Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er nú á ferðalagi ásamt félögum sínum hjá Wikileaks, um Suður- Ameríku. Í gær hitti hann nýkjörinn forseta Brasilíu, Lula.
Ræddu þeir félagar um málefni Julian Assange, fyrrum ritstjóra Wikileaks sem nú sætir pólitískum ofsóknum en hann bíður dóms í bresku fangelsi en Bandaríkjamenn vilja fá hann framseldann svo hægt verði að kæra hann fyrir njósnir. Eftirfarandi texta skrifaði Kristinn á Facebook í dag:
„Nýkjörinn forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva (eða bara Lula), gaf sér tíma til að hitta mig og mína félaga í föruneyti WikiLeaks á ferð um Rómönsku Ameríku í gærkvöld. Mér þótti sérstaklega vænt um fundinn í ljósi þess að hann er að fara í gegnum gríðarlega erfið valdaskipti þar sem rífa þarf stjórnartaumana af Bolsonoaro. Spennan í höfuðborginni Brasilíu er nánast áþreyfanleg.
Við áttum gott spjall á löngum einkafundi um málefni Julian Assange og þær pólitísku ofsóknir sem beinast gegn honum og WikiLeaks. Lula hefur sjálfur þurft að þola slíkar ofsóknir og fangelsun og er pólitísk upprisa hans söguleg með kosningasigri fyrir tæpum mánuði.Þessi hlýi og þægilegi maður hét áframhaldandi stuðningi við þá baráttu að hrinda ógn við fjölmiðlafresli i heiminum sem ofsókninar gegn Julian fela í sér.Brasilía, stærsta og öflugasta ríki Suður Ameríku er að senda afdráttarlaus skilaboð til Biden stjórnarinnar. Það hefur Gustavo Petro forseti Kólumbíu þegar gert með skýrum hætti.
Fleiri lönd framundan.“
































Athugasemdir