HeimurRússar gjöreyddu barnasjúkrahúsi í Úkraínu í loftárás – Tugir látnir8. júlí 2024 Að minnsta kosti 30 manns hafa látið lífið í sprengjuárás Rússa sem gerð var á borgir í Úkraínu í dag og var einni eldflauganna skotið á stærsta barnaspítala í Kænugarðs, höfuðborg Úkraínu. Talið er að um 40 eldflaugum hafi verið skotið inn fyrir landamæri Úkraínu og yrðu miklar skemmdir á ýmsum innviðum, verslunum og íbúðarhúsnæði samkvæmt fréttastofunni Reuters. „Allir viðbragðsaðilar...
HeimurAllt sem vitað er um Wagnerliða frá dauða foringjans:„Veldi Prigozhins sýnir enn og aftur lífsmark“24. júní 2024 Síðustu ár voru hinir ógnvekjandi málaliðar í Wagner-hópi Yevgeny Prigozhin, áberandi í stríðsfréttum heimsins en lítið hefur spurts til þeirra eftir að foringinn fórst er flugvél hans hrapaði. Hér má lesa hvað varð um málaliðana eftir dauða Prigozhin. Fyrir ári síðan hóf stofnandi Wagner hópinn, Yevgeny Prigozhin, skammvinna uppreisn gegn rússneska varnarmálaráðuneytinu. Málaliðar hans marseruðu í átt að Moskvu og...
HeimurSameinuðu þjóðirnar: „Gaza er hættulegasti staður í heimi fyrir hjálparstarfsmenn“17. júní 2024 Alls hafa 193 starfsfmenn Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir palestínska flóttamenn (UNRWA) verið drepnir í árásum Ísraelshers frá 7. október 2023. Aldrei áður hafa svo margir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna fallið í árásum. „Gaza er hættulegasti staður í heimi fyrir hjálparstarfsmenn. Síðan stríðið hófst hafa 193 starfsmenn UNRWA verið drepnir – Hæsta mannfall í sögu Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir þetta halda samstarfsmenn...
HeimurAntonio Guterres: „Hraði og umfang blóðbaðs á Gaza er umfram allt sem ég hef séð sem aðalritari“11. júní 2024 Antonio Guterres, framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna segist aldrei hafa séð jafn mikið blóðbað á svo skömmum tíma, frá því að hann hóf störf sem aðalritari SÞ. Í Jórdaníu stendur nú yfir ráðstefna vegna ástandsins á Gaza, í Palestínu en fyrir stuttu steig Antonio Guterres í pontu. „Hraði og umfang blóðbaðs og manndráps á Gaza er umfram allt sem ég hef séð...
HeimurAlþjóðadómsstóllinn í Haag – Ísrael skipað að hætta árásum á Rafah24. maí 2024 Ísrael verður að hætta öllum hernaðaraðgerðum sínum í borginni Rafah, vegna þess að þær hafa í för með sér of mikla hættu fyrir palenstínsku þjóðina. Þetta er niðurstaða Alþjóðadómsstólsins í Haag. Dómstóllinn kvað upp niðurstöðu sína eftir hádegi í dag en um er að ræða bráðabirgðaúrskurð í máli Suður-Afríku gegn Ísraelsríki. Ísrael er einnig skipað í úrskurðinum, að opna landamærin...
HeimurÍsraelar drápu fimm Ísraela16. maí 2024 Staðfest hefur verið af AFP-fréttastofunni að Ísraelsher drap fimm hermenn úr eigin röðum, í árásum er áttu sér stað á norðurhluta Gasasvæðisins í gær. Slösuð á sál og líkama.Mynd: Trausti Hafsteinsson Gríðarlega hörð átök hafa þar geisað á milli hermanna Ísraels og liðsmanna Hamas-samtakanna undanfarna daga. Í gær voru fimm ísraelskir hermenn drepnir fyrir mistök af eigin liðsmönnum í bænum...
HeimurSlóvenía ætlar að viðurkenna Palestínu: „Ég skora á Ísrael að hætta tafarlaust árásum sínum á Gaza“9. maí 2024 Forsætisráðherra Slóveníu, Robert Golob, tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins hafi nú hafið formlegt ferli til að viðurkenna Palestínu sem fullvalda ríki. Hann sagði að Slóvenía stefndi að því að viðurkenna sjálfstæða Palestínu á grundvelli landamæranna frá 1967, eða hvers kyns landamærum sem síðar gætu verið dregin upp vegna hugsanlegra framtíðarviðræðna milli Ísraels og Palestínu og umbóta sem palestínsk yfirvöld...
HeimurJens Laerke um lokunina inn á Gaza: „Mjög áhrifarík leið til að koma mannúðarhjálpinni í gröfina“7. maí 2024 Jens Laerke, talsmaður mannúðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir að með því að loka tveimur aðalleiðum inn á Gaza, sé algjörlega skrúfað fyrir hjálpargögnum, en það hafa Ísraelsmenn einmitt gert, þrátt fyrir að embættismenn hafi varað við því að hungursneyð breiðist út lengra suður með árás Ísraela. Laerke sagði í samtali við blaðamenn að „tvær aðalæðar til að koma hjálpargögnum inn á...
HeimurKFC lokar sölustöðvum í Malasíu vegna sniðgönguherferða3. maí 2024 KFC í Malasíu hefur tímabundið lokað nokkrum sölustöðum í landinu vegna ákalls um að sniðganga keðjuna vegna stríðs Ísraels á Gaza. KFC er meðal fjölda vestrænna vörumerkja í Malasíu, þar sem meira en 60 prósent íbúanna eru múslimar, sem hafa sætt sniðgöngu vegna tengsla þeirra við Ísrael. QSR Brands Holdings Bhd, sem rekur KFC og Pizza Hut veitingastaði í landinu,...
HeimurUm 200 lík fundust í fjöldagröf á Gaza: „Þar er að finna eldri konur, börn og unga menn“22. apríl 2024 Palestínumenn hafa uppgötvað fjöldagröf við Nasser-spítalans í Khan Younis-borg á Gaza, þar sem 180 lík hafa fundist hingað til, að því er Al Jazeera hefur komist að. Uppgötvunin var gerð á laugardaginn og hélt áfram í gær, varð eftir að Ísraelsher dró hermenn sína frá borginni 7. apríl. Meirihluti Khan Younis-borgar er eyðilagður eftir gegndarlausar sprengingar og harða bardaga undanfarna...
HeimurÍsraelsher sagður nota grát barna til að lokka Gazabúa í dauðagildru19. apríl 2024 Í myndband sem Al Jazeera-fréttastofan staðfesti, sem tekið var frá Nuseirat flóttamannabúðunum í miðborg Gaza 15. apríl, heyrist hljóð grátandi barna, sem virtust koma frá ísraelskri drónavél. Vitni segja þetta gert til að lokka íbúa svæðisins út úr skjóli sínu. Íbúar svæðisins segja að þetta sé nýjasta leið ísraelska hersins til að lokka óbreytta borgara úr fylgsnum sínum og drepa...
HeimurYfirvöld í Ísrael beita hræðsluáróðri gegn Íran: „Á leiðinni í borg nærri þér“17. apríl 2024 Þrátt fyrir að þeirra nánustu bandamenn hvetji til stillingar í kjölfar fordæmalausrar árásar Írans á Ísrael, snúa ísraelskir embættismenn sér að samfélagsmiðlum til að afla sér stuðnings – og til að valda ótta. Opinber X-reikningur (fyrrverandi Twitter) ísraelskra stjórnvalda birti myndskeið frá árás helgarinnar og svo ljósmynd af Lundúnum í Bretlandi með skilaðboðunum „á leiðinni í borg nærri þér“. „Stöðvið...