Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Slapp frá Ítalíu á síðustu stundu

Óperu­söngv­ar­inn Bjarni Thor Krist­ins­son fékk á laug­ar­dags­kvöldið sím­tal um að hann yrði fastur á Ítalíu í mánuð, ef hann kæmi sér ekki í burtu í snatri.

Slapp frá Ítalíu á síðustu stundu
Mynd / Bernhard Kristinn

„Ég hef senni­lega slegið per­sónu­legt met í að pakka,“ segir óperu­söngv­ar­inn Bjarni Thor Krist­ins­son, sem um helg­ina slapp naum­lega út af svæði sem til stóð að loka á Ítalíu vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Bjarni, sem hafði verið við æfingar í borg­inni Parma í þrjár vikur, pakk­aði öllu sínu dóti í tösku á fjórum til fimm mín­útum og hrað­aði sér út á lest­ar­stöð, þaðan sem hann komst til borg­ar­innar Bologna, sem var utan þess svæðis sem lokað var um helg­ina. Hann er nú kom­inn heim og er ein­kenna­laus í sjálf­skip­aðri sótt­kví.

Til stóð að frum­sýna verkið Pelléas et Mélisande eftir Debussy á morgun, laug­ar­dag­inn 14. mars í hinu forn­fræga óperu­húsi Teatro Regio í borg­inni Parma. Fyrir vikið var farið að stytt­ast mjög í æfinga­tíma­bil­inu og sýn­ingin nán­ast til­búin. Bjarni segir að þegar hann hafi komið til Ítalíu, fyrir bráðum fjórum vikum, hafi vel verið fylgst með öllum þeim komu til lands­ins. Ólíkt því sem hann upp­lifði í Þýska­landi, þaðan sem hann fór til Ítalíu, voru allir gestir hita­mældir við kom­una til lands­ins. „Það var talað um að ekk­ert ríki í Evrópu pass­aði betur upp á veikt fólk kæmi ekki til lands­ins.“ Veiran var lítið farin að breið­ast út á þessum tíma.

Samkomu- og nálægðarbönn

Bjarni segir að þegar fyrstu smit komu fram á Ítalíu hafi allir sem að óper­unni komu látið sér fátt um finn­ast. Fáeinum dögum síðar hafi fyrsta smitið greinst í Parma. Þá hafi runnið upp fyrir honum að þetta gæti valdið vand­ræðum hvað sýn­ing­una varð­aði. „Maður sá að þetta varð alltaf meira og meira og staðan varð ljós­ari. Fyrr en varði voru menn farnir að ræða um sam­komu­bann,“ útskýrir Bjarni. Hann bendir á að söngv­arar séu samn­ings­bundnir óperu­húsum og geti ekki látið sig hverfa þegar þeim sýn­ist svo. „Sú stemn­ing var heldur ekki ríkj­andi.“

Fljót­lega var farið að tala um að sýn­ing­unum yrði hugs­an­lega aflýst vegna útbreiðslu veirunnar. „Svo var það fyrstu vik­una núna í mars sem sam­komu­bann tók gildi á þessu svæði sem við vorum á,“ segir Bjarni. Óperu­húsið hafi hins vegar ákveðið að halda áfram með æfing­arnar, upp á von og óvon. „Svo komu reglur sem sögðu að eng­inn mætti vera nær öðrum en einum metra. Síðan kom í ljós að hljóm­sveitin væri of stór fyrir hljóm­sveit­ar­gryfj­una.“ Þá voru góð ráð dýr.

Bjarni segir að um tíma hafi staðið til að streyma sýn­ing­unni á Netinu en segir að það hefði þá þurft að ger­ast án 70 manna hljóm­sveitar. Rætt hafi verið um að nota píanó í stað­inn en síð­ustu æfing­arnar, áður en öllu var lokað, voru einmitt aðeins með píanói. Hljóm­sveitin mátti ekki æfa vegna nálægðar.

„Ég tók engan séns“

Það var eftir eina slíka æfingu, síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, sem sím­inn hringdi hjá Bjarna, sem slak­aði á í íbúð sinni. Klukkan var um níu að kvöldi. Umboðs­mað­ur­inn var á lín­unni. „Hann sagði mér að óperu­húsið hefði verið að hafa sam­band við alla umboðs­menn og söngv­ara um að setja ætti borg­ina og stórt svæði í kring í sótt­kví í heilan mánuð. Þeir sem gætu og vildu ættu að yfir­gefa borg­ina í snatri  á meðan það væri lög­legt.“

„Ég tók engan séns. Ég hafði verið að þvo föt fyrr um dag­inn og ég henti þeim öllum ofan í tösku – renn­blautum.“

Bjarni lét ekki segja sér þetta tvisvar. „Ég tók engan séns. Ég hafði verið að þvo föt fyrr um dag­inn og ég henti þeim öllum ofan í tösku – renn­blautum. Ég pakk­aði öllu mínu dóti á fjórum til fimm mín­útum og flýtti mér á lest­ar­stöð­ina upp á von og óvon,“ segir Bjarni um næstu mín­útur. Úr varð að hann komst inn í lest sem var á leið til Bologna, sem var utan lok­un­ar­svæð­is­ins. „Braut­ar­pall­arnir fyllt­ust smám saman eftir því sem tím­inn leið. Það var samt ekki komið eitt­hvert panikk. Þeir félagar mínir sem fóru úr borg­inni seinna töl­uðu um að það hefði verið tölu­vert upp­nám þá,“ segir Bjarni.

