SlúðurJónsi landflótta á barmi gjaldþrots20. október 2020 Söngvarinn Jónsi úr Sigur Rós er ekki sáttur með lögsóknir sem hann og aðrir félagar í Sigur Rós hafa þurft að sæta vegna vantalinna tekna. Sigur Rósarmenn voru í viðtali við Guardian þar sem þeir hörmuðu örlög sín og lýstu því að gjaldþrot og jafnvel fangelsi gæti blasað við þeim. Jónsi er þegar fluttur til Los Angeles, fullsaddur af Íslandi...
SlúðurHryllilegt ár hjá hæstaréttarlögmanni18. október 2020 Það gladdi marga að sjá eldhressan Sigurð G. Guðjónsson hæstaréttarlögmann í Silfrinu á RÚV að tjá sig um stjórnarskránna. Þetta ár hefur verið Sigurði erfitt. Hann steypti útgáfu sinni, Frjálsri fjölmiðlun, í gjaldþrot, stuttu eftir að Björgólfur Thor Björgólfsson hafði hjálpað honnum um hundruð milljónir króna. Hann missti þar með yfirráðin yfir fjölmiðlum DV en losnaði að mestu undan himinháum...
SlúðurMiðflokkurinn sver Margréti af sér18. október 2020 Stjórnendur Miðflokksins sverja af sér að standa að nýjum fjölmiðli ásamt Margréti Friðriksdóttur sem hefur sérstakan áhuga á málum flóttamanna. Margrét boðaði í Morgunblaðinu að hún væri að leita að blaðamönnum á hinn nýja fjölmiðil. Þá sagði hún að bakhjarlar hennar væri einstaklingar úr Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Jón Pétursson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, segir að hvorki flokkurinn né ráðandi einstaklingar...
SlúðurLeigusali Margrétar í Nóatúni kom af fjöllum15. október 2020 Þau tíðindi hafa borist að Margrét Friðriksdóttir álitsgjafi hafi afráðið að stofna nýjan fjölmiðil með aðsetur í Nóatúni 17. Morgunblaðið segir frá þessu í dag. Það kostulega í málinu er að leigusalinn mun,samkvæmt heimildum, ekki hafa haft hugmynd um að Margrét væri á leiðinni með sitt fólk í húsið en las um það í fjölmiðlum eins og almenningur. Fasteignasali nokkur...
SlúðurÓlína í stuði en skaðvaldar sleppa15. október 2020 Baráttukonan Ólína Þorvarðardóttir hefur svo sannarlega snúið lukkuhjólinu sér í hag frá því hún var sniðgengin við val á nýjum þjóðgarðsverði á Þingvöllum. Ólína fékk réttlætinu fullnægt og ríkið varð að greiða henni 20 milljónir krónur í bætur þótt málið hefði ekki aðrar afleiðingar fyrir skaðvalda hennar. Ari Trausti Guðmundsson, alþingismaður VG, situr enn sem fastast sem formaður Þingvallanefndar. Ólína...
SlúðurCovid-19Kófsveittur covidsjúklingur reyndi að …14. október 2020 Á meðal þeirra sem voru svo óheppnir að veikjast af Covid er sjálfur Eiríkur Jónsson fjölmiðlamaður. Hann lýsti veikindum sínum með afar dramatískum hætti og hvernig hann barðist kófsveittur við veiruna. Eiríkur er einn grimmasti fyrirsagnasmiður samtímans. Hann á fyrirsagnir sem sumar hverjar hafa nánast sett fjölmiðil hans í gröfina. Þar var um að ræða Ísafjarðarmálið og kennarann sem sakaður...
SlúðurSigmundur Davíð skammar Ybbana13. október 2020 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er einn af skrautlegri stjórnmálamönnum Íslands. Hann hefur einstaka hæfileika á að vekja á sér athygli. Nú seinast var það með grein sinni um Ybbana í Morgunblaðinu. Í löngu máli greinir hann þar hóp fólks sem telur sig hafið yfir annað fólk. Birtir hann skjáskot máli sínu til stuðnings. Þar er meðal annars vísað til...
SlúðurCovid-19Kári var hafður að fífli12. október 2020 Orðrómur: Uppi varð fótur og fit á sunnudagsmorgun þegar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, upplýsti á Bylgjunni að 75 manns hefðu greinst með veiruna þann daginn. Þegar opinberar tölur voru útgefnar kom á daginn að umtalsvert færri höfðu orðið fyrir högginu eða 60 manns. Mogginn, Mannlíf og fleiri miðlar neyddust til að leiðrétta rangar tölur Kára sem brást snakillur við....
SlúðurKristján Þór gerir allt brjálað9. október 2020 Kristján Þór Júlíusson, ráðherra sjávarútvegs og landsbúnaðar, hefur bókstaflega hleypt öllu í bál og brand með ummælum sínum um að sauðfjárbændur stundi starf sitt af áhugamennsku. Um allt land er ráðherranum úthúðað fyrir taktleysi og áhugaleysi á einni mikilvægustu starfsgrein Íslendinga. Fyrir var Kristján í ímyndarkreppu vegna Samherja og tengsla sinna við frændur sína og vini þar. Andstæðingar hans hafa...
SlúðurAfkomandi sálmaskálds í ónáð biskups8. október 2020 Það þykir ekki farsælt fyrir presta og aðra starfsmenn Þjóðkirkjunnar að andmæla yfirstjórninni. Á meðal þeirra sem eru í ónáð Agnesar Sigurðardóttur biskups er séra Úrsúla Árnadóttir sem í tvígang hefur kært það að brotið var á henni. Í bæði skiptin vann hún málin og úrskurðað var að biskup hefði brotið jafnréttislög. Hermt er að arkitektinn á bak við brotin...
SlúðurLítið að marka Markan7. október 2020 Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, glímir við fjölmörg vandamál sem ýmist beinast að störfum hennar eða annarra kirkjunnar þjóna. Á meðal heittrúaðra heyrist það sjónarmið að Guð ætti að hjálpa biskupnum. Helsti aðstoðarmaður Agnesar er Pétur Markan, upplýsingafulltrúi og fyrrverandi sveitarstjóri, sem annast hliðvörslu fyrir biskupinn og er sá ráðgjafi sem hefur hvatt til djarfra ákvarðana eins og þeirrar að afskræma...
SlúðurÁgúst Ólafur með dólgshátt6. október 2020 Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingar, á erfitt uppdráttar þessa dagana. Þingmaðurinn er enn sakaður um kvenfyrirlitningu en hann áreitti blaðakonu á Kjarnanum á sínum tíma og baðst þá afsökunar og vék af þingi um hríð og vann í áfengisvanda sínum. Að þessu sinni niðurlægði hann Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra með því að kenna ríkisstjórn hennar við Bjarna Benediktsson í útvarpsþættinum Sprengisandi....