Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Verbúðin: „Átök um verðmæti í íslensku þjóðfélagi“

Verbúðin: „Átök um verðmæti í íslensku þjóðfélagi“

Ögmundur Jónasson ræðir um kjara­bar­áttu og verk­föll níunda ára­tug­ar­ins á Íslandi í hlað­varp­inu Með Ver­búð­ina á heil­anum. Rætt er við hann í hlað­varp­inu Með Ver­búð­ina á heil­anum, þar sem rýnt er í sjón­varps­þætt­ina og sögu­legt sam­hengi þeirra.

Ögmundur Jónasson, sem ásamt öðrum fór mik­inn í bar­áttu fyrir rétt­indum verka­fólks þegar landið log­aði verk­föllum á níunda ára­tugnum, leggur dóm sinn yfir annan þátt Ver­búð­ar­innar.

„Það log­aði allt í verk­föllum, það var óða­verð­bólga og stöðugt verið að fikta í geng­inu með það fyrir augum að tryggja hags­muni útgerð­ar­innar,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi alþing­is­maður og ráð­herra, um níunda ára­tug­inn á Íslandi.

Hann þekkir kjara­bar­áttu ára­tug­ar­ins og áhrifin sem hún hafði á íslenskt þjóð­fé­lag vel. Á þeim tíma starf­aði hann sem frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu, var þar for­maður starfs­manna­fé­lags­ins og síðar for­maður BSRB árið 1988.

„Á þessum ára­tug lék allt á reiði­skjálfi, það voru átök um það hvernig ætti að skipta verð­mætum í þjóð­fé­lag­inu.“

Svakalegasta verkfall á Íslandi

Í öðrum þætti Ver­búð­ar­innar er sýnt frá verk­falli, sem setur allt á ís í bænum, nema ekki fisk­inn. Jón Hjalta­lín er mættur á þing messar yfir Alþingi um verð­bólgu, skort á rétt­indum fólks í ver­búð og að sjó­manna­verk­fallið sé að lama sam­fé­lagið.

Í þætt­inum sést glitta í átökin, hit­ann og fun­ann sem var í þjóð­fé­lag­inu á þessum tíma, segir Ögmundur, og sú mynd sem er dreg­inn upp sé trú­verðug. Það var skrúfað fyrir allt.

„Þetta er trú­verð­ugt hvað varðar hina félags­legu umgjörð. Það er ekki nokkur ein­asti vafi á því. Útgangs­punkt­ur­inn er 1984 og vísað í svaka­leg­asta verk­fall sem hér hefur verið háð, þar sem opin­berir starfs­menn BSRB nán­ast lok­uðu land­inu, leik­skól­arnir voru lok­aðir, sjúkra­húsin störf­uðu ekki sem venju­bundið var og það var ekki landað úr milli­landa­skipum, þannig að búð­irnar tæmd­ust smám saman. Gár­ung­arnir sögðu að þegar kló­sett­papp­ír­inn tæmd­ist úr hill­unum og sígar­ett­urnar að sama skapi, þá hillti undir neyð­ar­á­stand.“

Fjórum dögum áður en form­legt verk­fall hófst, 4. októ­ber, höfðu starfs­menn Rík­is­út­varps­ins lagt niður vinnu vegna þess að þeir fengu ekki greidd laun 1. októ­ber. Það varð til þess að það slokkn­aði á útvarp­inu og sjón­varp­inu á sama tíma og engin blöð komu út.

„Þá er allt hljótt, því Rík­is­út­varpið hafði ein­okun á öldum ljós­vakans. Þegar þetta tvennt kemur saman, blað­laust land og hljótt á ljós­vak­anum, þá er landið alveg dautt, hvað fjöl­miðl­un­ina snertir. Við sem störf­uðum í sjón­varp­inu og útvarp­inu, þegar við fengum ekki útborgað sem skyldi, þá lok­uðum við stofn­un­inni.“

Starfsmenn Ríkisútvarpsins kærðir

Óbil­girnin blakti við á öllum víg­stöðvum segir Ögmundur, þeir sem voru í for­svari fyrir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins voru kærðir og kærunni fylgdi krafa um fang­elsun. Aðilar vildu ögra hvor öðrum og gripið var til ýmissa ráða.

„Það var skrúfað fyrir heita vatnið hjá ýmsum ráða­mönnum og aðeins gert við síma­töfl­una hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Valhöll, svo þeir fengu bara sam­band við tann­lækna­stofur og útfar­ar­þjón­ustur.“

Í þætt­inum eru Harpa og Grímur milli steins og sleggju, að standa með sínu fólki eða laum­ast út á sjó til að geta borgað af tog­ar­anum.

„Þegar við skoðum sam­fé­lagið á þessum tíma, Í þessum hild­ar­leik öllum, sjáum við útgerð­ar­mann­inn, við sjáum for­svars­fólkið í bæj­ar­fé­lag­inu sem vill halda lífi þar. Við höldum með þeim öllum, þau eru öll að berj­ast fyrir góðan og verð­ugan mál­stað. Allir vilja vel, þegar allt kemur til alls. Það sem hins vegar er að ger­ast, er að við sjáum mammon læð­ast inn í þessa til­veru og það verður fróð­legt að fylgj­ast með mammon í kom­andi þáttum.“

Sjá einnig: Íslenska sjón­a­varps­þátta­röðin Verbúðir: „Við bíðum bara spennt eftir Twitter“

Sjá einnig: Verbúð Krist­jáns Þórs

Sjá einnig: Ásmundur hundsvekktur meðan Gunnar Smári vill meira af Verbúð

Sjá einnig: Ásmundur og nekt­ar­dans­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina