Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Krabbameinið undirbúningur fyrir COVID-19

Krabbameinið undirbúningur fyrir COVID-19
|Ingi­björg Rósa.

Uppi­stand­ar­inn og fjöl­miðla­konan Ingi­björg Rósa segir margt líkt með þeirri upp­lifun sem fólk gengur í gegnum núna í tengslum við kór­ónu­veiruna og því að grein­ast með krabba­mein. Sjálf greind­ist hún með brjóstakrabba­mein fyrir rúmu ári og segir bar­átt­una við sjúk­dóm­inn hafa verið góðan skóla fyrir ástandið núna.

Ingi­björg Rósa er búsett í Edinborg, þar sem íbú­arnir eru í útgöngu­banni vegna COVID-19. Henni finnst við­brögðin á Íslandi við far­aldr­inum hafa verið yfir­veguð og ábyrg. Yfirvöld hafi staðið sig mjög vel í þeirri stöðu sem er komin upp, láti sér­fræð­ing­ana vinna sína vinnu og gæti þess að upp­lýsa fólkið í land­inu. Almenn­ingur sýni líka skyn­semi, taki upp­lýs­ingum og leið­bein­ingum alvar­lega en haldi samt ró sinni og tapi ekki gleð­inni.

Á tímum COVID-19 far­ald­urs­ins hefur gripið um sig mik­ill ótti í sam­fé­lag­inu, og ekki að ástæðu­lausu, veiran er skað­leg, í verstu til­vikum ban­væn. Uppi­stand­ar­inn og fjöl­miðla­konan Ingi­björg Rósa sem er búsett í Edinborg, fjarri ást­vinum sínum, er ein þeirra sem tekst á við aðstæð­urnar af æðru­leysi. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hún í raun vera furðu slök yfir ástand­inu en það megi lík­leg­ast rekja til þess að hún hafi gengið í gegnum svona krísu áður. Þótt þetta séu títt­nefndir „for­dæma­lausir” tímar þá sé nefni­lega margt líkt með þeirri upp­lifun sem fólk gengur í gegnum núna í tengslum við kór­ónu­veiruna og því þegar hún sjálf greind­ist með brjóstakrabba­mein fyrir rúmu ári síðan.

„Við höfum einmitt rætt þetta í spjall­hópum krabba­meins­greindra, hvernig við upp­lifum svip­aðar aðstæður og til­finn­ingar nú, en mun­ur­inn sé sá að við upp­lifum þetta ekki einar núna, heldur bók­staf­lega allir í kringum okkur líka, allt þjóð­fé­lagið,“ segir Ingi­björg Rósa. „Það sem ég á við er að það kemur allt í einu stórt inn­grip í þitt dag­lega líf. Þú missir stjórn­ina á aðstæðum og nán­ustu fram­tíð. Öll plön fara í vaskinn. Þú missir mögu­lega tekjur. Hefur áhyggjur af afkomu þinni. Og þú sérð fram á að eitt­hvað sem þú bauðst aldrei inn í líf þitt mun taka stóran bita af tíma þínum og orku í ein­hverja mán­uði, setja þér miklar hömlur og tak­marka frelsi þitt. Þú veist ekki alveg hvenær ástandið endar, eða hvernig og hvað tap­ast á leið­inni.“

„Þú missir stjórn­ina á aðstæðum og nán­ustu fram­tíð … Þú veist ekki alveg hvenær ástandið endar, eða hvernig og hvað tap­ast á leið­inni.“

Að hennar sögn er þetta nákvæm­lega sama óvissa og blasir við þegar fólk stendur frammi fyrir krabba­meins­grein­ingu sem þarf að bregð­ast við strax og með afdrifa­ríkum aðferðum. Allt sé gert til að bjarga fólki þannig að það fylgi ráð­legg­ing­unum og gangi sam­þykkt inn í „eitt­hvað furðu­tíma­bil“ í trausti þess að það sé því fyrir bestu, þótt undir niðri sé fólk ekki endi­lega sátt og upp­lifi kvíða, hræðslu, reiði, sorg og söknuð eftir því hvernig lífið var áður en þessar aðstæður komu upp, og sjái á eftir áætl­unum sem geta ekki ræst. Þetta sé einmitt það sem er að ger­ast núna þegar öll heims­byggðin er beðin um að hlíta til­mælum yfir­valda í von um að það vinni gegn útbreiðslu kór­óna­veirunnar.

