Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Flokkur

Heilbrigðismál

Greinar

InnlentCovid-19

Fimm í sótt­kví og einn í ein­angrun á Ísafirði vegna COVID-19

Fimm ein­stak­lingar eru í sótt­kví og einn í ein­angrun vegna mögu­legrar COVID-19-sýk­ingar á Ísafirði. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða. Í færsl­unni segir að einni ein­angrun var aflétt í dag þar sem sýni var nei­kvætt. Nið­ur­staðna frá ein­stak­lingi í ein­angrun er að vænta seinna í dag. „Ákvörðun um sótt­kví og ein­angrun er tekin af umdæm­is­lækni sótt­varna hjá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða,...
InnlentCovid-19

Fyrsta til­felli kór­ónu­veirunn­ar í Danmörku

Fyrsta til­felli Covid-19-kór­óna­veirusmits hefur verið stað­fest í Danmörku. Sjúk­ling­ur­inn er maður sem var nýverið í skíða­ferð í Norður-Ítalíu. Hann sneri til baka til Dan­merkur 24. febr­úar er fram kemur í til­kynn­ingu danskra heil­brigð­is­yf­ir­valda. Maðurinn, Jakob Tage Ramlyng, starfar á sjón­varps­stöð­inni TV 2. Hann byrj­aði að finna fyrir ein­kennum Covid-19-smits í gær og leit­aði þá á háskóla­sjúkra­húsið í Sjálandi í Hró­arskeldu....
InnlentCovid-19

Mælir gegn ferða­lögum til Suður-Kóreu, Írans, Kína og fjög­urra hér­aða á Norður-Ítalíu

Ráð­legg­ingar til ferða­manna vegan kór­óna­veirunnar COVID-19 hafa nú verið upp­færðar. Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir ræður nú frá ónauð­syn­legum ferðum til Suður-Kóreu og Írans, auk Kína og fjög­urra hér­aða á Norður-Ítalíu. Þá er hvatt til sér­stakrar var­úðar þegar ferð­ast er til ann­arra svæða á Ítalíu, Tenerife á Spáni, Japans, Singapúr og Hong Kong. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu sem birt­ist á...
InnlentCovid-19

„Ekkert lyf til sem virkar beint á veiruna, ekki enn sem komið er“

„Ég held að þessi við­brögð, ekki bara hér heldur en um heim allan, beri þess merki um að heil­brigð­is­yf­ir­völd taki þessu alvar­lega,“ sagði Magnús Gott­freðs­son smit­sjúk­dóma­læknir í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun um við­brögð heil­brigð­is­yf­ir­valda víða um heim vegna útbreiðslu kór­óna­veirunnar COVID-19. Magnús segir enn þá mikla óvissu ríkja en að nýjar upp­lýs­ingar bæt­ist við á hverju degi sem...
InnlentCovid-19

Fleiri til­felli um Evrópu í kjöl­far útrbreiðslu á Ítalíu

COVID-19-kór­óna­veiran hefur breiðst hratt út und­an­farið á Ítalíu en þar hafa um 300 til­felli verið stað­fest og 11 hafa lát­ist af völdum veirunnar. Nokkur lönd um Evrópu hafa nú til­kynnt um ný veirusmit sem öll má rekja til Ítalíu. Í gær var greint frá því að smit hafa greinst í Aust­ur­ríki, Króatíu og Sviss og eiga smit­aðir það sam­eig­in­legt að...
InnlentCovid-19

Skil­grein­ing á útbreiðslu, ekki alvar­leika sjúk­dóms

Þrátt fyrir að kór­óna­veiran SARS-CoV-2 hafi náð nokk­urri útbreiðslu í a.m.k. sex ríkjum heims hefur Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) ekki enn lýst yfir heims­far­aldri. Nokkur munur er á því hvernig „heims­far­aldur“ (e. pandemic) er skil­greindur milli ríkja og stofn­ana en vert er að hafa í huga að skil­grein­ingin snýr að útbreiðslu, ekki alvar­leika. Samkvæmt nýj­ustu tölum hafa 80.239 greinst með Covid-19; sjúk­dóm­inn...

