InnlentCovid-19Þjóðin þakkar fyrir sig og klappar fyrir heilbrigðisstarfsfólki20. mars 2020 Heilbrigðisstarfsfólk landsins hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur í kjölfar útbreiðslu COVID-19 kórónuveirufaraldursins hér á landi. Í kvöld klukkan 19 voru íslendingar hvattir til að taka sér önnur lönd til fyrirmyndar, stíga út og klappa fyrir heilbrigðisstarfsfólki og þakka þeim þannig fyrir óeigingjarna vinnu þeirra. Þar sem samkomubann er í gildi og töluverður fjöldi fólks sætir sóttkví var fólk til...
InnlentCovid-19Hanna Katrín og Ragnhildur í sóttkví: „Móðir mín í kví, kví“20. mars 2020 Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, og eiginkona hennar, Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi og sérfræðingur í samskiptum hjá Landsvirkjun, eru komnar í sóttkví.
Innlent„Alma er áræðin, samanber þegar hún gerðist þyrlulæknir“20. mars 2020 Alma Dagbjört Möller landlæknir er ein þeirra sem staðið hefur í eldlínunni undanfarnar vikur vegna útbreiðslu COVID-19 kórónuveirunnar hér á landi. Þríeykið, Alma, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafa nær daglega setið upplýsingafundi, þar sem þau hafa svarað spurningum blaðamanna af yfirvegun og öryggi.
Innlent„Enginn hjálpaði eða skeytti um lítinn dreng sem var að reyna að reisa föður sinn á fætur“20. mars 2020 Gunnar Smári Egilsson gerir upp feril sem ritstjóri, útgefandi, stórforstjóri og loks stjórnmálaforingi öreiganna. Barnæskan mótaðist af alkóhólisma föður hans. Glímdi sjálfur við áfengisfíkn. Stofnaði Fréttablaðið sem græddi á óbeit Davíðs Oddssonar. Úthrópaður vegna Fréttatímans. Fékk hvergi vinnu. Þóttist hafa dreymt föður Sólveigar Önnu til að fá hana í framboð í Eflingu. Sósíalistaflokkurinn á sigurbraut. Þingmennskan heillar ekki. Uppgjör Gunnars Smára.
InnlentCovid-19Engin Skíðavika á Ísafirði um páskana19. mars 2020 Hinni árlegu Skíðaviku á Ísafirði um páskana hefur verið formlega aflýst í samræmi við samkomubann stjórnvalda. Í tilkynningu frá Skíðavikustjóra, Önnu Sigríði Ólafsdóttur, segir að ekkert verði af frekari markaðssetningu Skíðavikunnar í ár og ekki unnið að því að stefna fólki inn á svæðið um páskana. Á vef Bæjarins besta kemur fram að Skíðavikan hafi tekið miklum breytingum frá því...
InnlentCovid-19Lyfjafræðingur með snjóskóflu ber út lyf19. mars 2020 Hvergerðingar njóta heimsendingarþjónustu sjálfboðaliðans Hjördísar Bjarkar sem færir fólki lyf og mokar snjó frá dyrum ef þarf. „Mér finnst ekki annað en sjálfsagt að hjálpa fólki. Mig munar ekki mikið um að skutla lyfjum heim til fólks eftir vinnu,” segir Hjördís Björk Ólafsdóttir, lyfjafræðingur hjá Apótekaranum í Hveragerði, sem býður fólki að færa þeim lyf heim. Hjördís Björk setti tilkynningu...
InnlentCovid-19Svali lýsir ástandinu á Tenerife: Vopnaðir hermenn reka fólk inn17. mars 2020 Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er best þekktur, lýsir ástandinu á Tenerife sem mjög furðulegu svo vægt sé til orða tekið, en þar er nú þriðji dagur í útgöngubanni. Segir Svali nýjar fréttir birtast daglega og fullkomin óvissa ríki um framhaldið.
Heimur„Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum“15. mars 2020 Nokkur ummæli sem voru látin falla í vikunni. „Það er komin kreppa. Hún verður sú dýpsta frá hruni og allt annars eðlis en það sem við höfum undirbúið okkur fyrir.“ – Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. „Það gerir ekki lítið úr neyð Íslendinga að hjálpa útlendingum.“ – Séra Davíð Þór Jónsson skrifar svo í pistli sem hann deilir á Facebook...
InnlentCovid-19Slapp frá Ítalíu á síðustu stundu15. mars 2020 Óperusöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson fékk á laugardagskvöldið símtal um að hann yrði fastur á Ítalíu í mánuð, ef hann kæmi sér ekki í burtu í snatri.
InnlentSjúkást í þriðja sinn: „Það er ekkert að því að spyrja, það er bara kjút“15. mars 2020 Sjúkást átak Stígamóta er nú hafið þriðja árið í röð, en því er sérstaklega beint að ungu fólki. Umfjöllunarefnið er heilbrigt kynlíf, eðlileg samskipti, klám, ýmsar ranghugmyndir sem eru á sveimi og mikilvægi þess að skoða, þekkja, njóta, elska – og umfram ALLT – tala saman. Átakinu fylgja þrjú myndbönd sem unnin voru af Pipar/TBWA, í þeim koma nokkur ungmenni... Myndband
HeimurCovid-19Sophie með veiruna – Hjónin í einangrun13. mars 2020 Sophie Grégoire Trudeau, eiginkona Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með COVID-19. Þetta kom fram í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra í nótt. Þar kom fram að Sophie líði ágætlega. Fyrr um daginn hafði Justin Trudeau greint frá því að þau hjón og börnin þeirra þrjú væri í sóttkví og biðu eftir niðurstöðum rannsókna. Sjálfur hefur hann ekki fundið fyrir neinum...
HeimurMax von Sydow látinn9. mars 2020 Sænski leikarinn Max von Sydow er látinn, 90 ára að aldri. Hann var einn þekktasti leikari Norðurlandanna í áratugi og lék meðal annars í The Seventh Seal (1957), The Exorcist (1973) og Star Wars: The Force Awakens (2015), Three Days of the Condor (1975) , Dune (1984), Minority Report (2002) og Shutter Island (2010), til að nefna örfá af hlutverkum...