Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Fréttamál

Covid-19

Greinar

InnlentCovid-19

Smit á sam­býli fyrir fatlað fólk

Íbúi á sam­býli fyrir fatlað fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu greind­ist með COVID-19 smit fyrir tíu dögum og veikt­ist fimm dögum síðar. Vísir greinir frá. Þar segir að fjórir stafs­menn og þrír íbúar voru settir í sótt­kví eftir að smitið greind­ist. Talið er að sá smit­aði hafi fengið heim­sókn frá ætt­ingja þann 1. mars, ætt­ing­inn hafði verið á skíðum erlendis á skil­greindu...
InnlentCovid-19

Lilja er bjart­sýn en segir nei­kvæð efna­hags­leg áhrif COVID-19 vera gríð­ar­leg

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, er bjart­sýn á að Íslend­ingar nái tökum á COVID-19 ef allir leggja sitt af mörkum. „Við verðum að for­gangs­raða í þágu sam­fé­lags­ins,“ skrifar hún í pistil sem birt­ist í Morg­un­blað­inu. Lilja segir fyrsta skrefið í bar­átt­unni gegn kór­óna­veirunni sem veldur COVID-19 snú­ast að heilsu­vernd. Hún segir heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa staðið sig vel og dáist að...
InnlentCovid-19

Ekkert bendir til að kór­óna­veiran ber­ist með mat­vælum

Engar vís­bend­ingar eru um að kór­óna­veiran sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum ber­ist með mat­vælum. Þetta kemur fram í nýút­gefnu áliti Mat­væla­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu (EFSA). Í áliti EFSA er bent á fyrri far­aldra af völdum skyldra kór­óna­veira en í þeim til­fellum áttu smit sér ekki stað með mat­vælum. Ekkert bendir til að kór­óna­veiran sem veldur COVID-19 sé öðru­vísi að því leiti og geti...
HeimurCovid-19

Sam­komu­bann á allri Ítalíu vegna veirunnar

Ítölsk stjórn­völd hafa sett sam­komu­bann á alls staðar á Ítalíu vegna útbreiðslu kór­óna­veirunnar sem veldur COVID-19. Giu­seppe Conte for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu greindi frá þessu. Bannið gildir frá og með þriðju­deg­inum. Þessu er sagt frá BBC. Conte segir þetta nauð­syn­legar aðgerðir til að draga úr útbreiðslu og vernda við­kæma hópa. Ástandið vegna COVID-19 er verst á Ítalíu. Þar í landi eru rúm­lega...
InnlentCovid-19

Sam­komu­bann ekki sett á íþrótta­við­burði að svo stöddu

Fundi Almanna­varna, sótt­varna­læknis og sér­sam­banda íþrótta­hreyf­inga vegna COVID-19 kór­óna­veirunnar lauk nú undir kvöld. Á fund­inum kom fram að ekki verður sett á sam­komu­bann eða tak­mark­anir á íþrótta­við­burði eins og staðan er núna. „Eins og þeir sögðu er það neyð­ar­úr­ræði sem þeir grípa til ef útbreiðslan verður meiri þannig að eins og staðan er í dag eru allir íþrótta­við­burðir á dag­skrá...
HeimurCovid-19

Skrúð­göngu á degi heilags Patricks aflýst í Dublin

Borg­ar­yf­ir­völd í Dublinar hafa aflýst hinni árlegu skrúð­göngu á degi heilags Patricks þann 17. mars, til að hamla útbreiðslu kór­óna­veirunnar sem veldur Covid-19. Árlega taka tugir þús­unda fólks þátt í göng­unni sem er stærsti við­burður árs­ins á Írlandi. Í frétt írsku útvarps­stöðv­ar­innar RTÉ um málið kemur fram að borg­ar­yf­ir­völd í Cork hafi riðið á vaðið í morgun og aflýst sinni...
InnlentCovid-19

Ömurlegt að lifa í óvissu og geta ekki planað neitt

„Það er allt lokað í bænum núna, segir Guðlaug Böðv­ars­dóttir, sem býr í smá­bænum Castelluchio í Lombar­diu-hér­að­inu á Ítalíu, þar sem búið er að banna allar ferðir úr og inn í hér­aðið. Hún segir óviss­una um fram­haldið vera farna að leggj­ast þungt á sál­ina. „Fólk er nátt­úru­lega mikið bara heima hjá sér, er ekk­ert að fara í heim­sóknir eða eitt­hvað...
InnlentCovid-19

„Við megum samt ekki láta veiruna yfir­taka allt“

„Við megum samt ekki láta veiruna yfir­taka allt,“ sagði land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem fór fram áðan. Á fund­inum svör­uðu Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn, Þórólfur Guðnason, sótt­varn­ar­læknir, Alma D. Möller, land­læknir og María Mjöll Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri upp­lýs­inga­deildar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, spurn­ingum blaða­manna um útbreiðslu COVID-19 hér á landi, Íslensk erfða­grein­ing mun leggja sitt af mörkum og skima fyrir COVID-19. Þórólfur segir að...
InnlentCovid-19

SORPA hættir að nota vind­flokk­ara vegna COVID-19

Umhverf­is­stofnun hefur eftir sam­ráð við sótt­varn­ar­lækni lagt til að flokkun úrgangs með loft­blæstri verði hætt tíma­bundið til að draga úr smit­hættu vegna Covid-19 veirunnar. Þetta kemur fram á vef SORPU. Þar segir að ekki megi nýta vind­flokk­ara fyrir plast í pokum í mót­töku- og flokk­un­ar­stöð SORPU á meðan þetta ástand varir. Um er að ræða búnað sem not­aður er til...
InnlentCovid-19

Tveir til við­bótar úr Veróna-flug­inu smit­aðir

Tvö COVID-19-smit greindust til við­bótar í morgun hjá ein­stak­lingum sem komu til lands­ins með vél Icelandair frá Veróna á laug­ar­dag­inn. Í heild­ina hafa því fimm far­þegar úr þessu flugi greinst með veiruna. Alls eru greind smit hér­lendis orðin 60 tals­ins, þar af eru tíu inn­an­lands­smit. Mikill við­bún­aður var á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna komu far­þeg­anna í gær. Sjá einnig: Þrír úr flug­inu...
InnlentCovid-19

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn var ekki að koma frá skil­greindu hættu­svæði – „Því full­kom­lega eðli­legt að mæta í vinnu“

Í gær sagði Alma D. Möller land­læknir frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra að fimm hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem starfa á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi eru smit­aða af COVID-19. Alma sagði að tveir hjúkr­un­ar­fræð­ingar hefðu smit­ast í skíða­ferð og annar þeirra hafi mætt á vakt og þannig hefðu senni­lega þrír hjúkr­un­ar­fræð­ingar til við­bótar smit­ast. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn sem kom á vakt eftir skíða­ferð sinnti...