Myndband

InnlentCovid-19

Gámurinn mót­taka fyrir þá sem eru mögu­lega smit­aðir

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO hefur gefið út að ríki heims yrðu að búa sig undir „mögu­legan alheims­far­aldur“ vegna COVID-19. Yfirvöld hér á landi hafa gert ýmsar ráð­staf­anir til að efla varnir vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar COVID-19. Land­spít­al­inn hefur t.d. tekið í notkun gáma­ein­ingu bráða­mót­tök­una í Fossvogi. Gáma­ein­ingin verður notuð til að bregð­ast við ef komi upp kór­óna­veirusmit hér á landi og þá til...
HeimurCovid-19

Biðraðir í apó­tek á Tenerife

Heil­brigð­is­yf­ir­völd á vin­sæla ferða­manna­staðnum Tenerife á Spáni hafa stað­fest eitt til­felli Covid19 veirusmits þar. Smitaði ein­stak­ling­ur­inn er ítalskur læknir frá Norður-Ítalíu. Fjöl­margir Íslend­ingar eru staddir á Tenerife, þar af eru sjö sagðir í sótt­kví á H10 Costa Adeje Palace hót­el­inu þar sem ítalski mað­ur­inn dvaldi áður en hann val lagður inn á spít­ala. Sigríður Elín Ásmunds­dóttir er föst á Tenerife...
InnlentCovid-19

Svali um kór­óna­veirusmit á Tenerife: „Auðvitað taka menn þessu mjög alvar­lega“

Sigvaldi Kalda­lóns, sem er vel þekktur hér á landi sem Svali, hefur verið búsettur í tvö ár á Tenerife ásamt fjöl­skyldu sinni, þar sem hann starfar í dag sem far­ar­stjóri með eigið fyr­ir­tæki. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Covid19-smit verið greint þar og sjö Íslend­ingar eru í sótt­kví á H10 Costa Adeje Palace hót­el­inu þar. Sjá einnig:...
InnlentCovid-19

Föst á Tenerife – „Maður veit aldrei hver er smit­aður“

„Við sáum þetta bara í morg­un­fréttum,“ segir Sigríður Elín Ásmunds­dóttir um þá stað­reynd að Covid19 veirusmit hefur greinst á Tenerife en hún er stödd á eyj­unni ásamt eig­in­manni sínum og vinnu­fé­lögum hans í árs­há­tíð­ar­ferð. Sigríður er á Tenerife á vegum Heims­ferða og átti að fljúga heim á sunnu­dag­inn en flug­inu var aflýst vegna sand­storms. „Við höfum ekki enn þá fengið...
InnlentCovid-19

Segir stöð­una hafa breyst skyndi­lega yfir helg­ina

Þórólfur Guðnason, sótt­varn­ar­læknir, var orð­inn von­góður um helg­ina um að það væri búið að hefta úrbreyðslu Covid19-kór­óna­veirunnar en segir stöð­una hafa breyst mjög skyndi­lega yfir helg­ina. Hann segir veiruna nú breið­ast hratt út. „Þetta er svo­lítið óvenju­legt, það er hægt að segja það,“ sagði Þórólfur í Morg­un­út­varp­inu í morgun. Kór­óna­veirusmit hefur nú greinst ferða­manna­staðnum Tenerife, spurður út í hvort Íslend­ingar...
HeimurCovid-19

Kór­óna­veirusmit á Teneri­fe – Þúsund manns sagðir í sótt­kví á hót­eli

Heil­brigð­is­yf­ir­völd á vin­sæla ferða­manna­staðnum Tenerife á Spáni hafa stað­fest eitt til­felli Covid19 veirusmits þar. Smitaði ein­stak­ling­ur­inn er ítalskur læknir frá Norður-Ítalíu. Hann hafði dvalið á Tenerife í um viku. Hann leit­aði lækn­is­hjálpar eftir að hafa fundið fyrir ein­kennum veitu­smits. Um þús­und manns eru sagðir í sótt­kví á hót­eli sem íslenskar ferða­skrif­stofur eru í við­skiptum við. Fjöldi Íslend­inga eru staddir á...