InnlentCovid-19Unnið allan sólarhringinn við að koma fólki heim19. mars 2020 Starfsfólk utanríkisþjónustunnar vinnur nú á vöktum allan sólarhringinn og aðstoðar Íslendinga sem eru staddir erlendis við að komast heim. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir frá þessu á Facebook-síðu sinni. „Utanríkisþjónustan hefur staðið í ströngu frá því fyrir helgi við að aðstoða Íslendinga erlendis sem vilja komast heim og áfram er unnið á vöktum allan sólarhringinn,“ skrifar hann. Utanríkisráðuneytið hefur undanfarið...
InnlentCovid-19Lilja hvetur fólk til að finna leiðir til að styrkja listamenn: „Gerum það sem þarf“19. mars 2020 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að mörgu að huga núna vegna útbreiðslu COVID-19. Hún segir m.a. þurfa að huga að heilsuvernd til viðbótar við efnahagsleg og félagsleg viðbrögð En ekki má gleyma menningunni að sögn Lilju. „Íslenskt menningarlíf hefur lengið staðið í blóma og mun áfram blómstra þótt tímabundinn skuggi hafi fallið á samfélagið,“ skrifar Lilja í pistil sem...
InnlentCovid-19Skoða að loka hótelum19. mars 2020 Stjórnarformaður Íslandshótela, Ólafur Torfason, segir koma til greina að loka fimm hótelum tímabundið af þeim 17 sem eru í keðju Íslandshótela. Ólafur segir frá þessu í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ástæðuna vera fyrirséð tekjutap vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur COVID-19. Möguleg lokun fimm hótela kæmi til viðbótar við útleigu á Fosshóteli Lind á Rauðarárstíg sem er leigt undir sóttkví...
InnlentCovid-19Víðir fluttur á hótel og fjölskyldan í sóttkví18. mars 2020 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er fluttur á hótel, þar sem eiginkona hans og dóttir þeirra eru nú í sóttkví. „Ég bý við það núna að konan mín og dóttir eru í sóttkví á mínu heimili. Ég er fluttur á hótel þannig að ég er ekki að hitta þær,“ sagði Víðir í umræðuþætti um COVID-19 á RÚV fyrr í kvöld. „Ég er...
HeimurCovid-19Sprenging í sölu á kynlífsleikföngum18. mars 2020 Sóttkví, einangrun og samkomubann víða um lönd virðist hafa haft mikil áhrif á sölu kynlífsleikfanga. Kanadamenn eru efstir á blaði yfir þau lönd þar sem söluaukningin hefur orðið mest síðustu vikurnar, en þar hefur netsala á kynlífsleikföngum aukist um 135 prósent. Í Bandaríkjunum hefur salan aukist um sjötíu og fimm prósent og um sextíu prósent á Ítalíu. Í Hong Kong...
MannlífiðCovid-19Veitingahús laga sig að breyttu landslagi – ekkert bendir til þess að kórónaveiran berist með matvælum18. mars 2020 Mikil áskorun býður veitingastaða vegna útbreiðslu COVID-19 og samkomubannsins. Starfsfólk þeirra gerir þó allt sem í þeirra valdi stendur til að aðlagast aðstæðum og dæmi eru um að veitingastaðir bjóði nú fólki að sækja mat eða að fá hann heimsendann.
InnlentCovid-19George R. R. Martin notar einangrunina til að vinna við The Winds of Winter18. mars 2020 Rithöfundurinn George R. R. Martin, höfundur bókanna sem Game of Thrones-þættirnir byggja á, tilkynnir aðdáendum á heimasíðu sinni að hann hafi einangrað sig vegna kórónaveirunnar COVID-19 þar sem hann sé sannarlega meðal þeirra sem eru í mestri hættu vegna aldurs og líkamlegs ástands, en fullvissar þá um að honum líði vel og hann vinni daglega að skriftum. „Satt best að...
InnlentCovid-19Fjórir Íslendingar sendir beint til baka á færeyskum flugvelli18. mars 2020 Fjórum íslenskum ferðamönnum var meinuð innganga í Færeyjar á flugvellinum í Vogum í gær, að sögn færeyska sjónvarpsins Kringvarpið. Var fólkinu snúið við á flugvellinum og sent beint til baka til Danmerkur vegna lokunar landamæranna sem gekk í gildi á mánudaginn og felur í sér að einungis danskir ríkisborgarar með búsetu í Danmörku, Færeyjum eða á Grænlandi fá inngöngu í...
InnlentCovid-19Skemmtistað í Reykjavík lokað tímabundið vegna COVID-1918. mars 2020 Íslenskum skemmtistað hefur verið lokað tímabundið vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. Framkvæmdastjóri staðarins segir ákvörðunina hafa verið tekna að vel ígrunduðu máli. Skemmtistaðnum KIKI á Laugavegi 22 hefur verið lokað tímabundið vegna útbreiðslu COVID-19 hér á landi. Framkvæmdastjóri staðarins, Árni Grétar Jóhannsson, segir ákvörðunina tekna með öryggi viðskiptavina í huga. Hann segir frá þessu í samtali við GayIceland. Árni segir ákvörðunina hafa...
InnlentCovid-19Útvíkkun áhættusvæða vegna COVID-1918. mars 2020 Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar hááhættusvæðin vegna COVID-19. Frá og með fimmtudeginum 19. mars er Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma. Undanþegnir þessu er flugáhafnir og áhafnir flutningaskipa. Hér má finna nánari upplýsingar um framkvæmd sóttkvíar.
InnlentCovid-19Heima í samkomubanni: Komdu á hvetjandi æfingu með Annie Mist18. mars 2020 Annie Mist Þórisdóttir hefur nú birt myndband á YouTube síðu sinni þar sem hún sýnir nokkrar æfingar sem tilvalið er að iðka heima, sérstaklega fyrir þá sem núna eru heima við í sóttkví, með ung börn sem komast ekki í skóla eða annað. Myndband
InnlentCovid-19„Verið heima hjá ykkur, verið heima hjá ykkur, verið heima hjá ykkur“18. mars 2020 „Verið heima hjá ykkur, verið heima hjá ykkur, verið heima hjá ykkur,“ sagði fjölmiðlakonan Þóra Arnórsdóttir í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þóra er búsett í bænum Bra á Ítalíu en Ítalía hefur orðið einna verst úti vegna kórónaveirunnar sem veldur COVID-19. Ítölsk stjórnvöld hertu aðgerðir vegna útbreiðslu COVID-19 mikið í síðustu viku og samkomu- og ferðabann er...