LandiðStærsta einstaka kolmunnafarminum landað á Fáskrúðsfirði3. maí 2022 Met var sett á Fáskrúðsfirði um helgina er færeyska uppsjávarveiðiskipið Gøtunes kom með 3.431 tonn af kolmunna. Aldrei áður hefur jafn miklu verið landað af tegundinni í einum farmi hér á landi. Samkvæmt Austurfrétt kom Gøtunes til Fáskrúðsfjarðar á laugardag en lönduninni lauk um miðjan dag á sunnudag. Kemur fram í frétt Austurfréttar að í raun hafi 5.000 tonnum verið...
LandiðBeggi blindi talar fyrir daufum eyrum: „Í Eyjum er þjónustan veitt á forsendum sveitarfélagsins“2. maí 2022 Bergvin Oddsson, sem stundum kallar sig Beggi blindi, segir að lélegasta ferðaþjónusta fatlaðra landsins sé í Vestmanneyjum. Aðeins stendur sú þjónusta til boða frá 07:30 til 17, virka daga. Bergvin Oddsson skrifar pistil á Tigull.is sem er fréttavefur í Vestmannaeyjum. Þar gerir hann ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk að umræðuefni. Segir hann þá þjónustu eina af grunnþjónustum sveitarfélaganna. Segir hann að...
LandiðKarlmaður á píslagöngu um Borgarfjörð – Hjálpardekk á krossinum28. apríl 2022 Karlmaður hefur sést á göngu á þjóðvegi 1 um Borgarfjörð. Það eitt og sér er ekki fréttnæmt en þegar „farangur“ hans er skoðaður lyftast eflaust brúnir. Skessuhorn segir frá karlmanninum í dag en þar segir að hann hafi sést ganga á þjóðveginum um Borgarfjörð, haldandi á risastórum krossi. Engar frekari upplýsingar eru til um píslagöngu mannsins en mögulega er um...
LandiðÍBV keypti 37% miða í Herjólf um Verslunarmannahelgina – Uppselt frá Eyjum mánudaginn 1. ágúst28. apríl 2022 Allt frá árinu 2011 hefur ÍBV keypt stóran part af miðum í Herjólf um Verslunarmannahelgina og selt með áföstum miða á Þjóðhátíð. Í ár er hlutfallið minna en oft áður. Þetta fyrirkomulag hefur ekki farið vel ofan í alla Eyjamenn en árið 2014 sagði Sædís Inga Eymundsdóttir frá því í DV að systir hennar hafi neyðst til að borga 18.000...
LandiðSkálavarðahús rís í Vöðlavík: „Bendir allt til að aðsókn þetta sumarið verði með því allra mesta“27. apríl 2022 Nýtt skálavarðahús hefur verið reist í Vöðlavík í Fjarðabyggð. Fjarðabyggð veitti Ferðafélagi Fjarðamanna styrk upp á hálfa milljón króna vegna byggingar hússins í hinni fögru Vöðlavík. Bygging skálans sjálfs er samkvæmt Austurfrétt, því sem næst lokið með hjálp nemenda í Verkmenntaskóla Austurlands sem smíðað hafa húsið sem part af náminu. „Þetta er náttúrulega formlega orðið friðland þannig að þörfin á...
LandiðSkipstjóra Herjólfs loksins gert að hætta – Reiknar með að þetta gerist ekki aftur27. apríl 2022 Skipstjóri Herjólfs sem snemma á árinu varð uppvís að því að sigla án atvinnuréttinda og falsa skýrslur um það hver hefði siglt bátnum hefur komist að samkomulagi við Herjólf ohf. um starfslok. Staðfesti framkvæmdarstjóri Herjólfs, Hörður Orri Grettisson, þetta í samtali við mbl.is. Mannlíf fjallaði um málið ásamt fleiri miðlum fyrr á árinu en þá hafði skipstjóri í Herjólfi verið...
LandiðSkóþjófur kannaðist ekkert við málið – Faldi skóna undir sólpalli26. apríl 2022 Einstaklingur var nappaður við þá iðju að stelpa skópari úr verslun í Vík í Mýrdal, síðastliðinn laugardag. Sunnlenska segir frá því að þegar lögreglan hafði upp á hinum fingralanga þjófi hafi hann falið skóparið undir sólpalli við íbúðarhús í bænum og vildi ekki kannast við málið. Eftir yfirheyrslu var honum sleppt en málið fer áfram til ákærusviðs til ákvörðunar um...
LandiðFjórar nýjar kindur með genaarfgerðina ARR – Von á fleiri niðurstöðum á næstu dögum25. apríl 2022 Enn finnast kindur með genaarfgerðina ARR, sem vísindamenn telja að veiti vörn gegn riðu, á bænum Þernunesi í Reyðarfirði. Fimm ær fundust nú nýverið. Austurglugginn segir frá því að skipulega hafi verið farið í gegnum hjörðina á bænum Þernunesi í Reyðarfirði, síðan afbrigðið fannst fyrst í byrjun árs. Hefur Austurglugginn þetta eftir frétt Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins. Niðurstöður á greiningum á 136...
LandiðHænur greindust með fuglaflensu á Reykjum – Ólíklegt að þær hafi smitað aðra alifugla20. apríl 2022 Fuglaflensa greindist í heimilishænum á bænum Reykjum á Skeiðum þann 15. apríl síðastliðnum en sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöðinni HÍ að Keldum. Var þetta staðfest í gær. Samkvæmt bb.is voru hænurnar með sjúkdómseinkenni sem bentu sterklega til að um fuglaflenslu væri að ræða. Þá hafði fuglaflensa greinst í hrafni nokkrum dögum áður en hann fannst dauður á bænum. Sýnin verða...
LandiðLýsi þeyttist á hús og bíla á Akranesi – Óhapp við útskipun19. apríl 2022 Í gær urðu íbúar á Neðri Skaganum á Akranesi varir við fituskelli á bílum þeirra, húsum og götum. Reyndist þetta vera lýsi sem dreifst hafði um dágott svæði. Náði lýsið alla leið upp á Vitateig og þar í kring. Skessuhorn sagði frá þessum óvænta „glaðningi“ í dag en að sögn Almars Sigurjónssonar rekstrarstjóra Fiskimjölsverksmiðjunnar hjá Brimi hf. varð óhapp er...
LandiðAkraneskaupsstaður fékk málverk í gjöf í tilefni 80 ára afmælinu17. apríl 2022 Akraneskaupsstaður á 80 ára afmæl á þessu ári og af því tilefni færðu hjónin Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigendur Prentmets Odda, kaupstaðnum málverk að gjöf. Málverkið er af Bíóhöllinni á Akranesi og er eftir Bjarna Skúla Ketilsson eða Baska eins og hann kallar sig. Samkvæmt vefsíðu Akraneskaupsstaðar tók Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á móti málverkinu fyrir hönd...
LandiðLandlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“17. apríl 2022 Alma Dagbjört Möller landlæknir var viðstödd opnun nýrrar röntgendeildar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, ásamt Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, í síðustu viku. Víkurfréttir voru á staðnum og tók Ölmu tali. „Það er ánægjulegt að hér á HSS hefur verið tekið til hendinni og unnið að uppbyggingu á innviðum stofnunarinnar. Það er nauðsynlegt því mikil fólksfjölgun hefur orðið á svæðinu undanfarin ár...