Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Heilbrigðisráðherra reynir að þagga niður í læknum og stefnir lífi og heilsu landsmanna í hættu.“

„Heilbrigðisráðherra reynir að þagga niður í læknum og stefnir lífi og heilsu landsmanna í hættu.“

Þorbjörn Jónsson er sér­fræð­ingur í ónæm­is­fræði og blóð­gjafa­fræði og hefur ýmis­legt að segja varð­andi ástandið í heil­brigð­is­kerfi okkar Íslend­inga.

„Á fundi heil­brigð­is­ráð­herra með Lækna­ráði Land­spít­ala í jan­úar 2020 var meðal ann­ars fjallað um bráða­mót­töku spít­al­ans. Þá mælt­ist ráð­herr­anum svo: „Ég verð að nota tæki­færið til að segja hér við Læknaráð að það er tölu­verð áskorun fyrir ráð­herra að standa með Land­spít­ala þegar það koma álykt­anir á færi­bandi sem segja að þessi stofnun sé nán­ast hættu­leg.“

Þorbirni varð „hugsað til þess­ara orða ráð­herr­ans, nú hálfu öðru ári síðar, þegar vandi bráða­mót­tök­unnar virð­ist verri en nokkru sinni. Orð heil­brigð­is­ráð­herra féllu í grýttan jarð­veg hjá læknum enda telja læknar það ávallt skyldu sína að benda á hættur sem ógna lífi og öryggi sjúk­linga,“ segir Þorbjörn og heldur ótrauður áfram:

„Í kjöl­far fund­ar­ins gerði ráð­herra breyt­ingar á lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu og nam úr gildi ákvæði um Læknaráð, sem var ein­beitt og alvar­leg til­raun ráð­herra til að þagga niður í lækna­stétt­inni.“

Bætir þessu við:

„Und­an­farnar vikur hefur mikið farið fyrir umfjöllun um starf­semi bráða­mót­töku Land­spít­ala og Félag bráða­lækna sendi í byrjun júní frá sér harð­orða ályktun um óboð­legar vinnu­að­stæður. Þeir álykt­uðu meðal ann­ars:

„Nú þegar og í allt sumar næst ekki skil­greind neyð­ar­mönnun bráða­lækna eins og gert er ráð fyrir í verk­falli, það er sjö vakta­línur. Í sumar verða að megn­inu til fimm vakta­línur, stundum færri. Atvinnu­rek­endur okkar, Land­spít­ali og íslenska ríkið, þvinga okkur og annað heil­brigð­is­starfs­fólk til vinnu við þessar óvið­un­andi aðstæður.“ Enn fremur segja bráða­lækn­arnir:

„Það er algjör­lega ljóst að á bráða­deild Land­spít­ala er verið að stofna veikum og slös­uðum sjúk­lingum í hættu með grafal­var­legri und­ir­mönnun. Líkur á alvar­legum atvikum og jafn­vel manns­látum í sjúk­linga­þjón­ustu eru yfir­gnæf­andi. Öryggi sjúk­linga er ekki tryggt. Lífi og heilsu lands­manna er stefnt í hættu.“

Að lokum hnykktu bráða­lækn­arnir á ábyrgð stjórn­enda Land­spít­al­ans og stjórn­valda:

„Komi til alvar­legra atvika á bráða­deild sem rekja má til mann­eklu, ófull­nægj­andi starfs­að­stöðu eða ann­arra tengdra þátta, vísum við allri ábyrgð á þeim atvikum til for­stjóra Land­spít­ala, Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra sem æðsta yfir­manns heil­brigð­is­mála, Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og Alþingis sem fer með fjár­veit­ing­ar­vald rík­is­ins.“

Þorbjörn segir að þetta séu „vissu­lega stór orð – en læknum ber sið­ferð­is­leg skylda til að segja frá því sem stór­lega fer aflaga í heil­brigð­is­þjón­ust­unni. Það er sér­stak­lega brýnt ef ítrekað hefur verið bent á brotala­mirnar árum saman án þess að við­un­andi úrbætur hafi feng­ist.“

Á und­an­förnum árum hafa læknar Land­spít­ala og sam­tök lækna margoft vakið athygli á mál­efnum spít­al­ans og bráða­mót­tök­unnar. Má meðal ann­ars nefna Lækna­fé­lag Íslands, Læknaráð, sjúkra­hús­lækna og röntgen­lækna. Þver­fag­legt Fagráð Land­spít­ala lýsti nýlega yfir áhyggjum af mönnun á Land­spít­ala í sumar og ráðið tók sér­stak­lega undir áhyggjur bráða­lækna varð­andi öryggi sjúk­linga.

„Stjórn­völd hafa látið gera úttektir og skýrslur um ágalla og úrbætur auk þess sem málið hefur verið tekið til umræðu af þing­mönnum. Þrátt fyrir þetta stendur á við­un­andi úrbótum og ástandið á bráða­mót­tök­unni hefur síst batnað í áranna rás,“ segir Þorbjörn og bætir þessu við:

„Aðallega hefur verið fjallað um bráða­mót­töku Land­spít­ala hér að framan, en vand­inn þar er hluti af stærri vanda spít­al­ans. Sig­ur­bergur Kárason gjör­gæslu­læknir rit­aði grein í Lækna­blaðið 2018 um veik­leika í starf­semi gjör­gæslu­deilda spít­al­ans. Hann benti meðal ann­ars á fjölda gjör­gæslu­rýma sem þá var undir Evr­ópu­með­al­tali. Tækja­kaupafé hefur verið af skornum skammti og í fyrra sáum við að Land­spít­ali kom van­bú­inn til leiks í COVID-far­aldr­inum varð­andi grein­ingu veiru­sjúk­dóma. Of lítið tækja­kaupafé er ógn við öryggi starf­sem­innar. Á skurðsviði hefur opin­ber­lega verið fjallað um lok­anir á skurð­stofum, fækkun leg­u­rýma og aðhald í inn­kaupum. Afleið­ing­arnar litið til lengri tíma eru lengri biðlistar og lak­ari þjón­usta við sjúk­linga.“

Að mati Þor­bjarnar eru vanda­mál Land­spít­ala marg­þætt og vissu­lega ekki öll auð­leyst.

„Aug­ljós­lega þarf að leysa mönn­un­ar­vanda­mál spít­al­ans og gera hann að eft­ir­sóttum vinnu­stað á ný fyrir lækna og aðrar heil­brigð­is­stéttir. Sjúk­lingar sem þurfa ekki lengur á þjón­ustu sjúkra­húss­ins að halda þurfa að kom­ast á við­eig­andi stað, til dæmis hjúkr­un­ar­heim­ili eða heim með við­eig­andi heima­hjúkrun og aðstoð. Skoða þarf með opnum huga hvort heppi­legt sé að semja við einka­að­ila um slíka þjón­ustu. Fleiri atriði mætti tína til sem ekki gefst færi á að sinni.“

Hann segir Svandísi Svav­ars­dóttur bera fulla „ábyrgð á því að fundin sé far­sæl lausn á vanda­málum Land­spít­ala. Íslenskur almenn­ingur, sjúk­lingar og starfs­menn spít­al­ans eiga það skilið. Æðstu stjórn­endur heil­brigð­is­kerf­is­ins eiga að hafa þau meðöl í höndum sér sem duga til úrbóta, meðal ann­ars að fjár­magna úrbætur og ráðg­ast við þá sem best þekkja til. Það þarf að ger­ast fljótt. Ætlar heil­brigð­is­ráð­herra nú að standa með Land­spít­ala og greiða úr ára­löngum og við­var­andi vanda hans?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