InnlentKaren fann töfraráðið við plágunni: „Hafið þið prófað þetta?”6. ágúst 2021 Lúsmý er að valda Íslendingum miklum usla og einfaldlega að gera því lífið afar leitt; eðlilega eru margir orðnir ansi þreyttir á þessum fjanda sem herjar á fólk af miklum krafti, en gerir þó engan greinarmun eða stéttarmun á fólki; virðist hata allt fólk alveg jafnmikið, og það ber að virða. Í færslu á samfélagsmiðli segir Karen Geirs að hún...
Innlent„Rannsókn á tilkynningum vegna gruns um röskun á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19“6. ágúst 2021 „Óháðir aðilar munu gera rannsókn á tilkynningum sem Lyfjastofnun hafa borist. Markmiðið er að leita skýringa á orsökum og veita viðeigandi ráð,“ segir í tilkynningu frá Lyfjastofnun. Einnig það að „forstjóri Lyfjastofnunar, landlæknir og sóttvarnalæknir hafa ákveðið að kalla til óháða aðila til að rannsaka gaumgæfilega þau tilfelli sem varða röskun á tíðahring kvenna í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 og...
InnlentDV kærir LSH: „Óumdeilt að upplýsingar um bólusetninga sjúklinga á LSH eiga erindi við almenning“6. ágúst 2021 Hinn gamli og rótgróni fjölmiðill DV, hefur kært Landspítalann vegna synjunar um upplýsingar um bólusetningarstöðu þeirra sem leggjast inn á spítalann, bæði á gjörgæslu og á almenna Covid-19 deild, vegna veikinda af völdum Covid-19 sjúkdómsins. Stjórnendur DV eru afar ósáttir með þá tilkynningu sem Landspítalinn gaf út í síðustu viku að slíkar upplýsingar yrðu framvegis ekki veittar, og síðan þá...
Innlent„Staðan er grafalvarleg – það má ekki leika sér með öryggi fólks og gera það að pólitísku bitbeini“6. ágúst 2021 Ólafur Þór Gunnarsson er læknir og situr einnig í velferðarnefnd og hann segir að „við þurfum að fá bestu og mestu mögulegu upplýsingar frá okkar sérfræðingum.“ Ólafur er áhyggjufullur yfir stöðunni hér varðandi Delta-afbrigðið: „Það kemur sumpart á óvart hvað sérfræðingarnir meta þennan veirustofn mun hættulegri og að mörgu leyti aggressífari heldur en fyrri stofna, og það er klárlega eitthvað...
InnlentSimmi Vill: „Ráðamenn taka ekki tillit til fólks í einkageiranum og segja að við getum unnið heima“6. ágúst 2021 Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur á „tilfinningunni að við búum í tvöföldu samfélagi“ hér á Íslandi og að gerður sé mannamunur á fólki hvað varðar Covid 19 – þeim skæða fjanda sem skekur íslenskt samfélag og heiminn allan. Og ofantalið pirrar Sigmar mjög svo mikið og hann vill meina að staðan í dag varðandi heimsfaraldurinn sé eins og í kappleik þar...
Innlent„Í nótt kvaddi elskulegur pabbi minn þennan heim“5. ágúst 2021 „Kæru vinir mig vantar ykkar hjálp! Í nótt(01.08.2021) kvaddi elskulegur pabbi minn þennan heim. Hann var aðeins 52 ára,“ skrifar Magdalena María Árnason.Hún segir að faðir hennar hafi dáið þegar var í heimsókn á Íslandi.„Hann kom í heimsókn frá Póllandi til okkar fyrir viku síðan. Vegna þess þarf ég að biðja fólk um hjálp við að safna pening til að...
InnlentBæjarráð Árborgar: „Handtaka skal hænur tafarlaust og hanar bannaðir með öllu“5. ágúst 2021 Bæjarráð Árborgar hefur úrskurðað um hænsnahald í þéttbýlinu og núna er leyfilegt að halda fimm hænur á hverri lóð, en stranglega bannað er að halda hana. Þetta þýðir með öðrum orðum að lausaganga hænsna er með öllu óheimil í Árborg; sleppi hænsni úr gerði skal strax gera ráðstafanir við að handsama þau. Þá kemur fram í úrskurði bæjarráðs að „komist...
Innlent„Hrun Sjálfstæðisflokksins er ein af stærstu sögum okkar tíma“ og „Bjarni er líklega lesblindur“5. ágúst 2021 Formaður Sósíalistaflokks Íslands, Gunnar Smári Egilsson segir að „eldra Sjálfstæðisflokksfólk upplifir sig svikið af flokki sínum, sem það hefur stutt í blindni alla sína hunds- og kattartíð. Þegar það kemur á eftirlaunaaldur rennur upp fyrir því að þessi flokkur var aldrei þeirra flokkur, heldur aðeins flokkur Engeyinga og annars auðfólks.“ Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokks Íslands. Gunnar Smári er þó...
Innlent„Ríkisstjórnin er í þagnarbindindi og er hætt að hlusta á Þórólf“5. ágúst 2021 Formaður velferðarnefndar Alþingis, þingmaður Samfylkingarinnar, lögfræðingurinn og leikkonan Helga Vala Helgadóttir segir „ljóst að sóttvarnalæknir telji að ríkisstjórnin hafi ekki hlustað á tillögur hans um aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 hér á landi.“ Hún bendir á að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir „sé augljóslega að segja að ríkisstjórnin sé ekki lengur að hlusta á okkur; þannig að hún ber...
InnlentLögreglan lýsir eftir Guðbrandi5. ágúst 2021 Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni partinn í gær, 4. ágúst 2021, og var hann þá á bifreiðinni YB-720, KIA SORENTO blárri að lit.Guðbrandur er klæddur í svartan jakka og bláar gallabuxur. Þeir sem hafa orðið varir við bifreiðina YB-720 og geta gefið upplýsingar um ferðir Guðbrands eru...
Innlent„Heilbrigðisráðherra reynir að þagga niður í læknum og stefnir lífi og heilsu landsmanna í hættu.“5. ágúst 2021 Þorbjörn Jónsson er sérfræðingur í ónæmisfræði og blóðgjafafræði og hefur ýmislegt að segja varðandi ástandið í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. „Á fundi heilbrigðisráðherra með Læknaráði Landspítala í janúar 2020 var meðal annars fjallað um bráðamóttöku spítalans. Þá mæltist ráðherranum svo: „Ég verð að nota tækifærið til að segja hér við Læknaráð að það er töluverð áskorun fyrir ráðherra að standa með...
InnlentHannes keypti höll: Verðið var 165 milljónir – Sjáið myndirnar!5. ágúst 2021 Landsliðsmarkmaðurinn frábæri í fótbolta, og leikmaður Vals, Hannes Þór Halldórsson, og eiginkona hans, Halla Jónsdóttir, hafa keypt glæsilega fasteign við Sævarland 20 í Fossvogi, sem er innarlega í götunni; rétt við frábært útivistarsvæði sem aðskilur Sævarland og Ljósaland. Nokkuð ljóst er að Hannes er vel „múraður“ eftir langan og glæsilegan feril sem enn sér ekki fyrir endann á – sem...