Allir jafn sýklahræddir

Ingi­björg Rósa bendir á að almenn­ingur bregð­ist líka við og eins og fólk gerir sem fær krabba­meins­grein­ingu. Hún verði vör við ákveðið „panikk“í kringum sig og hún skilji full­kom­lega hvernig fólki líði. „Það er alls ekki eins og það hlakki í mér en ég get sagt við þetta fólk: „Nú skil­urðu kannski hvernig mér leið.” Því það skildu ekk­ert allir þá hvers vegna ég var ekki alltaf jákvæð, bjart­sýn og kát yfir því að krabba­meinið mitt var lækn­an­legt og bata­líkur góðar, og þessu sama fólki fannst dálítið auka­at­riði að ég þyrfti að fara í gegnum margra mán­aða með­ferð og eft­ir­með­ferðir sem hefðu bæði tíma­bundin og var­an­leg áhrif á líf mitt. Fólk telur öllu skipta að við lifum af, en síður það að hafa stjórn á eigin lífi, frelsi og getu til að gera það sem okkur langar til og önnur slík lífs­gæði.“

Hún segir að núna upp­lifi allir það að til að bjarga lífi sínu og lífs­háttum þurfi þeir tíma­bundið að gefa frá sér frelsi og lífs­gæði sem fæstir hafi kannski spáð mikið í áður. „Ein­angrun og sýkla­hræðsla er til dæmis eitt­hvað sem krabba­meins­greint fólk og aðrir á ónæm­is­bælandi með­ferð þekkir mjög vel. Ég sjálf lifi líf­inu mest­megnis eins og ég gerði stóran hluta árs­ins í fyrra, nú eru bara fleiri farnir lifa líf­inu eins og ég,“ segir hún og kveðst eig­in­lega vera fegin því að aðrir skuli líka vera farnir að spá í hvar sýklar geti leynst og að þeir séu hættir „að hósta í lófann og káfa með putt­unum á öllum fjár­anum.“

Óttast ekki smit

En er Ingi­björg í alvöru sjálf ekk­ert hrædd við ástandið? „Nei, í þeim skiln­ing að ég ótt­ast ekki um sjálfa mig. Ég á að vera komin með ágætt ónæm­is­kerfi aftur og lít ekki á mig í áhættu­hópi. Ég hef líka mjög góða reynslu af heil­brigð­is­kerf­inu hérna í Skotlandi og treysti því, og það þótt Skotar hafi verið aðeins kæru­laus­ari en Íslend­ingar þegar veiran skaut upp kolli hér. Ekki síst vegna þess að bresk yfir­völd tóku þetta ekki nógu föstum tökum frá byrjun, þannig að almenn­ingur gerði sér ekki grein fyrir alvar­leika máls­ins, ekki fyrr en yfir­völd neydd­ust til að setja á útgöngu­bann í síð­ustu viku. En þótt ég sé ekki hrædd um sjálfa mig, vil ég taka það fram að ég finn mikið til með þeim sem eru enn í krabba­meins­með­ferð og hef auð­vitað dálitlar áhyggjur af að mamma mín eða aðrir ber­skjald­aðir ætt­ingjar og vinir veik­ist. Maður hefur nátt­úr­lega alltaf mestar áhyggjur af vel­ferð sinna nán­ustu.“

Ingi­björg Rósa segir líka skipta höf­uð­máli að reyna að tækla ein­angr­un­ina sem margir upp­lifa núna. Nokkuð sem hún þekki vel eftir að hafa farið í gegnum krabba­meins­með­ferð fjarri ást­vinum sínum.

Allt í lagi að finna til reiði og sorgar

En hvað með þá sem eru nálum yfir ástand­inu, á Ingi­björg ein­hver ráð handa þeim? „Ef fólk vill fá ráð­legg­ingar og hug­hreyst­ingu getur hrein­lega reynst vel að tala við ein­hvern sem hefur gengið í gegnum krabba­meins­með­ferð,“ segir hún, „það er að segja ef við­kom­andi er örugg­lega búinn að jafna sig og til­bú­inn að gefa af sér eftir þá lífs­reynslu.

