HeimurBill Withers látinn3. apríl 2020 Bandaríski tónlistarmaðurinn Bill Withers er látinn, 81 árs að aldri. AP fréttastofan greinir frá. Withers er einna þekktastur fyrir lagið Ain’t No Sunshine sem kom út árið 1971. Hann gaf út átta breiðskífur frá árinu 1971 til ársins 1985. Hann hætti að senda frá sér tónlist um miðjan níunda áratuginn. Fjölskylda Withers greindi frá andlátinu og segir hann hafa látist... Myndband
InnlentDonna Cruz: „Fáfræði er engin afsökun“8. febrúar 2020 Borið hefur á því að fólk af asískum uppruna verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjölfar þess að kórónaveiran greindist fyrst í borginni Wuhan í Kína. Þau Brynjar Steinn Gylfason og Donna Cruz, sem bæði eiga ættir að rekja til Filippseyja, eru meðal þeirra sem tekið hafa málið upp á samfélagsmiðlum og hvatt til þess að fólk hugsi sinn gang.
InnlentBinni Glee: „Hún segist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi“7. febrúar 2020 Borið hefur á því að fólk af asískum uppruna verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjölfar þess að kórónaveiran greindist fyrst í borginni Wuhan í Kína. Brynjar Steinn Gylfason, sem á ættir að rekja til Filippseyja, er meðal þeirra sem tekið hafa málið upp á samfélagsmiðlum og hvatt til þess að fólk hugsi sinn gang.
InnlentDauðsföll vegna Wuhan-kórónaveirunnar orðin hátt i 500 talsins5. febrúar 2020 Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa gefið út að 490 hafi nú látist af völdum Wuhan-kórónaveirunnar á meginlandi Kína, að því er fram kemur á RÚV. Smittilfellin þar í landi eru nú orðin 24.324. Tvö dauðsföll hafa orðið utan Kína af völdum veirunnar, annars vegar á Filippseyjum og hins vegar í Hong Kong. Hafa smit greinst í 20 löndum utan Kína meðal...
HeimurWuhan-kórónaveiran: Annað dauðsfall utan Kína4. febrúar 2020 Annað dauðsfallið af völdum Wuhan-kórónaveirunnar utan meginlands Kína var staðfest í morgun. RÚV greinir frá. Hinn látni er 39 ára gamall karlmaður, sem var á ferðalagi í Wuhan í janúar. Hann var búsettur í Hong Kong og fór heim með hraðlest 23. janúar. Greind tilfelli veirunnar eru orðin 20.629 og dauðsföll eru orðin 427. Samkvæmt upplýsingum John Hopkins háskólans eru...
InnlentStjúpbróðir Leonardo DiCaprio um fíknina og lífið í Skid Row3. febrúar 2020 Í nýjum þætti á YouTube-rásinni Soft White Underbelly segir Adam Farrar frá lífinu á götunni í Skid Row-hverfi í Los Angeles og fíkninni en Adam er háður ópíóðalyfinu fentanýl. Adam Farrar, sem er stjúpbróðir Hollywood-leikarans Leonardo DiCaprio, segir einnig frá æskunni og uppeldinu í þættinum. Hann segir þá bræður hafa fengið gott uppeldi. Adam hefur sjálfur starfað innan skemmtanabransans, meðal...
HeimurWuhan-kórónaveiran: Smit staðfest í Svíþjóð31. janúar 2020 Wuhan-kórónaveiran hefur nú greinst í Svíþjóð, en Sóttvarnastofnunin í Svíþjóð og heilbrigðisyfirvöld í Jönköping greindu frá því nú í dag. Kona sem var nýlega á ferðalagi í Kína hefur verið sett í einangrun á Ryhov-sjúkrahúsi í Jönköping. Konan er þó ekki alvarlega veik samkvæmt tilkynningu Sóttvarnastofnunar. RÚV greindi frá. Í tilkynningunni segir að lítil hætta sé á því að Wuhan-kórónaveiran...
Heimur„Nánast vonlaust að hún berist ekki hingað“31. janúar 2020 Sóttvarnalæknir telur nær útilokað að Wuhan-kórónaveiran berist ekki til Íslands. Embætti landlæknis er á haus við að undirbúa komu hennar. Verið er að dreifa hlífðarbúnaði til sjúkrastofnana og undirbúa leiðbeiningar fyrir almenning og heilbrigðisstarfsfólk, með það að markmiði að hefta útbreiðsluna. Stór fyrirtæki hafa verið hvött til að skipuleggja hvernig þau geta starfað áfram með skertan mannafla. 2,2% þeirra sem...
HeimurWuhan-kórónaveiran er komin til Bretlands31. janúar 2020 Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að tvö tilfelli Wuhan-kórónaveirunnar hafi greinst í Bretlandi. BBC greinir frá, og einstaklingarnir eru í sömu fjölskyldu, en ekki kemur fram hvernig tengslin eru. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO lýsti í gær yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna veirunnar, sem dreifir hratt úr sér og tala látinna hækkar stöðugt. Alls eru 213 látnir, flestir í Hubei-héraði í Kína. Gærdagurinn var...
HeimurSex látnir og óttast um átta10. desember 2019 Að minnsta kosti sex eru látnir og óttast er að átta aðrir hafi farist, eftir að eldgos hófst á Whakaari á Nýja Sjálandi. Að sögn lögreglu voru 47 ferðamenn á eyjunni þegar gosið hófst; 24 Ástralir, níu Bandaríkjamenn, fimm Nýsjálendingar, fjórir Þjóðverjar, tveir Kínverjar, tveir Bretar og einn frá Malasíu. Upplýsingar virðast þó eitthvað vera á reiki því samkvæmt erlendum... Myndband
HeimurHélt að fegrunaraðgerð væri lykillinn að hamingju20. nóvember 2019 „Það var alltaf rödd í höfðinu á mér sem sagði: „Þú lítur ekki vel út, þú ert ekki með fullkominn líkama“,“ segir ung kona að nafni Laura Baylis í viðtali við BBC í þættinum Plastic Surgery Undressed. Þátturinn er tileinkaður fegrunaraðgerðum. Þegar Laura kom sem gestur í þáttinn var hún að íhuga að gangast undir aðgerð sem kallast liposculpture. Aðgerðin...
HeimurIAG kaupir Air Europa4. nóvember 2019 International Airlines Group, móðurfyrirtæki British Airways, hefur keypt spænska flugfélagið Air Europa fyrir 1 milljarð evra.