InnlentNógu fífldjarfur til að flytja tangó – Glænýr hlaðvarpsþáttur væntanlegur í kvöld29. nóvember 2022 Það er allt lagt í sölurnar í hlaðvarpi Mannlífs og nú hefur Jón Sigurður Eyjólfsson, sem sér um þáttinn Rúntað með Rucio, ákveðið að spila og syngja tangó fyrir áheyrendur í næsta þætti sem jafnframt er sá níundi í röðinni. Hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur leikur frægasta tangó sem saminn hefur verið en það...
LandiðBreiðafjarðaferjan verður norsk – Aðeins eitt tilboð barst í skipið29. nóvember 2022 Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í október í Breiðafjarðaferju, til siglinga í Breiðafirði. Aðeins barst eitt tilboð. Bæjarins Besta segir frá að í útborðinu hafi staðið: „Skipið mun sigla milli Stykkishólms og Brjánslækjar sem er flokkað sem „C Class“ hafsvæði. Áætlað er að gera samning um leigu á skipinu án áhafnar í 5 mánuði, frá 1. janúar 2023 til 31. maí...
InnlentBjörgvin Páll hlaut titilinn „SMILER haust 2022“: „Björgvin Páll er frábær fyrirmynd“29. nóvember 2022 Björgvin Páll Gústavsson handknattleiksmaður var heiðraður sem SMILER hausts 2022 fyrir að vera flott fyrirmynd. Björgvin sem upplifði erfiða tíma í æsku vegna kvíða, hefur notað þá reynslu til að leiðbeina og styrkja börn og unglinga. Um tíma var hann vistaður á Bugl; barna- og unglingageðdeild og þekkir það að missa fótfestu og upplifa sig vera lítils virði. Bók Björgvins...
InnlentKristinn átti einkafund með Lula da Silva: „Spennan í höfuðborginni Brasilíu er nánast áþreifanleg“29. nóvember 2022 Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er nú á ferðalagi ásamt félögum sínum hjá Wikileaks, um Suður- Ameríku. Í gær hitti hann nýkjörinn forseta Brasilíu, Lula. Ræddu þeir félagar um málefni Julian Assange, fyrrum ritstjóra Wikileaks sem nú sætir pólitískum ofsóknum en hann bíður dóms í bresku fangelsi en Bandaríkjamenn vilja fá hann framseldann svo hægt verði að kæra hann fyrir njósnir....
MenningBergþór les bólfimi manna útfrá aksturslagi: „Þá er hann að öllum líkindum vonlaus elskhugi“29. nóvember 2022 Óperusöngvarinn og fagurkerinn Bergþór Pálsson er þeirrar skoðunar að aksturslag manna og hegðun þeirra í umferðinni segi ýmislegt um það hvernig þeir standa sig í rúminu. Hann tjáir hana í færslu á Facebook og deilir þar viðvörunarorðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að ökumenn skuli hætta að skjóta sér hratt á milli akreina í umferðinni. Bergþór skilur einfaldlega ekki þessa hegðun...
InnlentSalka Sól prjónaði peysu á Volodomír Selenskíj – MYNDIR!29. nóvember 2022 Leik- og söngkonan Salka Sól gerði sér lítið fyrir og prjónaði lopapeysu á Volodomír Selenskíj forseta Úkraínu. Salka Sól greinir frá þessu samfélagsmiðlinum á Facebook, en það var utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, sem afhenti forsetanum peysuna góðu. Þórdís heilsar forsetanum í Úkraínu. Mynd / Skjáskot af Facebook. Gefum Sölku Sól orðið: „Fékk mögulega undarlegasta símtal sem ég hef fengið...
InnlentForsætisráðherra: „Skammtímasamningur myndi fela í sér minni aðkomu stjórnvalda“29. nóvember 2022 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur ekkert óeðlilegt að rætt sé um skammtímasamning við samningaborðið í ljósi óvissunnar í efnahagsástandinu í heiminum, eins og segir í grein ruv.is. Kemur fram að samninganefnd Eflingar hafi sent Samtökum atvinnulífsins tilboð um kjarasamning sem gildir til eins árs; felur í sér krónutöluhækkun upp á 57 þúsund krónur á mánuði. Katrín segir: „Eðli máls samkvæmt yrði...
Innlent„Jón gengur um með bensínbrúsa og skvettir úr honum á glæður mannfyrirlitningar og afmennskunar“29. nóvember 2022 Þórunn Ólafsdóttir ritar beittan pistil í Facebook-síðu sinni; hún er ekki sátt við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Í áðurnefndri færslu fer Þórunn yfir ákvörðun dómsmálaráðherra að neita flóttafólki – sem er barnlaust og heilbrigt – um heilbrigðisþjónustu; og einnig þá orðræðu sem Þórunn telur Jón hafa notað gegn flóttaólki sem sótt hefur um vernd hér á landi. Tekið skal fram að...
InnlentRaggi Sig gengur til liðs við Fram29. nóvember 2022 Jafnbesti varnarmaður Íslands fyrr og síðar og fyrrum landsliðsmaður Íslands, Ragnar Sigurðsson, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Fram í Bestu deild karla, samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Þjálfari Fram, gamla varnartröllið Jón Sveinsson, tilkynnti leikmönnum sínum þetta í gær; en þá var Ragnar kynntur til leiks hjá Frömurum. Hinn 36 ára gamli Ragnar lagði skóna á hilluna í fyrra eftir magnaðan atvinnumannaferil og...
InnlentMargrét verður á götunni á fimmtudaginn: „Það bíður hennar ekki neitt“29. nóvember 2022 Ef ekkert breytist næstu tvo daga verður Margrét Sigríður Guðmundsdóttir, sextugur MS-sjúklingur, á götunni á fimmtudaginn. Þá missir hún húsnæði sitt sem var skammtavistun á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Á sama tímapunkti mun Margrét þar að auki standa eftir aðhlynningarlaus.„Það bíður hennar ekki neitt,“ segir Flóki Ásgeirsson, lögmaður Margrétar, sem bendir á að bæði ríki og sveitarfélög hafi engin úrræði til...
Innlent„Kynjakvótar eru kristaltær forræðishyggja og afar andlýðræðislegt fyrirbæri“29. nóvember 2022 Blaðamaðurinn skeleggi Jakob Bjarnar Grétarsson segir sínar skoðanir umbúðalaust á samfélagsmiðlinum Facebook: „Íslensk pólitík er skrítin skrúfa. Margir flokkanna vilja tala um sig sem frjálslynda. En eru á sama tíma djúpt sokknir í dyggðaskreytingar og að sverja pólitískum rétttrúnaði hollustu sína.“ Segir einnig að „við hins vegar skilgreinum fyrirbæri ekki út frá fagurgala heldur gjörðum og aðferðum sem menn aðhyllast....
InnlentHeimilisofbeldismálum fjölgaði mikið – Þróunin heldur áfram29. nóvember 2022 Fjölgunin sem varð á heimilisofbeldismálum á Íslandi þegar Kóvid geisaði heldur áfram. Skýrsla ríkislögreglustjóra um þennan málaflokk fyrir fyrstu níu mánuði ársins sýnir glögglega hvernig heimilisofbeldismálum fjölgaði mikið árið 2020; hefur sú þróun haldið áfram síðan, þó hægt hafi nokkuð á henni. 833 heimilisofbeldismál voru tilkynnt til lögregluembætta á Íslandi, frá janúar til og með september á þessu ári; voru...