Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

ÍBV keypti 37% miða í Herjólf um Verslunarmannahelgina – Uppselt frá Eyjum mánudaginn 1. ágúst

ÍBV keypti 37% miða í Herjólf um Verslunarmannahelgina – Uppselt frá Eyjum mánudaginn 1. ágúst
Mynd/vega­gerdin.is

Allt frá árinu 2011 hefur ÍBV keypt stóran part af miðum í Herjólf um Versl­un­ar­manna­helg­ina og selt með áföstum miða á Þjóð­há­tíð. Í ár er hlut­fallið minna en oft áður.

Þetta fyr­ir­komu­lag hefur ekki farið vel ofan í alla Eyjamenn en árið 2014 sagði Sædís Inga Eymunds­dóttir frá því í DV að systir hennar hafi neyðst til að borga 18.000 krónur til að kom­ast aftur til Eyja eftir að hafa skroppið upp á meg­in­landið á fimmtu­deg­inum fyrir Versl­un­ar­manna­helg­ina. Það árið keypti ÍBV tvo þriðju af heild­ar­mið­unum í Herjólf. Eins og svo margt annað hefur Þjóð­há­tíð ekki verið haldin síð­ustu tvö ár vegna Covid far­ald­urs­ins og því spennan mikil í land­anum.

Mannlífi lék for­vitni á að vita hvernig þessu er háttað í ár en nú þegar er orðið upp­selt í Herjólf frá Eyjum á mánu­dag­inn 1. ágúst. Aðspurður um það hvort þetta teld­ist eðli­legt svona löngu fyrir helg­ina miklu sagði miða­sölu­maður Herjólfs svo vera, það selj­ist oft upp þetta hratt.

Mannlíf sendi póst á eig­anda Herjólfs, Vega­gerð­ina og spurði spurn­inga um málið. Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar svar­aði með því að senda upp­legg frá Herjólfi ohf. um sölu á far­miðum yfir Versl­un­ar­manna­helg­ina sem sam­þykkt var á fundi 7. mars síð­ast­lið­inn. Þar kemur fram að ÍBV kaupi 37% af heild­ar­magni miða til og frá Eyjum en restin er seld í gegnum bók­un­ar­kerfi Herjólfs.

Hér má sjá upp­leggið sem sam­þykkt var:

Sala á miðum í Herjólf um Versl­una­manna­helg­ina

Versl­un­ar­manna­helgin er stærsta ferða­helgi hvers árs á Íslandi. Í Vest­manna­eyjum er haldin Þjóð­há­tið í Eyjum og er lang stærsta helgi árs­ins í far­þega­flutn­ingum til og frá Vest­manna­eyjum. Herj­ólfur ohf. og fyrri rekstr­ar­að­ilar ferj­unnar hafa brugð­ist við þessum aukna far­þega­flutn­ingi með fjölgun ferða til og frá Vest­manna­eyjum til að bregð­ast við þeirri umfram­eft­ir­spurn sem mynd­ast þessa helgi. Um versl­un­ar­manna­helg­ina hefur Herj­ólfur ohf. aukið veru­lega sigl­ing­ar­tíðni til og frá Vest­manna­eyjum og með til­komu nýju ferj­unnar hefur flutn­ings­geta auk­ist til muna.

Sala á miðum í Herjólf um versl­un­ar­manna­helg­ina hefur verið sér­tak­lega til­kynnt og sala farið á stað á ákveð­inni dag­setn­ingu og um leið sigl­ing­ar­á­ætlun skips­ins um versl­un­ar­manna­helg­ina til­kynnt. Oftast í kringum mán­að­ar­mótin febr­úar/mars.

ÍBV hefur frá 2011 keypt miða af rekstr­ar­að­ilum Herjólfs í ákveðið hlut­fall í skil­greindar ferðir á þessu tíma­bili og end­ur­selt þær á heima­síðu sinni. ÍBV kaupir alls ekki alla miða sem í boði eru og ekki alla miða í neina ferð skips­ins. ÍBV kaupir á fullu verði 37% allra miða sem eru í boði með Herjólfi, frá fimmtu­degi fram á mánu­dag. Hin 63% mið­anna eru seld í gegnum bók­un­ar­kerfi Herjólfs. Herj­ólfur selur því eins og venju­lega miða fyrir ein­stak­linga í ALLAR áætl­un­ar­ferðir sínar ásamt því að fram­boð ferða er aukið til muna. Þjóð­veg­ur­inn á milli lands og Eyja er því alls ekki lok­aður fyrir heima­menn og eng­inn þarf að kaupa miða á Þjóð­há­tið til að ferð­ast með Herjólfi. Það eina sem breyt­ist þessa helgi er að sigl­inga­á­ætl­unin breyt­ist og opnað er sér­stak­lega fyrir söl­una. Einnig má það koma fram að sér­stak­lega á sumrin er oft upp­selt heilu og hálfu dag­ana með löngum fyr­ir­vara, það á ekki bara við um Versl­un­ar­manna­helg­ina.

Ef ein­stak­lingar sem nauð­syn­lega þurfa að ferð­ast með Herjólfi t.d vegna veik­inda á þeim dögum sem upp­selt er í ferj­unni, hefur Herj­ólfur und­an­tekn­ing­ar­laust leyst þau mál, sama hvenær það er og það á líka við um Versl­un­ar­manna­helg­ina.

Ástæðan fyrir því að þetta fyr­ir­komu­lag var sett á árið 2011 um Versl­un­ar­manna­helg­ina var sú að eftir að Land­eyj­ar­höfn opn­aði er fyrst og fremst sú að ein­stak­lingar voru að kaupa marga miða í margar ferðir og hratt seld­ist upp í allar ferðir til og frá Eyjum. Mikið „brask“ varð með miða á inter­net­inu og far­þega­nýt­ing í ferðir sem voru upp­seldar í kerf­inu var léleg. Það er ekki bara mik­il­vægt fyrir Herjólf að sam­göngur gangi vel þessa helgi, heldur allt sam­fé­lagið hér í Vest­manna­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil