InnlentSólveig var mjög tilfinninganæm í gær: „Var henni góður og elskaður félagi“21. desember 2020 Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var mjög tilfininganæm í gærkvöldi þegar hún keyrði kisa, gæludýr móður hennar heitinnar, til nýs eiganda. Kötturinn er ýmist kallaður Spói eða Múlakoff. Sólveig fjallar um tilfinningar sínar í gærkvöldi í færslu á Facebook þar sem hún birtir fallega mynd af móður sinni með köttinn. „Gleðilegar vetrarsólstöður; nú fer daginn að lengja og Jesúbarnið fæðist...
InnlentFlúði á nærbuxunum með óttasleginn son á Seyðisfirði: „Ég sá fullt af húsum bara detta niður“19. desember 2020 Brimir Christophsson Büchel, sem er aðeins 11 ára, tókst ásamt föður sínum að forða sér á hlaupum á síðustu stundu. Hús þeira feðga stendur rétt fyrir ofan bryggjuna. Faðir hans var aðeins klæddur nærbuxunum og bol en Brimir í buxum og bol. Það gafst enginn tími til að klæðast skjólbetri flíkum. Þannig til fara lögðu þeir á flótta, rétt áður...
InnlentMikil samúð með Seyðfirðingum: Hjartnæmar kveðjur frá heimsbyggðinni19. desember 2020 Seyðisfjörður er þjóðargersemi og einn fallegasti kaupstaður landsins. Þyrping húsa í norskum stíl er eitt sérkenni staðarins sem oft er kallaður Aldamótabærinn. Nú ríkir þar djúp og mikil sorg eftir hrikalegar náttúruhamfarir. Neyddust nokkrir bæjarbúa til að forða sér á hlaupum undan aurskriðunum. Í gær var svo tekin sú ákvörðun að rýma svæðið. Fyrsti viðkomustaður þeirra túrista sem ferðast sjóleiðina...
InnlentSauð upp úr hjá feðrum: „Skíta uppá bak með feminískum áróðri“18. desember 2020 Óhætt er að segja að innlegg Gunnars nokkurs í Facebook-hópinn Pabbatips hafi vakið hörð viðbrögð. Gunnar þessi segir að sér sé algjörlega misboðið eftir að hafa horft á auglýsingu Íslandsbanka þar sem feministinn Þorsteinn V. Einarsson segir frá hugmyndum sínum. Gunnar segist ætla að skipta um banka eftir þetta. „Sælir pabbar, nú þar sem íslandsbanki er að skíta uppá bak...
InnlentÍbúar hlaupa undan nýrri skriðu á Seyðisfirði – Annað hús hrundi og bærinn mögulega rýmdur18. desember 2020 Rétt í þessu féll önnur aurskriða á Seyðisfirði og í henni hrundi annað hús í bænum. Þá eru tvö hús hrunin í hinum miklu skriðum fyrir austan. Frá þessu er greint í tilkynningu frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Neyðarstigi hefur verið lýst á Seyðisfirði. „Stór aurskriða féll úr Botnabrún, milli Búðarár og Stöðvarlækjar, skömmu fyrir klukkan þrjú í dag og féll á...
InnlentEinhverfum syni Þórhalls sýnt ógnvekjandi myndband: „Hættu nú, þvílíkur viðbjóður“18. desember 2020 Þórhallur nokkur er gjörsamlega orðlaus eftir að tveimur einhverfum drengjum var sýnt ógnvekjandi myndband í grunnskóla þeirra í gær. Átta ára sonur hans var annar drengjanna. Þórhallur lýsir hneykslan sinni inni í hópi íslenskra feðra á Facebook. Lýsir hann málavöxtum þannig að drengjunum hafi upphaflega verið sýnt myndband um íslensku jólasveinana en í kjölfarið, þegar drengirnir hafi verið eftirlitslausir, hafi...
InnlentAðalheiður ætlaði ekki að trúa hverju var hent inn um gluggann hjá henni: „Var þvílikt óþægilegt“18. desember 2020 Útlit er fyrir óaldarástand í Grafarvoginum þar sem íbúar hafa verið hrekktir með ýmsum hætti undanfarna daga. Hið nýjasta er að inn um gluggan hjá Aðalheiði nokkurri var hent logandi froski sem setti allt í uppnám á heimilinu. Aðalheiður segir frá atvikinu inn í hópi hverfisbúa á Facebook. „Ég bý í Víkurhverfinu og það var hent inn um gluggan hjá...
InnlentÍslandsbanki sakaður um rasisma – Tara ver bankann – „Allt í einu farið að tala um kynþátt fólks“18. desember 2020 Auglýsingu Íslandsbanka þar sem rætt er við Þorstein V. Einarsson femínista hefur vakið nokkuð hörð viðbrögð á Facebook. Í athugasemdum eru nokkrir sem saka bankanum um rasisma. Auglýsingin er hluti af svokölluðum „bransasögum“ þar sem rætt er við ýmislegt fólk í samfélaginu. Nokkrir skrifa athugsemd og segja það rasisma hvernig Þorsteinn talar um hvíta menn. Hann haldi fram amerískri kreddu...
InnlentSteingrímur segir fólk misskilja „grenjandi minnihluta“ – „Hefur ekkert með grát að gera“18. desember 2020 Steingrím J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að orð hans um „grenjandi minnihluta“ séu misskilin af mörgum, þar á meðal Guðna Ágústssyni, fyrrverandi ráðherra. Guðni hjólaði í Steingrím í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær vegna ummæla Steingríms um að einungis „grenjandi minnihluta“ væri mótfallinn frumvarpi um Miðhálendisþjóðgarð. Ummælin, sem féllu á Alþingi, hafa þótt gífurlega óvinsæl meðal sumra. Hópur andstæðinga...
InnlentKári réttir reiðum Jóni sáttahönd – Átti að vera hrós að nefna börnin – „Það var ekki drengilegt“18. desember 2020 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, svarar í dag pistli Jóns Ívars Einarssonar, prófessors við læknadeild Harvard-háskóla í Boston. Þeir tveir hafa átt í nokkurskonar ritdeilu undanfarna mánuði. Jón Ívar kvartaði undan skoðanakúgun í gær, meðal annars af hendi Kára. Kári biðst hálfpartinn afsökunar á því í opna bréfinu í dag. Sjá einnig: Jón Ívar segir slúðrað að hann fái ekki...
InnlentÓlafur fagnar því að vera laus við neysluna: „Mér var orðið sama þó ég myndi deyja“17. desember 2020 Ólafur nokkur opnar sig um neyslu sína sem hafi nánast gengið af honum dauðum. Raunar varð neyslan til þess að honum var orðið saman um dauðann. Nú hefur Ólafur verið edrú frá þjóðhátíðardeginum í sumar og heldur í dag upp á hálfs árs edrúafmæli. Hann sér nú loksins tilganginn með því að lifa. Frá neyslu sinni segir Ólafur á Facebook-síðu...
InnlentHelgi horft upp á vini taka eigið líf: „Manni fannst maður ekki mega líða illa“17. desember 2020 Helgi Seljan fréttamaður hefur þurft að horfa á eftir vinum og jafnöldrum sem sviptu sig lífi á Reyðarfirði þar sem hann ólst upp. Þar hafi sjálfsvíg verið það algeng á árum áður að halft þorpið hafi verið reglulega í jarðarför. Frá þessu sagði Helgi í podcasti Snæbjörns Ragnarssonar, Snæbjörn talar við fólk, þar sem þeir ræddu heima og geyma. „Ég...