InnlentMótmæliNo Borders styðja þingpallamótmælin: „Áform ríkisvaldsins eru knúin áfram af kerfislægum rasisma“8. mars 2024 Samtökin No Borders styðja þingpallamótmælin sem fóru fram á Alþingi á mánudaginn. Baráttusamtökin No Borders sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þau segjast styðja tvimælalaust þingpallamótmæli mánudagsins. „Við, No Borders styðjum þingpallamótmæli mánudagsins tvímælalaust. Grimm stefna ríkisstjórnar í útlendingamálum skapar slíka neyð og örvæntingu að grípa verður til örþrifaráða.“ Þannig hefst yfirlýsingin sem birtist á Facebook og var...
InnlentMótmæliNorðurlöndin ganga samstillt með Palestínu á morgun1. mars 2024 Samstillt samstöðuganga með Palestínu verður farin á öllum Norðurlöndunum á morgun. Um öll Norðurlöndin, allt frá Stokkhólmi til Kaupmannahafnar, Helsinki til Tampere og Osló til Þórshafnar verður gengið til stuðnings Palestínu á morgun, 2. mars. Í Reykjavík verður gengið frá Hallgrímskirkju, en fólk mun safnast saman klukkan 14.00 og ganga af stað 14.20. Hyggst fólk ganga saman að sendiráðum Bretlands...
HeimurMótmæliHermaður kveikti í sér fyrir framan sendiráð Ísraels: „Verð ekki lengur samsekur í þjóðarmorði“26. febrúar 2024 Hermaður í flugher Bandaríkjanna kveikti í sér fyrir framan ísraelska sendiráðið í Washington DC, í mótmælaskyni vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Maður að nafni Aaron Bushnell, sem starfaði í bandaríska flughernum, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa kveikt í sér fyrir framan sendiráð Ísraels í Washington DC í gærmorgun. Það gerði hann í mótmælaskyni vegna þjóðarmorðs Ísraela á Palestínumönnum. Bushnell hafði...
LandiðMótmæliSamstöðufundur með Palestínu á Egilsstöðum í dag24. febrúar 2024 Boðað er til samstöðugöngu með Palestínu á Egilsstöðum í dag. Samstöðufundur með Palestínu verður haldinn í dag á Egilsstöðum en safnast verður saman við Egilsstaðakirkju kl. 14:00. Þaðan verður svo gengið að Tehúsinu, þar sem haldinn verður samstöðufundur klukkan 14:30. Dagskrá fundarins samanstendur af stuttum ræðum og tónlistaflutningi. Fundarstjóri verður Árni Friðriksson en ávarp fundarins flytur Sigurlaug Björnsdóttir Blöndal.
InnlentMótmæliStórfundur fyrir Palestínu haldinn í Háskólabíói – Hin 17 ára Asil Al-Masri flytur ávarp15. febrúar 2024 Á laugardaginn þann 17. febrúar stendur Félagið Ísland-Palestína fyrir stórfundi í Háskólabíói, en sá dagur er alþjóðlegur dagur til stuðnings Palestínu. Fundurinn, sem hefst klukkan 14:00 í Háskólabíó 17. febrúar, er af stærri gerðinni en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra Íslands mun flytja erindi, auk fulltrúa skólaverkfalls fyrir Palestínu, Höllu Gunnarsdóttur fyrir hönd ASÍ, Asils Al-Masri, 17 ára Palestínsk stúlka...
InnlentMótmæliSegir Rapyd fela slóð sína á Íslandi: „Mikilvægt að spyrja viðkomandi verslun“12. febrúar 2024 Árni Rúnar Hlöðversson segir færslufyrirtækið Rapyd fela slóð sína á Íslandi. Forritarinn og tónlistarmaðurinn Árni Rúnar Hlöðversson, oftast kallaður Árni plúseinn, skrifaði færslu á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann heldur því fram að færslufyrirtækið Rapyd feli nú slóð sína á Íslandi, með því að fjarlægja merki fyrirtækisins af posum sínum. Eftir að stuðningur forstjóra Rapyd, við þjóðarmorð ísraelska hersins á...