Að feng­inni reynslu ráð­legg ég ann­ars fólki að sleppa tak­inu og sætta sig við að hafa ekki stjórn á ákveðnum hlutum og ein­beita sér að því sem það þó getur haft stjórn á. Leyfa sér stundum að finna til sjálfs­vor­kunnar, reiði og sorgar. Nei­kvæðar til­finn­ingar eru eðli­legar og jafn­vel nauð­syn­legar og svo­lítil reiði getur meira að segja fyllt okkur eld­móði til að takast á við verk­efni. Ég setti mér til dæmis þá reglu að ef ég átti and­lega slæman dag, leyfði ég mér bara að taka hann alla leið, var á nátt­föt­unum á sóf­anum með Netflix og snýtu­bréf, borð­aði það sem mig lang­aði til og sagði vinum og vanda­mönnum að ég væri ekki til við­tals. En ég leyfði mér bara einn svona dag í einu, aldrei tvo daga í röð. Þá gat ég risið upp næsta morgun án sam­visku­bits, því ég hafði gefið sjálfri mér leyfi til að eiga slæman dag, og átt svo mun betri dag án þess að gera mikið. Bara það að fara í sturtu og klæða sig var þá strax mik­ill sigur og gaf mér orku til að nýta dag­inn vel og njóta.“

Ekki láta kvíðann ná yfirhöndinni

Ingi­björg Rósa segir líka skipta höf­uð­máli að reyna að tækla ein­angr­un­ina sem margir upp­lifa núna. Nokkuð sem hún þekki vel eftir að hafa farið í gegnum krabba­meins­með­ferð fjarri ást­vinum sínum. „Ég pass­aði mig til dæmis á að fá frískt loft og dags­birtu í and­litið á hverjum degi, jafn­vel þegar ég gat bara opnað glugg­ann við rúmið og lagt höf­uðið í glugga­kist­una,“ rifjar hún upp. „Þegar ég varð hress­ari fór ég að prófa sjálfs­efl­andi stöður á morgn­ana. Þá fór ég út í glugga á nátt­föt­unum og rak hnef­ana upp í loftið eins og sig­ur­veg­ari eða stóð gleið með hendur á mjöðmum, rétti and­litið móti birt­unni og hélt stöð­unni í um tvær mín­útur á meðan ég minnti sjálfa mig á hvað það væri frá­bært að sjá nýjan dag, hverju ég væri búin að áorka og að ég yrði að halda ótrauð áfram. Það hjálp­aði.“

Einnig sé mik­il­vægt að finna sér eitt­hvað að gera, annað en að hanga á sam­fé­lags­miðlum. „Til dæmis taka til, en muna þá að verð­launa sig inn á milli og gera svo eitt­hvað sem maður gleymir sér við en er samt örvandi fyrir hug­ann. Eins og að leggja kapal, spila orða­leik í sím­anum, leysa kross­gátu, teikna, lita, mála eða spila á hljóð­færi.“ Allt þetta þreyti mann meira en að horfa á tölvu­skjá eða sjón­varp og fyrir vikið sofi maður betur. Standi til að horfa á eitt­hvað sé gott að forð­ast alvar­legt efni og horfa frekar á létt­meti og grín.

„Við eigum erfitt með að sjá til lands núna, en það er samt þarna, gleymum því ekki.“

Hún segir líka áríð­andi að láta kvíða og hræðslu ekki ná tökum á sér, það hafi slæm áhrif á önd­un­ina sem geti leitt af sér enn meiri kvíða og streitu­á­stand í lík­am­anum. Tilvalið sé að taka nokkrar mín­útur á hverjum degi til að ein­beita sér að því að anda djúpt og yfir­vegað ofan í maga nokkrum sinnum. „Og að sjálf­sögðu er mik­il­vægt í miðju kvíða­kasti að ein­beita sér að því að anda og treysta því að geta andað. Ef ein­hvern tíma er tæki­færið til að prófa jóga og hug­leiðslu þá er það núna. Það róar hug­ann og drepur tím­ann.“

Bara tímabundið ástand

Ingi­björg Rósa und­ir­strikar að hún skilji mjög vel hvernig fólki líði. „Ekkert okkar valdi sjálft þessar aðstæður sem eru komnar upp núna, lífið verður aldrei aftur nákvæm­lega eins og það var og það er auð­vitað yfir­þyrm­andi til­hugsun. Hins vegar veit ég sem er að svona ógn­vekj­andi aðstæður, þær eru bara tíma­bundið ástand,“ segir hún með ríkri áherslu. „Við eigum erfitt með að sjá til lands núna, en það er samt þarna. Gleymum því ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina