SlúðurÞórólfur mokar peningum í World Class28. nóvember 2020 Björn Leifsson, einn eigenda World Class, er einstaklega átakasækinn. Hann fjargviðrast reglulega út af því að þurfa að loka stöðvum sínum á meðan veiran grasserar og grætur glatað fé. Nýjasta útspil hans var að veitast að Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og dylgja um að ástæða aðgerðanna sé sú að hann hafi fóbíu gagnvart heilsuræktarstöðvum. Kom þá á daginn að Þórólfur er...
SlúðurFordæmdur formaður28. nóvember 2020 Hluti af skipstjórum og stýrimönnum á skipum Samherja hafa fordæmt framgöngu Árna Bjarnasonar, formanns Félags skipstjórnarmanna, í Covid-máli Sveins Arnarssonar, skipstjóra á Júlíusi Geirmundssyni ÍS. Félag Árna stóð að því ásamt öðrum félögum sjómanna að krefjast þess að Sveinn skipstjóri yrði dreginn fyrir sjórétt. Þetta þykir 17 skipstjórum Samherja vera slæmt mál þar sem um er að ræða stéttarfélag skisptjórans...
SlúðurKosningakvíði Páls Magnússonar27. nóvember 2020 Ekki hefur kveðið mikið að Páli Magnússyni, alþingismanni Sjálfstæðisflokksins, það sem af er kjörtímabilinu. Páll er rólyndismaður allajafna en glímir þó við reiði endrum og eins, svo sem kom fram í viðtali við hann fyrir margt löngu. Mesta athygli hefur Páll vakið með því að fara í fýlu þegar hann fékk ekki ráðherrastól í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur hann leikið...
SlúðurBeðið eftir sálfræðingi á DV27. nóvember 2020 Tobba Marinósdóttir, ritstjóri DV, var í afskaplega einlægu og skemmtilegu viðtali hjá Sölva Tryggvasyni þar sem hún fór yfir lífshlaup sitt og störf. Hún ræddi meðal annars starfið á DV og rifjaði upp tíma í tíð Mikaels Torfasonar ritstjóra þar sem blaðamenn hefðu haft handboltakylfur undir borðum. Hún lýsti því álagi sem fylgir blaðamennsku á DV og því sálarstríði sem...
SlúðurPrófessor riðlast á nafni Ólínu27. nóvember 2020 Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er einhver stríðsglaðasti fræðimaður sem um getur í seinni tíma sögu Íslendinga. Hann leggur lykkju á leið sína til að taka þátt í ritdeilu dr. Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur og Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, um aðför íslenskra stjórnvalda að Nóbelsskáldinu Halldóri Kiljan Laxness, sem að sögn var skákað út af Bandaríkjamarkaði með bækur sínar. Hannes Hólmsteinn ritar...
SlúðurLeyniskjöl koma upp um ráðherra26. nóvember 2020 Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hefur eytt mikilli orku í að gera dr. Ólínu Þorvarðardóttur afturreka með þá frásögn í bók sini, Spegill fyrir Skugga Baldur, að faðir Björns, Bjarni Benediktsson þáverandi utanríkisráðherra, hefði beitt sér með skuggalegum hætti til að klekkja á skáldinu Halldóri Kiljan Laxness og skemma fyrir honum á Bandaríkjamarkaði. Björn hefur þrætt fyrir þá söguskoðun og Mogginn...
SlúðurBrynjar skrópar á nefndarfundum25. nóvember 2020 Brynjar Níelsson alþingismaður er með allra skemmtilegustu mönnum og í uppáhaldi hjá mörgum fjölmiðlum vegna hæfileika sinna til þess að efna til ýfinga. Nýjasta uppákoma Brynjars snýst um að hann hefur í rúman mánuð látið ógert að mæta á nefndarfundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þrátt fyrir að vera á fullum launum sem þingmaður. Hann hefur tilkynnt Bjarna Benediktssyni, formanni...
SlúðurPálmi rekinn í launadeilu24. nóvember 2020 Harka er að færast í starfsmannamál hjá Ríkisútvarpinu. Í síðustu viku var hópi starfsmanna sagt upp. Þeirra á meðal voru fréttamennirnir Pálmi Jónasson, Jóhann Hlíðar Harðarson og Úlla Árdal. Félag fréttamanna mótmælti uppsögnunum og þá sérstaklega að fréttamanni sem átti í launadeilu vegna yfirvinnu hefði verið sagt upp. Stundin upplýsti að sá væri Pálmi Jónasson, sem starfað hefur hjá Ríkisútvarpinu...
SlúðurVíðir er rosalega seinheppinn24. nóvember 2020 Sá dáði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hefur staðið sig eins og hetja í fremstu víglínu gegn Covid-19 og uppskorið að mestu bæði aðdáun og traust. En kappinn er seinheppinn ef marka má að hann er nú í þriðja sinn kominn í sóttkví eftir að hafa komist í návígi við smitaðan einstakling. Víðir lenti einnig í sóttkví í fyrri bylgjunni þegar hann...
SlúðurFékk fyrstu fullnæginguna 11 ára23. nóvember 2020 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, þykir einstaklega klókur á mörgum sviðum. Undir hans stjórn hefur Morgunblaðið tekið stór skref í fyrirsögnum svo eftir er tekið. Þannig tókst Mogganum að selja gjaldþrot Stuðmanna í metsölu þegar um var að ræða pínulítið rafverktakafyrirtæki en ekki hljómveit allra landsmanna. Nýjasti smellur Davíðs á mbl.is er með þá krefjandi fyrirsögn „Fékk fyrstu fullnæginguna 11 ára“....
SlúðurÓlína hundskammar Hannes23. nóvember 2020 Doktor Ólína Þorvarðardóttir stendur í ströngu vegna bókar sinnar, Spegill fyrir Skugga Baldur. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hefur í nikkrum greinum gagnrýnt Ólínu fyrir að hafa sagt að faðir hans, Bjarni Benediktsson, þáverandi ráðherra, hefði haft áhrif í þá veru að Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness fékk ekki bækur sínar útgefnar í Bandaríkjunum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor blandaði sér í málin...
SlúðurVigdís í sárum23. nóvember 2020 Landsfundur Miðflokksins um síðustu helgi reyndist Vigdísi Hauksdóttur borgarfulltrúa þungbær. Vigdís hafði af fórnfýsi og áhuga boðist til þess að taka að sér varaformannsembættið við hlið Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson formanns. Með þessu ætlaði hún að skáka Gunnari Braga Sveinssyni, sitjandi varaformanni, til hliðar. Hermt er að Vigdís hafi stefnt enn hærra í fyllingu tímans og viljað leiða flokkinn. Vigdís var...