InnlentVerbúðin: „Átök um verðmæti í íslensku þjóðfélagi“5. janúar 2022 Ögmundur Jónasson ræðir um kjarabaráttu og verkföll níunda áratugarins á Íslandi í hlaðvarpinu Með Verbúðina á heilanum. Rætt er við hann í hlaðvarpinu Með Verbúðina á heilanum, þar sem rýnt er í sjónvarpsþættina og sögulegt samhengi þeirra. Ögmundur Jónasson, sem ásamt öðrum fór mikinn í baráttu fyrir réttindum verkafólks þegar landið logaði verkföllum á níunda áratugnum, leggur dóm sinn yfir...
InnlentBjörn Ingi sakaður um hatur í Kastljósinu: „Útlendingar leggja meira á heilbrigðiskerfið“4. janúar 2022 Í pistli Björns Inga Hrafnssonar, blaðamanns sem birtist í Viljanum í gær, talar hann um bleika fílinn í stofunni og er þá að vísa í grein sinni til útlendinga sem búa á Íslandi, og að hans sögn hafa neitað að fá bólusetningar. Þar segir hann: „Bleiki fíllinn í stofunni tengist svo stöðunni á Landspítalanum. Þar er allt af sligast undan...
InnlentEinar Þorsteinsson fréttamaður á RÚV er hættur störfum: „Erfitt að kveðja ykkur vini mína“3. janúar 2022 „Þetta er erfið ákvörðun því fréttastofan er mitt annað heimili og það er erfitt að kveðja ykkur vini mína. Ég get því miður ekki sagt ykkur strax frá því hvert ég er að fara en það skýrist fljótlega. En ég hætti sem sagt í dag,“ er haft eftir Einari. Einar Þorsteinsson, fréttamaður á RÚV til margra ára og einn af...
InnlentIllugi veltir upp endalokum Moggans: „Þessi vefur gæti þó farið að verða Mogganum skeinuhættur“27. desember 2021 Rithöfundurinn Illugi Jökulsson veltir því fyrir sér hvort styttist í endalok útgáfu Morgunblaðsins. Ástæðan er opnun nýrrar vefsíðu sem býður upp á fría þjónustu fyrir minningargreinar, sem ásamt styrktarfé Guðbjargar Matthíasdóttur útgerðarkonu er eitt af því sem haldið hefur lífi í blaðinu um nokkurt skeið. Illugi ritar um þennan nýja vef, minningar.is, og möguleg áhrif hans á Moggann í færslu...
InnlentRuPaul og ég: Hvernig dragdrottning breytti gæðastundum með dóttur minni25. desember 2021 Á meðan flestir kúra um þessar mundir uppi í sófa við að horfa á Netflix-þætti á borð við Titans, The Witcher, Money Heist eða nýju Tiger King-þáttaröðina, vel ég mér allt öðruvísi sjónvarpsefni til að kúra yfir. Ég er fastur yfir raunveruleikaþáttum um dragdrottningar. Ég og 11 ára dóttir mín duttum inn á RuPaul´s Drag Race fyrr á árinu og...
InnlentBerglind Festival:„Segir sjötugan mann í Breiðholtinu reglulega senda henni hatursskilaboð“23. desember 2021 Berglind Pétursdóttir, jafnan kennd við Festival, er ein þekktasta sjónvarpskona landsins. Hún er þó ekki allra eins og hún sagði Kötu Vignis í nýjast hlaðvarpsþættinum af Farðu úr bænum. Berglind segir sjötugan mann í Breiðholtinu reglulega senda henni hatursskilaboð. Berglind segir viðtökurnar við innslögunum hennar á Vikunni strax hafa verið góðar. Það eru þó nokkrir aðilar sem að þurfa að...
