HeimurHópur sérfræðinga um höfnun á vopnahléi: „Hernaðarlega illa ígrunduð og siðferðilega óverjandi“19. desember 2023 Hópur hernaðarsérfræðinga, ríkiserindreka og fræðimanna hvetja David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands til að krefjast „tafarlauss vopnahlés“ á Gaza. Al Jazeera fréttastofan segir frá yfirlýsingu frá hópi hernaðarsérfræðinga, ríkiserindreka og fræðimanna þar sem þeir hvetja David Cameron utanríkisráðherra Bretlands til að krefjast vopnahlés á Gaza og það tafarlaust. „Við trúum því staðfastlega að það sé í þágu bæði ísraelskra og palestínskra borgara,...
InnlentÍsraelskt fasteignafélag auglýsir strandhús á Gaza: „Nú á forsöluverði!“18. desember 2023 Ísraelskt fasteignafélag auglýsir nú strandhús á Gaza-ströndinni til sölu. Palestínsk-ameríski rithöfundurinn og pólitíski aktívistinn Susan Abulhawa bendir á óhugnalega auglýsingu á Instagram síðu sinni. Auglýsingin er frá ísraelska fasteignafélaginu Haray Zahav sem er leiðandi í sölu á húsum í ólöglegu landtökubyggðunum á Vesturbakkanum. Fasteignafélagið birti tvær auglýsingar á Instagram þar sem sjá má mynd af ströndinni á Gaza en þar...
HeimurSaka Ísraela um að svelta Gaza-búa viljandi: „Ættu að tala gegn þessum viðbjóðslega stríðsglæp“18. desember 2023 Alþjóðleg mannréttindasamtök saka Ísrael um að nota hungursneyð sem vopn í stríðinu á Gaza. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch (HRW) segja í fréttatilkynningu sem birtist í dag, að Ísraelar séu vísvitandi að svipta Palestínumenn aðgangi að mat, vatni og öðrum nauðsynjum. Notkun hungursneyðar gegn óbreyttum borgurum er stríðsglæpur, staðhæfa samtökin og kalla eftir því að þjóðarleiðtogar heimsins grípi inn í. Í...
InnlentMinntust látinna barna í Gaza-stríðinu – Falleg friðarstund í Laugarneskirkju17. desember 2023 Fólk safnaðist saman í dag á fallegri friðar- og samstöðustund í Laugarneskirkju, til að minnast fallinna barna í stríði Ísrael og Hamas. Séra Hjalti Jón Sverrisson flutti tölu í upphafi fallegrar stundar sem boðað var til á Facebook en fólki var boðið að mæta í Laugarneskirkju í dag til að minnast þeirra barna sem látist hafa í átökum Hamas og...
HeimurPáfinn eftir að leyniskytta drap mæðgur á Gaza: „Þetta eru hryðjuverk“17. desember 2023 Tvær kristnar konur, eldi móðir og dóttir hennar, voru skotnar til bana af leyniskyttu Ísraelsher í gær, á lóð kaþólskrar kirkju í Gaza-borg, samkvæmt tilkynningu latínska Patríarkaveldisins í Jerúsalem. Francis Páfi kallar hernað Ísraela hryðjuverk. „Um hádegi í dag myrti leyniskytta Ísraelshers tvær kristnar konur innan sóknar Holy Family-sóknarinnar á Gaza,“ segir í tilkynningunni í gær en í sókninni hafa...
HeimurÍsraelar sagðir hafa grafið særða Palestínumenn lifandi: „Fnykurinn af dauða var ólýsanlegur“16. desember 2023 Heilbrigðisráðherra Palestínu segir fjölmiðla á Gaza segja að ísraelskar jarðýtur hafi kramið særða Palestínumenn, sjúklinga og fólk á flótta, við Kamal Adwan sjúkrahúsið í norðurhluta Gaza. Dr. Mai al-Kaila, heilbrigðisráðherra Palestínu segir fréttamiðla skrifa um enn einn hrottalegan atburð á Gaza. Vitni segja að ísraelskar jarðýtur hafi jarðað flóttafólk sem höfðust við í tjöldum fyrir utan Kamal Adwan sjúkrahúsið í...
InnlentHernaðaráróður í undankeppni Eurovision í Ísrael: „Átakalegt merki um pólitískan aumingjaskap“16. desember 2023 Kristinn Hrafnsson bendir á yfirlýsingu frá fréttasíðu sem sérhæfir sig í Eurovision-fréttum, í nýrri færslu á Facebook. Þar kemur fram að Ísrael noti forkeppni Eurovision til að hampa her sínum. „Ísraelska ríkissjónvarpið notar forkeppni Eurovision til þess að hampa hernum sínum, þeim hinum sama og stendur nú blóðugur upp fyrir haus í að myrða þúsundir barna á Gaza,“ skrifar Kristinn...
InnlentEftirlifandi helfararinnar um ástandið á Gaza:„Árás Hamas á Ísrael réttlætir ekki slátrun á börnum“15. desember 2023 Eftirlifandi helfarar Nasista segir að ekkert réttlæti morð ísraelska hersins á konum og börnum og vill að Joe Biden hætti að senda Ísrael fjárstuðning. Marione Ingram, 87 ára eftirlifandi helfarar Nasista var í viðtali í nóvember hjá Democrazy Now fréttamiðlinum en myndbrot úr viðtalinu hefur verið mikið í dreifingu á samfélagsmiðlum þessa dagana, í takt við sífellt stækkandi tölu af...
InnlentIllugi segir frá örlögum nokkurra barna á Gaza: „Ísraelar hafa náttúrlega rétt á að verja sig“14. desember 2023 Illugi Jökulsson skrifar um örlög nokkurra barna og ungmenna frá Gaza í nýrri Facebook-færslu. Í færslunni birtir fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson ljósmyndir af tveimur börnum og einni ungri stúlku, öll fórnarlömb grimmilegra árása ísraelska hersins á Gaza. Clarissa Ward blaðamaður CNN hitti þau öll og fjallaði um þau. „Á neðri myndunum tveim er Amir, 20 mánaða. Hann fannst á götu í...
InnlentRÚV hafnaði atkvæðagreiðslu um sniðgöngu á Eurovision: „Í dag get ég ekki orða bundist“14. desember 2023 Tillaga að ályktun um sniðgöngu RÚV á Eurovision 2024, var ekki tekin til umræðu. Aðeins ein manneskja studdi tillöguna. Mörður Áslaugarson, stjórnarmeðlimur RÚV skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann sagðist ekki geta orða bundist. Hann lagði til á fundi stjórnar, tillögu um að RÚV taki ekki þátt í Eurovision 2024 ef Ísrael tekur þátt í keppninni. Segir hann að...
HeimurÍsraelar sakaðir um aftöku á konum og börnum í gær: „Þau voru ungabörn. Þeir tóku þau af lífi“14. desember 2023 Ísraelskir hermenn eru sagðir hafa tekið hóp kvenna og barna af lífi í grunnskóla í norðurhluta Gaza í gær. Samkvæmt vitnisburði frá íbúum í norðurhluta Gaza réðust ísraelskir hermenn inn í Shadia Abu Ghazala-grunnskólann, þar sem fjöldi fólks hafði leitað skjóls undan sprengjuregni Ísraelshers. Segja vitnin að hermennirnir hafi tekið karlmennina í burtu en safnað konunum og börnunum í eitt... Myndband
InnlentMótmæliSegir Bandaríkin ásælast olíu- og gas í Palestínu: „Það er ástæðan fyrir þjóðarmorðinu í Gaza“13. desember 2023 Bragi Páll Sigurðarson segir að Bandaríkjamenn sækist í olíu og gas á Gaza og sé alveg sama um Hamas-liða. Fjölmennt var á mótmælum fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík í gær. Þar var fólk samankomið til að mótmæla þætti Bandaríkjanna í sögulegum morðum Ísraelshers á saklausum borgurum Gaza og Vesturbakkans í Palestínu. Rithöfundurinn umdeildi, Bragi Páll Sigurðarson flutti sannkallaða eldræðu...