SlúðurBorgar sárlangar á þing5. október 2020 Aðstoðarmaðurinn Borgar Þór Einarsson er sagður vera í startholunum til þess að bjóða sig fram í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Borgar er aðstoðarmaður Guðlaugs þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og lendir í þeirri erfiðu stöðu, ef af framboði verður, að slást um þingsæti við sinn eigin ráðherra sem sjálfur þarf að verjast kjarnakonunum Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Sigríði G. Andersen, alþingismanni og...
SlúðurUmdeild Þórdís Kolbrún vill meira3. október 2020 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála og iðnaðar, ætlar að bjóða sig fram í norðvesturkjördæmi eftir ár. Þórdís er varaformaðir Sjálfstæðisflokksins og var lengi vel ein af helstu vopnarstjörnum hans. Fræg mynd af henni á kostuðu smitdjammi með áhrifavaldinum Evu Laufey Hermannsdóttur og öðrum vinkonum sínum varð til þess að ímynd hennar snarversnaði. Afsökunarbeiðni hennar eða óljós játning um mistök...
SlúðurÆvareiður prestur í Skálholti2. október 2020 Bænabréf, sem skilið var eftir í kór Skálholtskirkju vegna þeirrar ákvörðunar kirkjuráðs og Kristjáns Björnssonar vígslubiskups að rukka alla þá sem heimsóttu kirkjuna, vakti mikla athygli. Þar lýsti starfsmaður Skálholtskirkju því sem synd að rukka syrgjendur og aðra sem vildu finna frið, gleði eða huggun. Margir fallast á þaða sjónarmið að Þjóðkirkjan seilist of langt í markaðshyggju og jafnvel græðgi...
SlúðurSóley smalar í Samfylkingu1. október 2020 Baráttujaxlinn Sóley Tómasdóttir, fyrrum leiðtogi Vinstri-grænna í Reykjavík, hefur gengið til liðs við Samfylkinguna. Hún hefur jafnframt lagt sitt að mörkum til að draga aðra með sér í flokkinn með því að skora á fleliri að koma. Sóley lýsti því að hvatinn að breytingunni sé sá að hún vilji tryggja að Heiða Björg Hilmisdóttir verði endurkjörinn sem varaformaður Samfylkingar og...
SlúðurHalldór tryllir verkalýðsleiðtoga30. september 2020 Algjört hatur ríkir á milli atvinnurekenda og verkalýðsforystunnar. Svo slæmt er ástandið að innan hreyfingarinnar treysta fæstir sér til að ræða við Halldór Benjamín Þorgergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Halldór er almennt talinn stríðsgjarn og gjarn á að hella olíu á eld. Dæmi um það er sú hótun að segja upp lífskjarasamningnum. Framkoma hans þykir bera keim af því sem gerðist...
SlúðurÞrír þingmenn Pírata á förum28. september 2020 Orðrómur Píratar standa frammi fyrir því að reyndir þingmenn á besta aldri ætla að hætta. Helgi Hrafn Gunnarsson og Smári McCarthy lýstu því báðir yfir um helgina að þeir gæfu ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir kjörtímabilið. Báðir eru þeir þingreyndir og njóta vinsælda. Ákvörðun þeirra er því áfall fyrir flokkinn. Við þetta bætist að Jón Þór Ólafsson...
SlúðurSamherjasonur í klandri hjá Eimskip25. september 2020 Framganga Eimskipafélags Íslands í að eyða skipum í Asíu var reifuð í þætti Kveiks. Sláandi upplýsingar voru lagðar fram um þann skollaleik sem átti sér stað við að koma skipunum í gegnum fyrirtækjaflækju á eyðingarstað þar sem vafasamt fyrirtæki eyðir skipum með hætti sem er ekki samþykktur í alþjóðasamfélaginu og fara fram hjá reglum sem gilda um slíkt. Forstjóri Eimskips,...
SlúðurSigríður er fúl og niðurlægð24. september 2020 Sigríður Andersen, alþingismaður Sjálfstæðisflokks og brotthrakinn dómsmálaráðherra, er til ófriðs í stjórnarsamstarfinu. Eins og kom fram í Silfrinu á RÚV telur hún Vinstri græn vart vera samstarfshæf vegna ólgunnar þar innandyra. Öllum má ljóst vera að Sigríður er fúl og fjarri því að vera samstarfsfús. Það er rakið til þess að hún hefur ekki átt afturkvæmt á ráðherrastól eftir Landsdómsklúðrið...
SlúðurSpæjari Samherja skildi eftir fingraför24. september 2020 Þorbjörn Þórðarson, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2, er seinheppinn í starfi sínu sem spæjari Samherja. Þorbirni er ætlað, ásamt Jóni Óttari Ólafssyni, að grafa upp sitthvað misjafnt um fyrrverandi kollega sína. Myndbönd á Youtube er helsta vopn Samherja. Þeir kumpánar hafa haft Helga Seljan, fréttamann Kveiks, til sérstakrar skoðunar með þann einbeitta vilja að leiðarljósi að leiða fram sannanir um illvilja...
SlúðurBallarin á leynifundi með Ármanni22. september 2020 Orðrómur Ein stærsta ráðgátan eftir útboð Icelandair er höfnunin á tilboði athafnakonunnar Michael Roosevelt Ballarin sem hermt er að hafi ekki getað sýnt fram á greiðslugetu eða tryggingar þegar eftir þvi var leitað á miðvikudaginn í síðustu viku. Heimildir herma að umsjónaðilar útboðsins, Landsbanki og Íslandsbanki hafi ítrekað reynt að fá umrædda staðfestingu en við því hafi Ballarine ekki orðið....
SlúðurBjörn Ingi fær uppreist æru21. september 2020 Sú var tíðin að Egill Helgason fjölmiðlamaður og Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi fjölmiðlakóngur, elduðu saman silfur grátt. Egill taldi Björn Inga á sínum tíma vera einhvern versta frammámann þjóðarinnar og lýsti honum sem slíkum. Þegar skomyndateiknarinn Henry Þór Baldursson lenti með teikningar sínar undir eignarhaldi Björns Inga sendi Egill harðorðan póst þar sem hann skildi ekki hvernig Henry gæti verið...
SlúðurMiðflokksmaður vildi konuna hans19. september 2020 Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðar, hefur afhjúpað ýmislegt eftir að honum var bolað út úr stjórnmálum á Ísafirði. Hann fer gjarnan mikinn á Twitter og varpar ljósi á viðhorf sem flestir töldu að væru horfin. Hann tók Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrir nýverið og sagði stutta sögu af símtali sem ungur maður hefði fengið frá Miðflokksmanni: Fyrir síðustu kosningar fékk...