann einnig. Segir Þórólfur að undanþágur frá sóttvarnalögum sem Willum Þór veitti veitingastöðum í gær, geta boðið hættunni heim. Síðastliðinn sólarhring greindust rétt undir 500 manns með Covid-19. Heilbrigðisráðherrann nýji veitt í gær veitingastöðum undandþágu frá fjöldatakmörkunum og víðaði til meðalhófsreglunnar. Fréttablaðið greindi frá málinu...
InnlentCovid-19Óbólusettir halda faraldrinum uppi hér á landi23. desember 2021 Ómíkronafbrigði kórónuveirunnar breytti heimsfaraldrinum að vissu leyti því bóluefni virðast ekki veita mikla vörn gegn afbrigðinu og það er mun meira smitandi en önnur afbrigði. En þrátt fyrir þetta þá er það óbólusett fólk sem ber faraldurinn uppi hér á landi. Þegar sjúkrahúsinnlagnir eru skoðaðar er munurinn enn meira afgerandi. Nýgengni óbólusettra er 32 á hverja 100.000 á síðustu tveimur...
InnlentCovid-19Ekki gerast sóttvarnadólgur: Þetta eru þær takmarkanir sem tóku gildi á miðnætti23. desember 2021 Nýjar takmarkanir tóku gildi á miðnætti og gildir sú reglugerð til 12. Janúar 2022. Fjöldatakmarkanir eru nú 20 manns. Á viðburðum þar sem gestir sitja er heimilt að hafa 50 manns í hólfi svo lengi sem allir beri grímu og virði eins metra fjarlægðartakmörk. Áfengissala er óheimil og gestir skulu sitja í sætum sínum. Heimilt er að halda viðburði fyrir...
InnlentCovid-19Svona getur þú þjálfað bragð-og lyktarskynið eftir covid22. desember 2021 Breyting á lyktar- og bragðskyni eru algeng einkenni þeirra sem fá sjúkdóminn COVID-19. Birtingarmyndin er oftast skyndilegt tap á lyktarskyni með eða án breytingar á bragðskyni. Einnig hefur því verið lýst að eiginleikar lyktar og bragðs geti breyst. Það er breytilegt hversu algeng þessi einkenni eru en ljóst er að stór hluti sjúklinga upplifir einhverskonar breytingu á lyktar- og bragðskyni....
InnlentCovid-19Óbólusettum bannað að koma á Grund: „Er þetta ekki klárt brot á lögum?“22. desember 2021 Hópurinn Lögfræðinördar er vettvangur fyrir áhugafólk um lögfræði til að deila þekkingu um allt sem tengist lögfræði. Í gær var borin fram spurning á þessa vegu: „Óbólusettir einstaklingar mega ekki koma á Hjúkrunarheimilið Grund. Er þetta ekki klárt brot á lögum? “ Með spurningunni fylgja eftirfarandi reglur úr stjórnarskránni að sögn þess sem spyr. Mynd: Salome Ljóst er að skiptar...
InnlentCovid-19Ásmundur furðar sig á undanþágum Bubba og Emmsjé Gauta: „Það fokkar enginn í Bubba“22. desember 2021 Enn og aftur verður jólahald Íslendinga fyrir luktum dyrum. Frá og með miðnætti í kvöld mun íslenska þjóðin þurfa að sæta fjöldatakmörkunum og fjarlægðarreglum af harðara taginu sökum omikron-afbrigðis Covid 19. Í ljósi þessa urðu margir hvumsa þegar út spurðist að Bubbi fengi undanþágu frá hertum reglum og þar með heimild til að halda Þorláksmessutónleika sína í Hörpu. Undanþágan ku...
InnlentCovid-19Birgir Ármannsson er kominn með Covid-19: „Ég hef ekki heyrt af öðrum smitum í dag“21. desember 2021 Birgir Ármannsson, forseti Alþingis hefur verið greindur með Covid-19 smit. Staðfestir Birgir þetta í samtali við mbl.is. Kveðst hann vera með týpísk flensueinkenni, hita og kvef. „Ég hef verið að taka heimapróf og hraðpróf daglega frá því fyrir helgi, frá því smitið kom upp í þinginu. Svo í morgun var stór hópur þingmanna sem tók bæði hraðpróf og PCR-próf og...
InnlentCovid-19Heilbrigðisráðherra sammála Þórólfi – Grjótharðar aðgerðir um jólin21. desember 2021 Rétt í þessu samþykkti ríkisstjórnin harðar aðgerðir vegna mikillar fjölgunar Covid-smita. Munu aðgerðirnar vafalaust hafa áhrif á jólahald margra, sem og að setja tónleikahald í uppnám. Ríkisstjórnarfundi lauk fyrir stuttu, um tillögur sóttvarnalæknis að hertum sóttvarnaraðgerðum. Í gær greindust 286 smit innanlands, sem er metfjöldi. 27 smit greindust á landamærunum og voru smitin því 313 í heildina. Willum Þór Þórsson...
InnlentCovid-19Þetta er eina leiðin í sóttvarnaraðgerðum að mati Jón Steinars21. desember 2021 Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, er þeirrar skoðunar að taka eigi völdin af misvitrum stjórnmálamönnum og sérfræðingum þegar kemur að sóttvarnaraðgerðum gegn Covid-19 hérlendis. Honum finnst íslenska leiðin minna á einkenni Sovíetríkjanna sálugu. Besta leiðin felist í því að hver og einn passi upp á sjálfan sig og treysta verði borgurum landsins fyrir eigin málum. Þetta er meðal þess sem...
InnlentCovid-19Metfjöldi smita í gær og vaxtahraðinn aldrei meiri21. desember 2021 Alls bættust við 325 manns á Covid-göngudeild í gær. Þá er haft eftir Thor Aspelund prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands að tvöföldunartími omíkron sé um tveir til þrír dagar. Það sé það mesta sem hafi sést í faraldrinum hér á landi en greinir Thor frá þessu á Facebook síðu sinni í morgun. Thor þorir ekki að spá fyrir um...
InnlentCovid-19Tillögur um hertari sóttvarnaaðgerðir – 20 manna samkomutakmörkun og færri gestir í sund og rækt20. desember 2021 Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir mælis til þess að sóttvarnaaðgerðir verði hertar svo um munar en ríkisstjórnin fer yfir tillögur hans í fyrrmálið. Samkvæmt Rúv leggur Þórólfur nú til að upp verði tekin 20 manna samkomutakmörkun og að grunn, framhalds og háskólar opni ekki aftur fyrr en 10 janúar. Þá verði 200 manna hólf skilgreind á fjöldasamkomum og verður þar neikvæðra hraðprófa...