Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leikstjóri verðlaunakvikmyndar neitaði að taka við friðarverðlaunum

„Friður er ekki ilm­vatn sem úðað er yfir ofbeldi svo valdið geti liðið fágað og þægi­legt“

Leikstjóri verðlaunakvikmyndar neitaði að taka við friðarverðlaunum
Kaouther Ben Hania Ben Hania neit­aði að taka við verð­laun­unum Mynd: GARETH CATTERMOLE / GETTY IMAGES VIA AFP

Túníska kvik­mynda­gerð­ar­konan Kaouther Ben Hania vakti athygli þegar hún hafn­aði því að taka við frið­ar­verð­launum á við­burði í Berlín, í mót­mæla­skyni við það sem hún segir þögn kvik­mynda­iðn­að­ar­ins um Palest­ínu og póli­tíska yfir­hylm­ingu á stríðs­glæpum Ísraels á Gaza.

Ben Hania neit­aði að taka við verð­laun­unum Most Valuable Film á kvöld­verði Cinema for Peace og skildi bik­ar­inn eftir á svið­inu. Hún sagði ákvörð­un­ina vera mót­mæli gegn alþjóð­legri póli­tískri vernd sem veitt sé „þjóð­ar­morðs­stríði Ísraels á Gaza“.

Verð­launin áttu að vera veitt fyrir kvik­mynd hennar The Voice of Hind Rajab, þar sem fjallað er um dauða fimm ára palest­ínskrar stúlku sem drepin var af ísra­elska hernum. Ben Hania lagði áherslu á að dauði barns­ins væri ekki und­an­tekn­ing, heldur hluti af kerf­is­bundnu þjóð­ar­morði.

„Friður er ekki ilm­vatn sem úðað er yfir ofbeldi svo valdið geti liðið fágað og þægi­legt,“ sagði Ben Hania í ræðu sinni. „Ef við tölum um frið verðum við að tala um rétt­læti. Réttlæti þýðir ábyrgð.“

Hún sagði jafn­framt að ísra­elski her­inn hefði drepið Hind Rajab, fjöl­skyldu hennar og tvo sjúkra­flutn­inga­menn sem sendir voru til að bjarga henni, með með­á­byrgð vold­ug­ustu rík­is­stjórna og stofn­ana heims.

Til að koma í veg fyrir að heim­ild­ar­mynd hennar yrði notuð til „ímynd­ar­þvottar“ ákvað Ben Hania að skilja verð­launin eftir á svið­inu, sem tákn um það kerfi sem hún segir hafa gert fjöldamorð á óbreyttum borg­urum mögu­leg.

„Ég neita að láta dauða þeirra verða bak­grunn fyrir kurt­eisa ræðu um frið,“ sagði hún. „Þegar friður er sóttur sem laga­leg og sið­ferði­leg skylda, byggð á ábyrgð vegna þjóð­ar­morðs, mun ég koma aftur og taka við verð­laun­unum með gleði.“

Opinber afstaða Ben Hania í Berlín kemur í kjöl­far þess að meira en 80 þekktir kvik­mynda­gerð­ar­menn skrif­uðu undir opið bréf þar sem gagn­rýnd var þöggun stjórn­enda kvik­mynda­há­tíð­ar­innar Berl­inale. Meðal und­ir­rit­aðra eru leik­ar­arnir Javier Bardem, Tilda Swinton og Brian Cox, auk leik­stjór­anna Mike Leigh og Adam McKay.

Und­ir­rit­aðir, sem allir hafa áður tekið þátt í hátíð­inni og voru sam­hæfðir af hópnum Film Workers for Palestine, for­dæmdu það sem þeir köll­uðu „and-palest­ínska kyn­þátta­hyggju“ Berl­inale-hátíð­ar­innar og gagn­rýndu að hún krefð­ist ekki ábyrgðar vegna brota á alþjóða­lögum. Í bréf­inu var bent á skýran tví­skinn­ung, þar sem þögn hátíð­ar­innar um Gaza var borin saman við háværan stuðn­ing hennar við Úkraínu og Íran.

The Voice of Hind Rajab hefur farið sig­ur­för um heim­inn en hún hefur hlotið fjöldi verð­launa og er meðal ann­ars til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna fyrir bestu erlendu kvik­mynd­ina. Myndir lýsir síð­ustu sól­ar­hringum hinnar 5 ára Hind Rajab, sem skrið­dreka­her­menn Ísra­els­hers myrtu í köldu blóði árið 2024, ásamt sex ætt­ingjum hennar og tveimur sjúkra­liðum. Myndin er leikin en alvöru rödd Hindar er notuð í kvik­mynd­inni en þar má heyra sím­töl Hindar litlu við móður sína og neyð­ar­línu­starfs­mann Rauða Hálf­mán­ans, sem hún átti á meðan hún var föst í bif­reið ætt­ingja sinna, rétt áður en hún var myrt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco