InnlentCovid-19Orðið flóknara að koma Íslendingum í útlöndum heim25. mars 2020 Starfsfólk utanríkisþjónustunnar hefur unnið á vöktum allan sólarhringinn og aðstoðar Íslendinga sem eru staddir erlendis við að komast heim. Dagana 20.-23. mars hefur borgaraþjónusta ráðuneytisins sinnt hátt í 900 erindum, samanborið við 2.000 erindi dagana 14.-19. mars. Fyrirspurnum hefur því fækkað nokkuð en þær verða að sama skapi flóknari viðureignar. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu almannavarna sem var send út...
InnlentCovid-19195 hjúkrunarfræðingar og 78 læknar skráð sig í bakvarðasveitina24. mars 2020 Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar fer ört stækkandi. Bakverðir voru orðnir tæplega 680 síðdegis í dag. Sem dæmi þá hafa 195 hjúkrunarfræðingar, 78 læknar, 71 sjúkraflutningamenn og 168 sjúkraliðar skráð sig á lista bakvarðasveitarinnar. Eru þetta einstaklingar sem eru reiðubúnir til að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara vegna COVID-19. Nemar í hjúkrunarfræði og læknisfræði hafa nú bæst í hópinn...
HeimurCovid-19„Sýndarkrá“ slær í gegn á Facebook24. mars 2020 Kráin, eða pöbbinn, er stór þáttur í lífi flestra Breta og margir óttuðust leiðindi og félagslega einangrun eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, skipaði öllum krám, veitingahúsum og kaffihúsum að loka síðastliðinn föstudag. Hugmyndaríkur kráareigandi dó þó ekki ráðalaus og opnaði „sýndarkrá“ á Facebook þar sem fram fara tónleikar, „pöbbkviss“ í anda Drekktu betur, og uppistandarar og fleiri skemmtiatriði eru í...
InnlentCovid-19Anna vaknaði upp við vondan draum: „Vitandi upp á aðra skömmina, ekki mig sem geri aldrei mistök að eigin mati“24. mars 2020 „Hvorugri okkar datt í hug að fara til Íslands til þess eins að vera byrði á fólki meðan á sóttkví stæði og vera síðan í óvissu um framhaldið, hvenær við kæmumst aftur heim til Paradísar,“ segir Anna Kristjánsdóttir í pistli sínum á Mannlíf, en hún hefur verið búsett á Tenerife síðan um miðjan ágúst í fyrra. Anna segir frá því...
InnlentCovid-19Bindur vonir við að fá fleiri sýnatökupinna í vikunni: „Þá er hægt að gefa aftur í“24. mars 2020 Skortur af sýnatökupinnum er áhyggjuefni að sögn Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis. Hann segir að von sé á fleiri sýnatökupinnum í vikunni. Þessi greindi hann frá á upplýsingafundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra áðan. Hann sagði að verið sé að gera gæðaúttekt á stórum lager af pinnum í samstarfi við Össur. Ef pinnar standast kröfur er hægt að „gefa aftur í“ að sögn Þórólfs. „Þá...
InnlentCovid-19Staðfest smit orðin 648 á Íslandi24. mars 2020 Staðfest COVID-19 smit eru orðin 648 talsins hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 60 á síðasta sólarhring. Alls eru 8.205 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar. 357 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og. Ekkert sýni var rannsakað hjá Íslenskri erfðagreiningu vegna skorts á sýnatökupinnum. Þórólfur...
InnlentCovid-19Katrín greindist ekki með smit vegna COVID-1924. mars 2020 „Mér hafa borist þau ánægjulegu tíðindi að í sýni mínu væru engin merki um coronaveiru,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, í færslu á Facebook fyrr í dag. Katrín greindi frá því í gær að hún hefði þurft að fara í sjálfskipaða sóttkví þar sem smit hefði greinst í skóla yngsta sonar hennar, og sonurinn og eiginmaður Katrínar hefði farið í sóttkví....
InnlentCovid-19Nettó ræður inn fjölda starfsmanna til að anna eftirspurn í netverslun: Allt að tveggja sólarhringa bið eftir afgreiðslu24. mars 2020 Nettó hefur ráðið inn rúmlega 50 nýja starfsmenn, þar af 20 bílstjóra, og keypt yfir tíu nýja bíla til að anna mikilli eftirspurn í netverslun fyrirtækisins. Bílarnir bætast við þá sem fyrir eru af fyrirtækinu Aha, samstarfsaðila Nettó í netversluninni. „Viðskiptavinir okkar hafa verið einkar skilningsríkir á þessum óvissutímum og þeir eiga hrós skilið. Það hafa komið tímabil þar sem...
InnlentCovid-19Gleðipinnar loka nokkrum stöðum tímabundið og breyta opnunartímum24. mars 2020 Nokkrir veitingastaða Gleðipinna loka tímabundið og opnunartímar breytast. Áherslan á heimsendingar með Hreyfli og Take away. Skapandi lausnir og samstaða „Við höfum reynt eftir fremsta megni að vera til staðar fyrir okkar viðskiptavini í þessum aðstæðum og munum vera það áfram. Eftir að samkomubannið var þrengt í 20 manns ákváðum við að loka hluta staðanna okkar tímabundið frá og með...
InnlentCovid-19Meinleg mistök hjá Fréttablaðinu – „Samgöngubann“ í staðinn fyrir samkomubann24. mars 2020 Sérblað Fréttablaðsins, Sóttkví og samkomubann, fylgir Fréttablaðinu í dag. Þau mistök voru hins vegar gerð að í blaðinu stendur að það fjalli um „samgöngubann“ í staðinn fyrir samkomubann. Nokkrir netverjar hafa bent á þessi meinlegu mistök á samfélagsmiðlum. Fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir er ein þeirra sem skrifar um sérblað fréttablaðsins á Twitter og bendir á mikilvægi prófarkalesturs. Ekki skera niður...
HeimurCovid-19Dibango lést af völdum COVID-1924. mars 2020 Manu Dibango djassleikari lést í dag, 86 ára að aldri. Dibango lést eftir að hafa smitast af COVID-19 kórónaveirunni. „Hann lést snemma í morgun á sjúkrahúsi á Parísarsvæðinu,“ segir Thierry Durepaire útgefandi hans. Í færslu á opinberri Facebook-síðu hans segir að útför Dibango muni fara fram í kyrrþey og minningarathöfn verði skipulögð og haldin þegar hægt verður. Vinsælasta lag hans,... Myndband
InnlentCovid-19Segir algengt að afgreiðslufólki sé sýndur dónaskapur: „Starfsfólk í verslun er í hópi þeirra sem halda samfélaginu gangandi“24. mars 2020 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur fólk til að sýna afgreiðslufólki í verslunum kurteisi. Ragnar segir frá því í færslu á Facebook að nokkuð hafi borið á því að starfsfólki verslana sé sýndur dónaskapur. „VR hefur borist töluvert af kvörtunum þess efnis. Það er mikilvægt að fólk hafi í huga að allir eru að gera sitt besta í að halda...