InnlentHelgi Seljan – Landsréttur staðfestir sýknu í máli hans og RÚV18. desember 2021 Landsréttur staðfesti í dag sýknu Héraðsdóms í máli manns gegn Helga Seljan og Ríkisútvarpinu. Maðurinn krafðist bæði miskabóta vegna ærumeiðinga og ómerkingu ummæla sem féllu í Kastljósi árið 2015, um meinta refsiverða háttsemi hans í garð fyrrum eiginkonu hans og barna. Dómstóllinn komst að þeirri niðustöðu vinnubrögð hefðu verið fagleg og teldust til góðra starfshátta.Umæli í samhengi við umræðu Landsréttur...
SkoðunKolbeinn ÞorsteinssonFjölmiðlarýni: „Einfalt mál að níða skóinn af fyrrverandi vinnufélögum“11. desember 2021 Fjölmiðlar hafa um margt breyst undanfarna áratugi. Dagblöðum hefur fækkað, útgáfudögum þeirra fækkað og síðast en ekki síst hefur lesendum þeirra fækkað með hverju árinu sem líður. Þeir sem enn lesa dagblöð eru deyjandi hópur, risaeðlur í nútímanum. Enda er staðreynd að fjölmiðlar berjast í bökkum fjárhagslega og standa svo höllum fæti að ríkið ákvað að hlaupa undir bagga. Hér...
InnlentLandbúnaðarráðherra Mannlífs með Guðna Ágústssyni: „Þar sem tveir menn koma saman“3. desember 2021 „Þetta er spennandi verkfæri og tækifæri til þess að lyfta íslenskum landbúnaði,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, sem er að byrja með hlaðvarpsseríu hjá Mannlífi. Þáttaröðin heitir Landbúnaðarráðherra Mannlífs. Guðni mun einbeita sér að viðmælendum sem tengjast landbúnaði og framtíð sveitanna. Það mætti orða það sem svo að „Þar sem tveir menn koma saman, þar er hlaðvarp“. „Störf bóndans, landbúnaðurinn...
SkoðunSvanur Már SnorrasonSigurður Þór Óskarsson – Stjarnan í Ófærð 327. nóvember 2021 Eins og meginþorri þjóðarinnar hef ég fylgst með þáttunum Ófærð eftir Baltasar Kormák. Mjög góðir þættir. Og með hverri seríu er Baltasar að gera betur en síðast. Þættirnir eru fagmannlega unnir í alla staði og hér er um atvinnumennsku að ræða; landslið kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar Íslands. Hvort þættirnir dragi að einhverju leyti upp raunsæjan veruleika þeirra vitfirringa sem þetta hálfóbyggilega...
InnlentYfirlýsing eigenda Sólartúns: Falsfrétt frá Kristjóni Kormáki13. nóvember 2021 Vefmiðillinn 24.is heldur því ranglega fram í fréttaúttekt sinni í gær að Trausti Hafsteinsson, fréttastjóri Mannlífs, sé ekki lengur í hluthafahópi Sólartúns, sem gefur út Mannlíf, Vín og mat og fleiri miðla. Mikil aukning hefur verið í útgáfunni undanfarið. „Reynir og Trausti keyptu Mannlíf í febrúar 2020 í gegnum einkahlutafélagið Sólartún. Trausti átti 25% hlut á móti 75% hlut Reynis....
InnlentGuðmundur: „Vandræðalegt hvernig RÚV lætur sölumenn vonlausra hugmynda nota sig sem gjallarhorn“12. nóvember 2021 Guðmundur Hörður Guðmundsson fyrrverandi blaðamaður og núverandi kynningar- og vefstjóri hjá H.Í. sendir RÚV tóninn: „Ég velti stundum fyrir mér hvort fjölmiðlafólk læri ekki af reynslunni. Hér er mættur maður sem hefur haldið uppi nokkrum delluhugmyndum á lofti í fjölmiðlum, t.d. olíuhreinsistöð á Vestfjörðum og hafnargerð í Finnafirði,“ segir Guðmundur Hörður og á þar við Hafstein Helgason verkfræðing hjá Eflu...