Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Framlínan svarar spurningum barna og ungmenna um COVID-19

Framlínan svarar spurningum barna og ungmenna um COVID-19
|

Á þriðju­dags­kvöld fá börn og ung­menni orðið í sér­stökum umræðu­þætti um COVID-19 þar sem fram­línan, ráða­menn og sér­fræð­ingar svara þeirra spurn­ingum og vanga­veltum.

Við­mæl­endur í þætt­inum verða Alma Möller land­læknir, Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra og Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Ólíkt fyrri umræðu­þáttum um COVID-19 far­ald­ur­inn og öðrum þeim fjöl­mörgu við­tölum sem þessir for­víg­is­menn hafa veitt munu allar spurn­ingar í þessum sér­staka umræðu­þætti koma frá unga fólk­inu. Þannig gefst þeim færi á að senda inn spurn­ingar sem fyrr í gegnum fyr­ir­spurn­ar­hnapp á ruv.is eða í gegnum net­fangið [email protected].

Einnig gefst unga fólk­inu færi á að bera upp lif­andi spurn­ingar með því að senda mynd­skila­boð, til að mynda í gegnum WeTransfer á sama net­fang, [email protected].

Auk áður­nefndra við­mæl­enda munu Salvör Nordal umboðs­maður barna og Margrét Birna Þór­ar­ins­dóttir barna­sál­fræð­ingur einnig svara aðkallandi spurn­ingum frá unga fólk­inu okkar, eftir því sem við á, spurn­ingum sem snúa ekki hvað síst að stöðu þeirra og líðan við þær aðstæður sem nú ríkja og þau þurfa að læra að fóta sig í, hin óvenju­lega sam­fé­lags­mynd sem blasir við þeim og allar þessar nýju og fram­andi áskor­an­irnar sem þau þurfa að takast á við.

Áhuga­verður umræðu­þáttur er framundan

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps, segir að heims­far­ald­ur­inn, áhyggjur, óvissa og brýnar vanga­veltur honum tengdar hvíli ekki síður á unga fólk­inu sem finni svo sann­ar­lega fyrir að þeim séu settar félags­legar og áður óþekktar skorður í dag­legu lífi.

„Með þessum þætti viljum við bjóða þeim inn í umræð­una og gefa þeim tæki­færi til fá svör við sínum spurn­ingum sem eru oft og tíðum allt aðrar en þær sem við full­orðna fólkið berum upp. Með þess­ari nálgun munum við von­andi fá mun betri inn­sýn í hvað liggur börnum og ung­mennum einna helst á hjarta á þessum mjög svo óvenju­legu og krefj­andi tímum.“

Það er margt sem hvílir á ung­mennum lands­ins þessa dag­ana ekki síst þau mál­efni sem heyra undir mennta­mála­ráðu­neytið því margir velta fyrir sér hvernig náms­mati verði háttað og hvort skól­inn komi til með að lengj­ast fram á sumar.

„Við höfum þegar fengið fjölda spurn­inga frá full­trúum Ung­menna­ráðs Samfés og ráð­gjafa­hópi umboðs­manns barna og í gegnum reglu­leg sam­skipti okkar við unga fólkið í gegnum Krakk­aRúv og UngRúv af miklum áhuga þeirra á því að fá að taka beinan þátt í þess­ari mik­il­vægu umræðu. Með þessum þætti tekst okkur von­andi að koma til móts við þær óskir en um leið varpa ennþá skýr­ara ljósi á umræð­una í heild, ekki bara unga fólk­inu til gagns heldur okkur öllum, þar með talið okkur full­orðna fólk­inu.“

COVID-19 þáttur unga fólks­ins verður á dag­skrá RÚV þriðju­dag­inn 7. apríl kl. 19.35. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins verða Ragn­hildur Steinunn Jóns­dóttir og Haf­steinn Vil­helms­son verk­efna­stjóri UngRúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina