InnlentCovid-19Minnisblað Þórólfs um nýjar sóttvarnarreglur líklega gert opinbert í dag: Mikil fjölgun smita20. desember 2021 Væntanlegt í dag er minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um sóttvarnaaðgerðir og fer það fyrir ráðherranefnd í framhaldinu. Þetta hefur Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfest. Núgildandi reglugerð rennur út á miðvikudaginn. Eins og eðlilegt er hefur Þórólfur ekkert vilja tjá sig opinberlega um minnisblað sitt sem gert verður opinbert í dag. Á síðastliðnum sólarhring greindust rúmlega 200 smit innanlands, sem er...
InnlentCovid-19690 hafa greinst jákvæðir í hraðprófum Heilsugæslunnar frá 1. nóvember19. desember 2021 Af þeim sem tekið hafa hraðpróf hjá Heilsugæslunni síðan 1. nóvember hafa 690 greinst jákvæðir. Það eru 0,5 prósent þeirra sýna sem tekin hafa verið í hraðprófunum. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur tekið yfir 141.000 sýni í nóvember og desember. Þessu er greint frá á RÚV í dag. Frá 1. desember hafa 211 fengið jákvæða niðurstöðu úr hraðprófum hjá Heilsugæslunni á Suðurlandsbraut....
InnlentCovid-19Enginn Emil í Kattholti: „Höfum ekki önnur ráð“19. desember 2021 Borgarleikhúsið hefur tekið þá ákvörðun að fella niður sýningar á Emil í Kattholti í dag. Ástæðan er sú að meðlimur leikhópsins er kominn í sóttkví. Borgarleikhúsið segist ekki eiga annarra kosta völ en að fella sýningarnar niður að svo stöddu. Leikhúsið harmar stöðuna sem upp er komin en tekur fram að miðasala muni finna nýjan sýningartíma fyrir þá gesti sem...
InnlentCovid-19Allur þingflokkur Viðreisnar með Covid 19 – Hanna Katrín: „Leitt að fólk nærri mér þarf í sóttkví“18. desember 2021 „Kæru vinir, Þá liggur það fyrir, ég er komin með COVID smit og í einangrun, en einkennalaus enn sem komið er. Mér þykir sárt að horfa fram á að missa af jólahaldi með mínum nánustu – og að hafa sent dæturnar í sóttkví beint að loknum prófum. Ragnhildur bíður eftir endanlegri niðurstöðu,“ segir Hanna Katrín og bætir við: „Stóra málið...
InnlentCovid-19Davíð Oddsson spyr hvort næst verði bólusett við kvefi: „Er ekki allt í lagi?“18. desember 2021 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, veltir því fyrir sér í stakasteinum blaðsins hvort næst verði bólusett við kvefi. „Miðað við fyrsta afbrigði veirunnar, sem greindist í Wuhan í Kína, leiðir Ómíkron til 29% færri sjúkrahúsinnlagna, en 23% færri en Delta,“ Rannsóknin leiddi í ljós að bóluefni Pfizer, sem veitt hefur 80% vörn gegn kórónuveirusmiti, veitir aðeins 33% vörn gegn smiti Ómíkronafbrigðisins....
InnlentCovid-19212 greindust með Covid í gær – metfjöldi í hraðprófum18. desember 2021 Í gær greindust 212 með Covid. Af þeim voru 186 innanlandssmit og einungis 72 af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví. Þessu er greint frá á vef RÚV. 26 greindust á landamærunum. Tekið er fram að um sé að ræða bráðabirgðatölur, eins og venjan er um helgar. Tölurnar verða uppfærðar eftir helgi. Síðustu daga hafa talsvert margir farið...
InnlentCovid-19Oddný Harðardóttir – jólahald í óvissu: „Vona að tvær sprauturnar forði mér frá veikindum“17. desember 2021 Jólahald er í óvissu eða með einfaldara sniði hjá mörgum þessi jól vegna covid. Ein af þeim er Oddný Harðardóttir sem útskýrði fyrir stutt á facebook síðu sinni að hún hefði greinst með covid í dag. Þar segir: „Kæru vinir. Mér finnst rétt að láta ykkur vita að ég greindist með covid í dag.Er ekki búin að fá örvunarskammtinn en...
InnlentCovid-19Margrét Friðriksdóttir um bólusetningu barna: „Af hverju eiga foreldrar að hafa áhyggjur af kvefi?“17. desember 2021 Margrét Friðriksdóttir er beinskeytt og ákveðin kona, jafnvel með bein í nefinu: Hún virðist ekki óttast að börn geti veikst alvarlega af hinum lífshættulega veirusjúkdómi, Covid 19. Gefum Margréti orðið: „Af hverju eiga foreldrar að hafa áhyggjur af kvefi?“ spyr Margrét og bætir við: Börn eru ekki í neinum áhættuhóp og fljót að ná sér eftir þessa flensu; skilst að...
InnlentCovid-19Kristinn gagnrýnir fjölmiðla: „Fleiri hafi fallið fyrir eigin hendi á Íslandi en látist úr covid“16. desember 2021 Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks skrifaði í dag færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að ala á hræðsluna við nýja Covid afbrigðið, Omikron. Bendir hann á fréttir frá vísindamönnum í Hong Kong, máli sínu til stuðnings. „Fyrir viku voru 24 á sjúkrahúsi með veiruna. Nú eru þeir 13. Tilfellum fjölgar samt jafnt og þétt. Nú berast fréttir af...
InnlentCovid-19Flest smitaðra á höfuðborgarsvæðinu: 1.390 smitaðir í einangrun14. desember 2021 Alls greindust 147 manns með kórónuveiruna í gær, þarf af voru 53 í sóttkví. Eru nú 1.390 smitaðir í einangrun, flestir á höfuðborgarsvæðinu eða 1.011 manns. Fjórtán eru á spítala og þrír á gjörgæslu. Flestir smitaðra eru börn á aldrinum 6 til 12 ára eða 328 talsins. Þá eru 262 á aldrinum 30 til 39 ára.
InnlentCovid-1930 staðfest Omíkron-tilfelli og engar herðingar: „Virðist sem örvunarbólusetningin geri útslagið“13. desember 2021 Bólusetningar og örvunarbólusetningar hafa sannað sig gegn alvarlegum veikindum af völdum Omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar, samkvæmt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Þessu er greint frá á RÚV. Nú eru tæplega 30 staðfest tilfelli Omíkron-smita á Íslandi og reiknað er með því að þeim muni fjölga til muna. Hingað til hafa veikindi ekki verið alvarleg vegna afbrigðisins. Þórólfur segir að þeir sem hafi smitast hér...
InnlentCovid-19Fjöldi smita í Seljahverfi: Ölduselsskóli lamaður og allir heima13. desember 2021 Ölduselsskóli í Seljahverfi er lamaður vegna fjölda smita. Allt skólahald fellur niður í dag vegna kórónuveirusmita hjá starfsmönnum og nemendum skólans. Smit hefur komið upp í að minnsta kosti fimm árgöngum og hjá tveimur starfsmönnum skólans. „Þetta olli því að aðrir starfsmenn hafa verið sendir í sóttkví. Bæði vegna útsetningar hér innanhúss og svo eru einhverjir starfsmenn sem hafa verið...