InnlentMótmæliHópur mótmælenda hindrar útgönguleið lögreglu – MYNDIR10. febrúar 2024 Mannlífi barst ábending um að hópur mótmælenda hafi nú blokkað tvær útgönguleiðir lögreglubíla við lögreglustöðina við Hlemm. Á stöðinni er talið að palestínsk fjölskylda sé innandyra, hjón og fullorðinn sonur þeirra sem lögregla hyggst senda úr landi. Þau eiga ættingja hér á landi en ekki rétt á fjölskyldusameiningu. Í frétt á Vísi segir að fjöldi vopnaðra sérsveitarmanna hafi ráðist inn...
InnlentMótmæliBoða mótmæli á Austurvelli klukkan 15: „Þetta er ekki flókið. Börnin heim!“5. febrúar 2024 Félagið Ísland – Palestína boða mótmæli fyrir utan Alþingi í dag en þar verður þess krafist að börn sem föst eru á Gaza en eru með dvalarleyfi á Íslandi, sé komið til landsins. Systkinin sem föst eru á Gaza.Mynd: Instagram-skjáskot Klukkan 15 í dag hyggst félagið Ísland – Palestína mótmæla á Austurvelli og krefjast þess að um 60 börnum, sem...
InnlentMótmæliSamstöðuganga boðuð við Hallgrímskirkju: „Nú verður að grípa til alvöru aðgerða“24. janúar 2024 Félagið Ísland-Palestínu boðar til samstöðugöngu fyrir utan Hallgrímskirkju á laugardaginn 27. janúar. Klukkan 14 á laugardaginn næsta mun fólk safnast saman fyrir framan Hallgrímskirkju og þaðan verður gengið niður Skólavörðustíg, að Alþingi á Austurvelli en þar mun fara fram samstöðufundur. Í viðburðalýsingu um gönguna á Facebook segir að nú sé „mikilvægara en nokkru sinni að almenningur láti rödd sína heyrast...
InnlentMótmæliMótmælendur hrópuðu að Alþingishúsinu: „Bjarni Ben go fuck yourself!“22. janúar 2024 Hátt í tvöhundruð manns mætti í friðsöm en hávær mótmæli gegn árásum Ísraela á Gaza. Þegar á leið á mótmælin hópaðist tugur manna að Alþingishúsinu og hrópuðu slagorð að þinghúsinu. Frá mótmælunum.Mynd: Björgvin Gunnarsson Talsverður fjöldi safnaðist saman í nístíngskuldanum á Austurvelli klukkan hálf tvö í dag, til að mótmæla þjóðarmorðinu á Gaza og aðgerðarleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í málefnum... Myndband
InnlentMótmæliSegir Bandaríkin ásælast olíu- og gas í Palestínu: „Það er ástæðan fyrir þjóðarmorðinu í Gaza“13. desember 2023 Bragi Páll Sigurðarson segir að Bandaríkjamenn sækist í olíu og gas á Gaza og sé alveg sama um Hamas-liða. Fjölmennt var á mótmælum fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík í gær. Þar var fólk samankomið til að mótmæla þætti Bandaríkjanna í sögulegum morðum Ísraelshers á saklausum borgurum Gaza og Vesturbakkans í Palestínu. Rithöfundurinn umdeildi, Bragi Páll Sigurðarson flutti sannkallaða eldræðu...
InnlentMótmæliMótmælendur köstuðu rauðu glimmeri yfir Bjarna Ben – Katrín Jakobsdóttir forfallaðist8. desember 2023 Mótmælendur hentu rauðu glimmeri yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra, á fundi sem haldinn var í Háskóla Íslands. Mynd: Trausti Hafsteinsson Fundur var haldinn í Veröld, húsi Vigdísar til að minnast 75 ára afmælis mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Mótmælendur mættu á fundinn og kröfðust þess að Ísland slíti stjórnmálasambandi sínu við Ísrael, setti viðskiptabann á landið og að flóttafólki frá Palestínu á Íslandi...