InnlentCovid-19Eitt smit í 877 sýnum7. apríl 2020 Staðfest COVID-19 smit hér á landi eru orðin 1.586 talsins samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 24 á síðasta sólarhring. 235 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, 23 reyndust jákvæð. Þá voru 877 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, eitt þeirra var jákvætt. Alls eru nú 4.407 einstaklingar í sóttkví hér...
InnlentCovid-19Áhrif COVID-19 á börn: Almennt í minnihluta smitaðra og almennt minna veik ef þau smitast6. apríl 2020 Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir á Landspítala, flytur hér snarpan hálftíma langan fyrirlestur um COVID-19 og börn. Fyrirlesturinn er nokkuð fræðilegur, en þó afskaplega forvitnilegur fyrir lærða sem leika og á því fullt erindi út fyrir veggi Landspítala. Fyrirlesturinn var birtur á Facebook-síðu LSH í dag, en í honum kemur fram að börn eru almennt í minnihluta smitaðra, almennt minna veik...
InnlentCovid-19Hvetja starfsfólk sitt sem getur til að skrá sig í bakvarðasveitina6. apríl 2020 Starfsfólk Arion Banka sem hefur viðeigandi menntun hefur verið hvatt til að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Starfsfólk er áfram á fullum launum hjá bankanum á meðan það leggur sitt af mörkum innan heilbrigðiskerfisins. Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka, staðfestir þetta í samtali við Mannlíf. Hún segir bankann hafa fyrir helgi hvatt starfsfólk bankans sem hefur heilbrigðismenntun að...
InnlentCovid-19Krabbameinið undirbúningur fyrir COVID-196. apríl 2020 Uppistandarinn og fjölmiðlakonan Ingibjörg Rósa segir margt líkt með þeirri upplifun sem fólk gengur í gegnum núna í tengslum við kórónuveiruna og því að greinast með krabbamein. Sjálf greindist hún með brjóstakrabbamein fyrir rúmu ári og segir baráttuna við sjúkdóminn hafa verið góðan skóla fyrir ástandið núna. Ingibjörg Rósa er búsett í Edinborg, þar sem íbúarnir eru í útgöngubanni vegna...
HeimurCOVID-19 hefur dregið yfir 13.000 manns til dauða á Spáni6. apríl 2020 Dregið hefur úr dauðsföllum af völdum COVID-19 á Spáni. Undanfarinn sólarhring hafa 637 manns látst á Spáni af völdum kórónaveirunnar COVID-19. Er þetta fjórði dagurinn í röð þar í landi sem dregið hefur úr dauðsföllum sem rekja má til veirunnar skæðu. Að sama skapi fjölgar minna í hópi smitaðra. Fréttastofan AFP greindi nýverið frá því að í Evrópu hafi meira...
InnlentCovid-19Hjúkrunarfræðingar og ríkið funda í dag6. apríl 2020 Fundur hjúkrunarfræðinga og ríkisins fer fram klukkan hálfellefu í dag hjá ríkissáttasemjara, en síðasti formlegi fundur aðila var 24. mars. Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir við RÚV að einhverjir óformlegir fundir hafi verið síðustu daga, og er hann vongóður um að fundurinn í dag beri árangur í deilu aðila. Kjarasamningar hjúkrunarfræðinga hafa nú verið lausir í ár, en laun þeirra og...
InnlentCovid-19Sigurður lést vegna COVID-19 – Missti eiginkonu sína í mars5. apríl 2020 Sigurður Sverrisson lést á Landspítalanum í Fossvogi í dag vegna COVID-19 kórónuveirunnar, 67 ára að aldri. Fréttablaðið greinir frá að Sigurður hafi barist við sjúkdóminn undanfarnar vikur og hafi sú barátta verið afar hörð. Allt útlit var fyrir að Sigurður myndi hafa betur í baráttunni, hann var tekinn af öndunarvél fyrir helgi og virtust horfurnar vera að batna. Sjúkdómurinn ágerðist...
HeimurLandlæknir Skotlands segir af sér vegna brots á útgöngubanni5. apríl 2020 Catherine Calderwood landlæknir Skotlands sagði sig úr embætti í dag nokkrum klukkustundum eftir að Nicola Sturgeon forsætisráðherra landsins sagði að Calderwood myndi áfram veita skosku ríkisstjórninni ráðleggingar hvað kórónuveirufaraldurinn varðar. Sturgeon sagði að Calderwood myndi ekki koma fram á fjölmiðlafundum og að opinber upplýsingaherferð sem hún væri hluti af myndi vera tekin úr kynningu Skoska ríkisstjórin hefur staðfest við miðilinn...
HeimurBoris Johnson lagður inn á sjúkrahús5. apríl 2020 Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hefur verið lagður inn á sjúkrahús til rannsókna, en tíu dagar eru síðan hann greindist með COVID-19 kórónaveiruna. Johnson var lagður inn nú í kvöld samkvæmt læknisráði, eins og segir í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra. Johnson hefur sinnt störfum sínum heiman frá sér að Downingsstræti 10 frá því að hann greindist. Sjá einnig: Boris Johnson greinist...
InnlentStríðið á sjúkrahúsinu5. apríl 2020 Ósætti hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokkurt skeið. Spjótin beinast að Arnþóri Jónssyni, formanni SÁÁ, og Þórarni Tyrfingssyni, fyrrverandi yfirlæknis og stjórnanda á Vogi, og eru þeir sakaðir um einelti í garð æðstu stjórnenda á Vogi. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi hætt klínísku starfi í maí 2017 og ekki unnið við meðferðina á stofnuninni síðan þá gegnir hann enn...
InnlentCovid-19Framlínan svarar spurningum barna og ungmenna um COVID-195. apríl 2020 Á þriðjudagskvöld fá börn og ungmenni orðið í sérstökum umræðuþætti um COVID-19 þar sem framlínan, ráðamenn og sérfræðingar svara þeirra spurningum og vangaveltum. Viðmælendur í þættinum verða Alma Möller landlæknir, Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Ólíkt fyrri umræðuþáttum um COVID-19 faraldurinn og öðrum þeim fjölmörgu viðtölum sem þessir forvígismenn hafa veitt munu allar spurningar...
InnlentCovid-19Hertar aðgerðir vegna COVID-19 á Suðureyri, Þingeyri, Flateyri og Súðavík5. apríl 2020 Í ljósi nýrra smitrakninga á norðanverðum Vestfjörðum hefur aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ákveðið að bregðast enn frekar við COVID-19 á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík með hertum aðgerðum, eins og hér greinir: Leik- og grunnskólum á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík verði lokað frá og með morgundeginum 6. apríl 2020. Þó skulu börn...