InnlentJón Haukur ráðinn deildarstjóri hjá LSH2. júní 2020 Jón Haukur Baldvinsson hefur verið ráðinn deildarstjóri eldhúss og matsala Landspítala. Jón Haukur er með BA-gráðu í markaðsfræðum og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur langa reynslu í rekstri og þjónustu í tengslum við veitingaþjónustu, meðal annars hjá Icelandair, Jamie Oliver, Coca-Cola European Partners og Icelandic Glacial. Jón Haukur tók til starfa 1. júní.
InnlentBókabúðinni skellt í lás í þriðja sinn á rúmum áratug2. júní 2020 Lokun bókabúðar Máls og menningar við Laugarveg er þriðja lokun verslunarinnar á rétt rúmum áratug. Fullyrt er að um tímabundna lokun bókabúðarinnar sé að ræða og verður kaffihúsinu í sama húsnæði einnig lokað um óákveðinn tíma. „Heyrðu fínt, takk fyrir það og bless.“ Greint er frá lokuninni í dag á Facebook-síðu verslunarinnar en þar þakkar starfsfólk viðskiptavinum fyrir sýndan skilning...
InnlentCovid-19Leigubílstjórar vilja bætur vegna COVID-1931. maí 2020 „Það eru allar skoðanir á því að leigubílstjórar séu sniðgengnir þegar kemur að bótaúrræðum stjórnvalda. Við leigubílstjórar erum ekki reiðir en upplifum svolitla mismunun, það verður að segja það. Þetta er talsvert ósanngjarnt,“ segir Daníel Orri Einarsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Frama. „Bílstjórar eru óþolinmóðir og vilja fá svör.“ Sökum þess að leigubílstjórar eru flestir sjálfstæðir atvinnurekendur sem halda úti rekstri á...
InnlentFlott hjá Brauð & Co31. maí 2020 Brauð & Co selja fjölnota hörpoka undir súrdeigsbrauðin sem þar eru bökuð. Í hvert skipti sem viðskiptavinir mæta með brauðpokann sinn fá þeir 10 prósenta afslátt af brauði. Pokinn kostar 1.200 krónur og geymist brauðið, að sögn, afar vel í honum. Sniðugt og umhverfisvænt.
InnlentAndrés bendir á „músagildru“ Bílastæðasjóðs: Telur hana skila borginni 2 milljónum á mánuði30. maí 2020 Andrés Jónsson almannatengill vekur athygli á skemmtilegri „músagildru“ Bílastæðasjóðs á Twitter. En að vísu ekki skemmtilegri fyrir buddu þeirra bíleigenda sem leggja í gildruna. Myndina tekur Andrés út um gluggann á skrifstofu sinni við horn Týsgötu og Lokastígs í miðbæ Reykjavíkur, en eftir nýlegar framkvæmdir þar er staðan svona, engin bílastæði lengur við Týsgötu, en áður voru þau tvö auk...
InnlentLeynd yfir kostnaði við þrotaskipti Baugs30. maí 2020 Héraðsdómur Reykjavíkur hafnar því að gefa upplýsingar um skiptakostnaðinn í þrotabúi Baugs Group. Mannlíf óskaði formlega eftir þeim en samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti skal skiptastjóri gera yfirlit í lok skipta um skiptakostnað. Það yfirlit liggur hjá dómstólnum en fæst ekki afhent þar sem héraðsdómur telur Mannlíf ekki eiga rétt á gögnunum þar sem um einkamál er að ræða og að...
Innlent„Mér finnst það mjög leitt en þannig eru bara lögin og reglurnar“30. maí 2020 Sökum þess að leigubílstjórar eru flestir sjálfstæðir atvinnurekendur sem halda úti rekstri á eigin kennitölu virðast þeir illa passa inn í hlutabótaúrræði stjórnvalda vegna COVID-19. Bílstjórarnir eru ósáttir og vilja fá bætur. „Við getum því ekki breytt neinu þótt okkur þyki eitthvað ósanngjarnt fyrir þennan hópinn eða hinn“ Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnnunar, staðfestir vandann og bendir á að stofnunin starfi...
InnlentMetfjöldi framboða til stjórnar UAK29. maí 2020 Aðalfundur UAK 2020 fór fram á miðvikudagskvöld í sal Fiskmarkaðarins, en 15 konur buðu sig fram til stjórnar og gengu fjórar nýjar konur í stjórn UAK (Ungar athafnakonur) eins og segir í tilkynningu UAK. Þær eru Andrea Gunnarsdóttir, Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, Ingveldur María Hjartardóttir og Kristjana Björk Barðdal, en kjörtímabil þeirra er tvö ár. Þær munu skipa stjórn UAK 2020-2012...
InnlentCovid-19Leigubílstjórar vilja bætur29. maí 2020 „Það eru allar skoðanir á því að leigubílstjórar séu sniðgengnir þegar kemur að bótaúrræðum stjórnvalda. Við leigubílstjórar erum ekki reiðir en upplifum svolitla mismunun, það verður að segja það. Þetta er talsvert ósanngjarnt,“ segir Daníel Orri Einarsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Frama. „Við leigubílstjórar erum ekki reiðir en upplifum svolitla mismunun.“ Sökum þess að leigubílstjórar eru flestir sjálfstæðir atvinnurekendur sem halda úti...
Innlent„Kári sagði mér að hætta að afsaka mig“28. maí 2020 Um fátt er meira rætt í samfélaginu og á fréttamiðlum í dag en viðtal Kastljóssins í gærkvöldi við Kára Stefánsson. Mörgum þykir Kári hafa verið dónalegur, á meðan aðrir segja Einar Þorsteinsson, fréttamann RÚV og spyril í viðtalinu, hafa sýnt Kára dónaskap, þegar hann sagði Kára ruglaðan. Sjá einnig: Viðbrögð fólks við framkomu Kára í Kastljósi – „Orðlaus“ Í færslu...
InnlentAuglýsingastofan Árnasynir heitir nú VORAR28. maí 2020 Nafni auglýsingastofunnar Árnasynir hefur verið breytt í VORAR. „Nafngiftinni fylgir spáný ásýnd sem vísar í stefnu og framtíðarsýn stofunnar. Eftir sem áður veitir stofan alhliða þjónustu í auglýsingagerð og markaðssetningu og vinnur áfram í góðri samvinnu við viðskiptavini sína. Samhliða nafnabreytingunni flytur VORAR í nýtt og glæsilegt húsnæði í Kringlunni,“ segir í tilkynningu um nýja nafnið. Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri og...
InnlentCovid-19Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum28. maí 2020 Bláa lónið tilkynnti í dag að 403 starfsmönnum verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Grímur Sæmundsen forstjóri tilkynnti starfsfólki um uppsagnirnar á starfsmannafundi í dag, en stjórnendur og og starfsmenn sem ekki fá uppsögn í dag taka á sig launalækkun. Til stendur að opna Bláa Lónið um miðjan júní, en lónið og hótel hafa verið lokuð vegna...