Hann segir að óvissan, frá því sím­talið barst honum og þangað til hann var kom­inn út fyrir lok­un­ar­svæðið, hafi verið óþægi­legt. „Við vissum ekk­ert. Þetta var klukku­tíma ferða­lag með lest­inni, sem stopp­aði í þremur borgum innan lok­aða svæð­is­ins á leið­inni. Við sam­ferða­maður minn vissum ekki hvort til­kynnt yrði um að lestin færi ekki lengra,“ segir hann um upp­lifun­ina.

Flug­far­þegi frá Mílanó á Ítalíu hita­mældur á flug­velli í Ung­verja­landi. Mynd /EPA

Ef sím­talið hefði ekki borist Bjarna í tæka tíð þá hefði hann lok­ast inn í land­inu í heilan. „Ég hefði þurft að finna mér íbúð hér úti til að leigja í heilan mánuð,“ segir Bjarni. Það hefði líka verið óþægi­leg til­finn­ing ef hann hefði veikst á Ítalíu, fjarri vinum og ætt­ingjum.

Mikið högg fyrir innkomu verktaka

Óperu­söngv­arar í lausa­mennsku eru iðu­lega verk­takar og fá fyrst og fremst greitt fyrir sýn­ingar, en lítið eða ekk­ert fyrir æfinga­tíma­bil. Það að ákveðið hafi verið að aflýsa tveimur sýn­ingum í Parma væri mik­ill fjár­hags­legur skellur fyrir Bjarna ef óperu­húsið hefði ekki gefið það út að til stæði að greiða fólki samt. „Við sem erum verk­takar fáum engar bætur ef sýn­ingar falla niður. Þetta er gíf­ur­legur tekju­missir sem við verðum fyrir og hann er auð­vitað alvar­legur fyrir okkur. En sem betur fer er stefnt að því að við fáum greitt fyrir þessa vinnu á Ítalíu, þó að það verði ekki sýnt.“ Hann segir að til standi að halda tvær sýn­ingar á þessu sama verk­efni í Piacenza á Ítalíu í apríl auk þess sem fram undan séu hjá honum verk­efni í Þýska­landi í maí og Tókýó í júní. Mikil óvissa sé uppi um þessi verk­efni, eins og gefur að skilja. „Eins og hjá mörgum þá getur þetta orðið þungt högg fyrir inn­kom­una,“ útskýrir Bjarni.

Frá Bologna flaug Bjarni til London. Hann segir aðspurður að þar hafi eng­inn við­bún­aður verið, þó að vélin væri full af fólki frá svæði á Ítalíu sem var mjög nálægt skil­greindu hættu­svæði. Frá London flaug hann með Wissair til Íslands. Um borð í þeirri vél voru engar ráð­staf­anir gerðar til að bregð­ast við hugs­an­legu smiti. „Maður gat hvergi keypt grímu eða sótt­hreinsi­búnað. Maður reyndi bara að vera skyn­samur,“ segir hann og bætir við að hann hafi per­sónu­lega ekki miklar áhyggjur af því að veikj­ast. „En auð­vitað vill maður ekki eiga þátt í því að þessi veira ber­ist eitt­hvað lengra. Þetta ástand höfðar til ábyrgð­ar­til­finn­ingar hjá manni.“ Hann lýsir því að Íslend­ingar virð­ast taka við­vör­unum yfir­valda alvar­legar en Ítalir. Á Ítalíu hafi hann litla breyt­ingu séð á hegðun fólks. Þar ríki ef til vill ekki sama traustið í garð stjórn­valda og hér.

Bjarni Thor í hlut­verki blinda kóng­ins Arkel.

Bjarni skráði sig hjá Almanna­vörnum við kom­una til lands­ins og fór í sjálf­skip­aða sótt­kví. „Konan fyllti ísskáp­inn og flutti út áður en ég kom,“ útskýrir Bjarni. Hann ber sig vel í ein­angr­un­inni. „Við sem erum í þessu starfi erum oft ein að ferð­ast um heim­inn og erum vön ein­ver­unni. Ég er fyrst og fremst þakk­látur fyrir að vera heima, inni á mínu heim­ili og með fjöl­skyldu og vini skammt undan. Ég var hepp­inn að kom­ast heim í tæka tíð og lok­ast ekki inni. Þetta kennir manni að maður veit aldrei hvað fram­tíðin ber í skauti sér,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