Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ömurlegt að lifa í óvissu og geta ekki planað neitt

Ömurlegt að lifa í óvissu og geta ekki planað neitt
Guðlaug

„Það er allt lokað í bænum núna, segir Guðlaug Böðv­ars­dóttir, sem býr í smá­bænum Castelluchio í Lombar­diu-hér­að­inu á Ítalíu, þar sem búið er að banna allar ferðir úr og inn í hér­aðið. Hún segir óviss­una um fram­haldið vera farna að leggj­ast þungt á sál­ina.

„Fólk er nátt­úru­lega mikið bara heima hjá sér, er ekk­ert að fara í heim­sóknir eða eitt­hvað að óþörfu,“ segir Guðlaug spurð hvort bæj­ar­lífið hafi ekki breyst mikið við ein­angr­un­ina. „Ég sé fólk tala saman út á götu með fjar­lægð á milli sín. Og maður þarf að þvo sér um hend­urnar áður en maður fer inn í versl­anir.“

En er enn nóg af vörum í versl­unum?

„Já,  og það á að reyna að halda því þannig, því það á að reyna að valda sem minnstu upp­námi,“ útskýrir Guðlaug. „Það eru margir sem fá vör­urnar sendar heim, fólk er helst bara ekk­ert að fara út því það veit að það hjálpar.“

Og íbúar á svæð­inu hlýða fyr­ir­mælum um að halda kyrru fyrir?

„Það voru margir sem flúðu Mílanó kvöldið sem gefið var út að Lombar­dia væri orðið rautt svæði, fóru til Suður-Ítalíu sem er búin að vera frekar laus við vírus­inn, en það er annað upp á ten­ingnum núna,“ segir Guðlaug. „Fólk kemst ekki neitt.“

Svona lítur Mílanó út núna. Mynd / EPA

Þegar Mannlíf ræddi við Guðlaugu fyrir tveimur vikum hafði eng­inn í bænum greinst með veiruna, hefur það breyst?

„Já, einn hefur greinst hérna og það dó gömul kona um dag­inn, en upp­lýs­inga­flæðið er sem betur fer gott hérna á Mantova-svæð­inu, þannig að við getum fylgst vel með útbreiðsl­unni,“ segir hún. „Sjúkra­bíl­arnir hafa líka verið miklu meira á ferð­inni en vana­lega síð­ustu daga.“

Er þetta ástand ekk­ert farið að leggj­ast á sál­ina í fólki?

„Jú, mjög mikið,“ segir Guðlaug. „Að lifa í óvissu er alveg hreint ömur­legt, það er ekki hægt að plana neitt og að maður getur ekki bara skroppið eitt­hvað. Ég kross­legg bara fingur um að geta komið heim í sumar.“

Lokun svæð­is­ins mun vara til 3. apríl, að minnsta kosti og svo verður tekin ákvörðun um fram­haldið. Guðlaug segir fólk ekki bjart­sýnt á að ástandið breyt­ist fyrir þann tíma.

„Ég held það verði ekki mikið um páska­frí á Ítalíu þetta árið,“ segir hún og and­varpar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina