Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

RuPaul og ég: Hvernig dragdrottning breytti gæðastundum með dóttur minni

RuPaul og ég: Hvernig dragdrottning breytti gæðastundum með dóttur minni

Á meðan flestir kúra um þessar mundir uppi í sófa  við að horfa á Netflix-þætti á borð við Titans, The Witcher, Money Heist eða nýju Tiger King-þátta­röð­ina, vel ég mér allt öðru­vísi sjón­varps­efni til að kúra yfir. Ég er fastur yfir raun­veru­leika­þáttum um dragdrottn­ingar.

Ég og 11 ára dóttir mín duttum inn á RuPaul´s Drag Race fyrr á árinu og getum bara ekki hætt. Og skyldi engan undra. Þætt­irnir eru vissu­lega raun­veru­leika­þættir sem fylgja týpískri for­múlu þar sem þátt­tak­endur keppa um hylli dóm­ara og svo helt­ist einn og einn úr lest­inni, en þeir eru bara svo miklu meira en það.

Til að byrja með er þátt­ar­stjórn­and­inn RuPaul drep­fynd­inn en hann gerir ekki ein­ungis grín að sjálfum sér og þætt­inum heldur er hann orð­hepp­inn með ein­dæmum. Ótelj­andi frasar hafa fæðst í þátt­unum sem við feðginin notum óspart. Frasar á borð við „hall­elu!“, „All Tea, all shade“ „Miss Vaaaanjie… Miss Vaaaaaaanjie… Miss Vaaaaaaaanjie“ og svo lang­lokan „If You Can’t Love Yourself, How The Hell Are You Going To Love Somebody Else? Can I Get An Amen?“

En húmor­inn er ekki það eina sem gerir RuPaul´s Drag Race-þætt­ina svo góða því þeir eru mun dýpri en þeir virð­ast vera og lúmsk sam­fé­lags­á­deila kraumar rétt undir yfir­borð­inu. Fyrir utan það hversu góða inn­sýn þátt­ur­inn veitir manni í heim þessa skemmti­lega list­forms þá ger­ist það í hverri ein­ustu seríu, sem verða bráðum 14 tals­ins, að sam­kyn­hneigðir karl­menn, sem keppa um að verða næsta súper­stjarna drag­heims­ins, opna sig um erf­ið­leika sem litað hafa líf þeirra í „þjóð­fé­lagi sem hatar þá,“ svo ég vitni í Bubba Morthens. Ég veit að amer­ískir raun­veru­leika­þættir ganga að miklu leyti út á grát og gnístran tanna en þátt­tak­endur RuPaul gráta engum krókó­díl­stárum. Þar liggur raun­veru­leg sorg undir, alvöru áföll, útskúfun og bæl­ing á hvötum. Þetta eru ekki með­limir Kar­dashian-fjöl­skyld­unnar að snýta sér í 100 doll­ara seðla af því að könguló slapp inn í vill­una þeirra. Nei, þetta eru oft strákar sem hafa verið útskúf­aðir, stundum af fjöl­skyld­unni, oft af sam­fé­lag­inu en hafa fundið nýja fjöl­skyldu í drag­heim­inum.

RuPaul er stundum kall­aður Mama Ru af þátt­tak­endum því hann er vanur að taka utan um þá sem brotna saman og hjálpa þeim að kom­ast yfir van­líð­an­ina og býður þá oft vel­komna í fjöl­skyldu sína.

Þátt­ur­inn er til­val­inn fjöl­skyldu­þáttur þrátt fyrir að vera mjög tví­ræður (krakkar fatta það ekki og við full­orðnu hlæjum inni í okkur) því hvað er betra ef maður vill ala upp for­dóma­laus og sam­úð­ar­full börn en að horfa á þátt um hæðir og lægðir dragdrottn­inga? Fátt að mínu mati.

Dóttir mín, Valería Dögg, elskar þætt­ina meira en ég. Hún er það mik­ill aðdá­andi að víd­eó­kvöldin okkar um helgar hafa breyst í RuPaul-kvöld og hún ætlar að nefna kett­ling sem hún á von á að fá í höf­uðið á upp­á­halds­dragdrottn­ing­unni sinni, Alaska. Alaska heitir reyndar fullu nafni Alaska Thunderfuck en kett­ling­ur­inn mun bara heita Alaska (en með amer­ískum hreimi). Ef hann reynd­ist fress myndi hann hljóta nafnið Bob the Dragqueen eftir öðru eft­ir­læti hennar.

RuPaul Andre Charles

Sumir hafa kannski tekið eftir því að ég nota per­sónu­for­nafnið hans þegar ég tala um RuPaul en sjálfum er honum sama. „You can call me he. You can call me she. You can call me Regis and Kathie Lee; I don’t care!“

Til gam­ans má geta þess í lokin að sam­kvæmt þess­ari síðu er drag­nafnið mitt Mrs. Backroll Beaverhousen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð