InnlentSpila fyrsta leikinn á HM í skugga skandals HSÍ30. nóvember 2023 Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hefur leik í dag á HM í handbolta en mótið fer fram í Noregi. Í fyrsta leik mætir liðið Slóveníu og fer leikurinn fram klukkan 17:00. Mikil spenna er í hópnum fyrir heimsmeistaramótinu eins og gefur að skilja. „Þetta stórmót er að gefa mér svo mikið. Það er risastóru langtímamarkmiði náð hjá mér að hafa komist...
InnlentStjórnarmaður HSÍ segir af sér í kjölfar skandals: „Eldfim mál koma upp“24. nóvember 2023 Davíð Lúther Sigurðsson, stjórnarmeðlimur HSÍ, hefur sagt af sér stjórnarmennsku vegna samnings HSÍ við Arnarlax en samningur sá hefur hlotið mikla gagnrýni í íslensku samfélagi síðan tilkynnt var um hann. Davíð sá einnig um markaðs- og kynningarmál sambandsins. Davíð staðfesti að hann hafi sagt af sér í viðtali við Heimildina fyrr í dag. Hann segir ákvörðun um samning við Arnarlax...
InnlentHSÍ í molum vegna skandala: „Ekki að fara að vinna með þessum mönnum“24. nóvember 2023 Árið 2023 hefur svo sannarlega verið slæmt ár fyrir Handknattleikssamband Íslands. Ófarirnar hófust með slæmum árangri íslenska karlalandsliðsins á HM en þar lenti íslenska liðið aðeins í 12. sæti, langt undir getu og væntingum. Þegar átti að ráða nýjan þjálfara voru vinnubrögðin svo léleg að Dagur Sigurðsson, einn besti landsliðsmaður í sögu Íslands og einn af okkur bestu þjálfurum, gagnrýndi...
InnlentKnattspyrnugoðsögn sendir kveðju: „Er að hugsa um magnaða fólkið í Grindavík“14. nóvember 2023 Knattspyrnuhetja Lee Sharpe sendir Grindvíkingum kveðju á þessum erfiðu tímum. Knattspyrnumaðurinn lék á sínum tíma fyrir Manchester United og Leeds en með því fyrrnefnda vann hann ensku úrvalsdeildina þrisvar sinnum og varð bikarmeistari tvisvar. Auk þess spilaði hann átta landsleiki fyrir England meðan ferillinn var í blóma. Hann glímdi við erfið meiðsli stóran hluta af ferlinum og var það til... Myndband
InnlentÍslendingar sigruðu besta skákmann heims14. nóvember 2023 Íslenska karlalandsliðið í skák vann óvæntan sigur á norska landsliðinu í gær en Magnus Carlsen, besti skákmaður heims, fer fyrir norska liðinu. Keppnin fór fram í þriðju umferð EM landsliða og fóru viðureignirnar fram í Svartfjallalandi. Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði fyrir Magnus Carlsen en sumir vilja meina að hann sé besti skákmaður sögunnar. Vignir Stefánsson náði jafntefli við Lars Hauge.... Myndband
InnlentÍsbjörn sem ætlar sér heimsmeistaratitil: „Skila frábærri frammistöðu og vonandi rothöggi”13. nóvember 2023 Hnefaleikakappinn Kolbeinn stefnir á heimsmeistaratitil. Tilkynnt hefur verið um næsta bardaga hnefaleikamannsins Kolbeins Kristinssonar, oft kallaður Ísbjörninn, en hann fer fram 2. desember í Vín í Austurríki. Þar mun hann mæta hinum 36 ára Mirko Tintor en hann hefur tapað þremur seinustu bardögum sínum. Kolbeinn er besti boxari í sögu Íslands en hann er taplaus í 14 bardögum og hefur... Myndband
InnlentHSÍ þiggur styrki frá umdeildu fyrirtæki: „Við tjáum okkur ekki um einstök ummæli“13. nóvember 2023 HSÍ tjáir sig ekki um orð samstarfsaðila. Í seinustu viku tilkynnti Handknattleikssamband Íslands um nýjan samning sem sambandið gerði við fjártæknifyrirtækið Rapyd. Samningurinn hefur í för með sér að Rapyd mun styrkja 10 framúrskarandi unga leikmenn um 700 þúsund krónur. Um þetta var tilkynnt aðeins nokkrum dögum eftir að Arik Shtilman, forstjóri fyrirtækisins, var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín um...
InnlentAlbert í ofurformi þrátt fyrir álag vegna kæru – Orðaður við stórlið3. nóvember 2023 Albert Guðmundsson hefur skorað í þremur leikjum í röð. Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er í miklu stuði þessar mundir með félagsliði sínu Genoa en Albert hefur skorað mark í þremur leikjum í röð fyrir félagið. Albert hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína og telja margir að hann verði keyptur til stórliðs þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Hafa stórliðin Napoli...
InnlentKvennaverkfallSlíta samstarfi vegna kvennaverkfallsins: „Stríðir gegn gildum“28. október 2023 Kvennaverkfall hefur áhrif á bókaútgáfu. Knattspyrnuversluninn Heimavöllurinn hefur ákveðið að slíta samstarfi við Pennann/Eymundsson en til stóð að halda útgáfuhóf í til að fagna útgáfu bókar sem Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skrifaði. Ástæða fyrir samstarfsslitunum er að sögn Heimvallarins afstaða Pennans/Eymundsson á verkfallsdegi kvenna og kvára þann 24. október. „Til stóð að Heimavöllurinn myndi halda útgáfuhóf í dag...
HeimurKörfuboltadómari réðst á þjálfara menntaskólaliðs – Sjáið ótrúlegt myndband!27. október 2023 Bandarískur dómari kærður fyrir líkamsárás. Ótrúlegt atvik átti sér stað í körfuboltaleik milli tveggja menntaskólaliða í Bandaríkjunum seinustu helgi. Þjálfarinn Rob Alexander var ósáttur við dómara leiksins en það var maður að nafni Brandon Knapper sem sá um dómgæslu leiksins. Þegar mennirnir tveir voru að ræða saman kýlir dómarinn þjálfarann upp úr þurru. Þjálfarinn féll til jarðar og hélt dómarinn...
HeimurHeimir vill einn umdeildasta leikmann heims í landsliðið: „Allir eigi rétt á að fá annað tækifæri“19. október 2023 Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, vill gefa Mason Greenwood tækifæri. Mason Greenwood er einn umdeildasti knattspyrnumaður heims en hann er leikmaður Manchester United og er í láni hjá spænska liðinu Getafe. Greenwood var handtekinn á síðasta ári eftir að kærasta hans birti hljóðupptökur þar sem virðist vera svo að leikmaðurinn nauðgi henni. Málið var hins vegar látið niður falla í...
InnlentSkilur ekki þá aðdáun sem Gylfa er sýnd: „Eruði bara í alvörunni að horfa á meintan barnaníðing“17. október 2023 Þorsteinn Einarsson, kynjafræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, skilur ekki að fólk sé að horfa á íslenska landsliðið. Kynjafræðingurinn Þorsteinn Einarsson, sem heldur út hlaðvarpinu Karlmennskan, skilur ekki að íslenska þjóðin hafi áhuga á að horfa á Gylfa Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson spila knattspyrnu. Þorsteinn tvítaði um málið í tilefni þess að Íslands var að keppa á móti Liechtenstein í gær....