Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir Bandaríkin ásælast olíu- og gas í Palestínu: „Það er ástæðan fyrir þjóðarmorðinu í Gaza“

Segir Bandaríkin ásælast olíu- og gas í Palestínu: „Það er ástæðan fyrir þjóðarmorðinu í Gaza“
Bragi Páll á mót­mæl­unum í gær. Mynd: Facebook

Bragi Páll Sig­urð­ar­son segir að Banda­ríkja­menn sæk­ist í olíu og gas á Gaza og sé alveg sama um Hamas-liða.

Fjöl­mennt var á mót­mælum fyrir utan sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Reykja­vík í gær. Þar var fólk sam­an­komið til að mót­mæla þætti Banda­ríkj­anna í sögu­legum morðum Ísra­els­hers á sak­lausum borg­urum Gaza og Vest­ur­bakk­ans í Palest­ínu. Rit­höf­und­ur­inn umdeildi, Bragi Páll Sig­urð­ar­son flutti sann­kall­aða eldræðu í mót­mæl­unum en þar talar hann um aðkomu Banda­ríkja­manna að stríð­inu á Gaza. Í ræð­unni segir Bragi Páll meðal ann­ars að það sé ekki Hamas sem sé ástæðan fyrir stríð­inu, heldur löngun Banda­ríkja­manna og Ísraela í olíu- og gas auð­lindir sem rit­höf­und­ur­inn segir að leyn­ist undir og við strand­lengju Gaza. „Þar sem Gaza borg stendur ætla þeir svo að byggja stór­skipa­höfn til þess að stjórna olíu og gas-sölu. Hamas skiptir engu máli. Ekki láta ljúga því að ykkur. Hamas var ekki til þegar land­ránið hófst árið 1948. Banda­ríkin hafa aldrei þurft afsökun fyrir því að drepa sak­lausa borg­ara sjálfum sér til fram­dráttar. En þau eru samt mjög dug­leg að búa sér til afsak­anir. Hamas er ein af þeim.“

Þá segir hann að Banda­ríkin séu „full­orð­inn maður að skjóta barn í höf­uðið“ en að Ísraelar séu aðeins vísi­fing­ur­inn sem taki í gikk­inn, Banda­ríkin séu restin af lík­am­anum. „Byssan og kúlan í höfði barns­ins koma þaðan. Ísrael hreyfir sig ekki nema með sam­þykki og blessun Banda­ríkj­anna.“

Eldræð­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Góðir fund­ar­gestir

Nú þegar sprengjum Ísraela rignir dag­lega yfir sak­lausa Palest­ínska borg­ara er eðli­legt að spyrja hvers vegna við stöndum hér fyrir utan Banda­ríska sendi­ráðið að mót­mæla. Ég ætla því að leyfa mér að byrja á því að lesa upp lista yfir þau lönd sem Banda­ríkin hafa sprengt í nafni frelsis og lýð­ræðis frá lokum síð­ari heim­styrj­aldar.Kórea og Kína 1950-53Gvatemala 1954Indónesía 1958Kúba 1959-1961Gvatemala 1960Kongó 1964Laós 1964-73Víetnam 1961-73Kambódía 1969-70Gvatemala 1967-69Grenada 1983Líbanon 1983, 1984Líbía 1986El Salvador: níundi ára­tug­ur­inn­Ník­aragva: Níundi ára­tug­ur­innÍran 1987Panama 1989Írak 1991Kúveit 1991Sómalía 1993Bosnía 1994, 1995Súdan 1998Afghanistan 1998Júgóslavía 1999Jemen 2002Írak 1991-2015Afghanistan 2001-2015Pakistan 2007-2015Sómalía 2007-8, 2011Jemen 2009, 2011Líbía 2011, 2015Sýrland 2014-2016Og síð­ast en ekki síst Palest­ína 1948-2023.En þetta eru ekki bara nöfn á löndum og ártöl. Að baki hverju ein­asta ártali eru þús­undir, stundum millj­ónir lát­inna borg­ara, alveg eins og þeir sem við sjáum nú á myndum frá Palest­ínu síð­ustu tvo mán­uði. Húsa­rústir. Sund­ur­sprengdir lík­amar. Brostnar vonir. Botnlaus sorg. En af hverju erum við hérna núna? Fyrir utan Banda­ríska sendi­ráðið? Vegna þess að undir og við strand­lengju Gaza eru olíu og gas-auð­lindir sem Banda­ríkja­menn og Ísraelar ætla að ná end­an­legum yfir­ráðum yfir. Þar sem Gaza borg stendur ætla þeir svo að byggja stór­skipa­höfn til þess að stjórna olíu og gas-sölu. Hamas skiptir engu máli. Ekki láta ljúga því að ykkur. Hamas var ekki til þegar land­ránið hófst árið 1948. Banda­ríkin hafa aldrei þurft afsökun fyrir því að drepa sak­lausa borg­ara sjálfum sér til fram­dráttar. En þau eru samt mjög dug­leg að búa sér til afsak­anir. Hamas er ein af þeim. Athugum líka, þó þið vitið það eflaust, að Ísrael hegðar sér ekki eins og eðli­legt lýð­ræð­is­ríki. Þeir eru aðeins fram­leng­ing af Banda­ríkj­unum. Banda­ríkin eru full­orð­inn maður að skjóta barn í höf­uðið. Aðeins vísi­fing­ur­inn sem tekur í gikk­inn er Ísrael. Restin af lík­am­anum er Banda­ríkin. Byssan og kúlan í höfði barns­ins koma þaðan. Ísrael hreyfir sig ekki nema með sam­þykki og blessun Banda­ríkj­anna. Og þess vegna stöndum við hér.En hvers vegna hefur heim­ur­inn leyft Banda­ríkja­mönnum að hegða sér svona und­an­farna öld? Vegna þess að Banda­ríkin hafa sprengt og mútað öllum sem and­mæla. Þeir sprengja brúnt fólk og múta hvítu fólki. Þess vegna er friður á Íslandi, því við höfum tekið við mút­unum. Þess vegna lét­ust allir vinstri sinn­aðir, lýð­ræð­is­lega kjörnir full­trúar Suður-Ameríku og Asíu í dul­ar­fullum flug­slysum, bílslysum og spreng­ingum. Af því þeir létu ekki kaupa sig. Þannig vann kap­ít­al­ism­inn kalda stríðið, ekki með hug­mynda­fræði­legum yfir­burðum, heldur með morðum. Valdaránum. Þjófnaði. Það er ástæðan fyrir yfir­burðum hins svo­kall­aða vest­urs frá lokum seinna stríðs. Af því Banda­ríkin eru dug­leg­asti vopna­fram­leið­andi í heimi. Dug­leg­asti vopna­not­andi í heimi. Hið kap­ít­al­íska kerfi gengur út á arð­rán, þjófnað og ofbeldi. Það er ástæðan fyrir þjóð­ar­morð­inu í Gaza, ekki útrým­ing Hamas, heldur vegna þess að Banda­ríkja­mönnum langar í eitt­hvað. Olíu. Land. Aukin völd. Mannslíf skipta þá engu máli. Um leið og þú tekur ekki við mút­unum þá tekur þú við sprengj­unum. Heim­ur­inn er ekki frjáls. Við erum aðeins frjáls og eins langt og snaran sem Banda­ríkin hnýta utan um háls­inn á okkur nær. Og nú er sú snara end­an­lega að kæfa íbúa Palest­ínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina