HeimurBorða kjúklingakjöt án þess að slátra kjúklingi! – Sjáðu myndbandið25. janúar 2023 Bandarískt fyrirtæki hefur fengð leyfi til að framleiða kjöt sem ræktað er á rannsóknarstofu. Fyrirtækið Upside Foods hefur nú fengið reglugerðarsamþykki fyrir framleiðslu á kjöti sem ræktað er á rannsóknarstofu. Reiknar fyrirtækið með því að byrja að selja slíkt kjöt til veitingastaða á þessu ári og hyggst koma kjötinu í stórmarkaði árið 2028. Enginn kjúklingur er skaðaður við framleiðsluna en...
LandiðFundu óþekktar lífverur í Fáskrúðsfirði: „Erum nú að reyna að kanna þær og greina“23. september 2022 Þýskur líffræðingur hefur fundið áður óþekktar lífverur í Fáskrúðsfirði. Marco Thines er þýskur líffræðingur en hann keypti jörðina Neðri-Vík á síðasta ári. Jörðin er utarlega í sunnanverðum Fáskrúðsfirði. Með honum er eiginkona hans, Ichen Tsai sem einnig er líffræðingur og nýdoktornum Anthony Buaya. Austurfrétt tók við hann viðtal og kom þar ýmislegt fróðlegt fram. Á Neðri-Vík áformar Marco og samstarfsaðilar...
InnlentGeimfaraþjálfun í Stefánshelli: „CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim“31. ágúst 2022 Rannsóknarhópurinn Chill-ICE á vegum ICEE Space (áður EuroMoonMars) hefur nú lokið geimfaraþjálfun í Stefánshelli í samstarfi við Space Iceland. Verkefnið er hluti af híbýlahönnun fyrir tunglið og Mars, en Ísland þykir heppilegur staður fyrir tilraunina því hér er að finna helli sem á að svipa til þeirra sem eru á tunglinu. Vegna hættu á að verða fyrir loftsteinum og vegna...
LandiðSurtshellir í sýndarveruleika29. ágúst 2022 „Verkið var krefjandi enda kalt, dimmt og rakt í hellum sem þessum og mikilvægt að gæta öryggis á allan hátt. Út frá rúmlega þrjú hundruð skönnunarstöðum var hægt að útbúa samfellt punktaský og í kjölfarið sýndarveruleika af öllum hellinum,“ þessu lýsir Diego Bitzenhofer, verkfræðinemi við Háskóla Íslands. Hann og Ravindra Thapa, verkfræðinemi við Hí unnu að því að kortleggja Surtshelli...
InnlentÁgúst 2022: „Sjáðu Satúrnus frá jörðu“16. ágúst 2022 Um þessar mundir er Satúrnus bæði tiltölulega nálægt jörðu og vel upplýstur af sólskini. Þessi skilyrði gefa okkur besta tækifæri ársins til að skoða þessa fjarlægu plánetu, tungl hennar og hina frægu hringi, samkvæmt Space.com. Hvernig er hægt að sjá plánetuna? Farðu út á milli hálftvö og tvö að nóttu til upp úr miðjum ágúst. Satúrnus var í hásuðri kl.... Myndband
InnlentErtu A eða B manneskja? Eða jafnvel í einhverjum öðrum hóp…23. júní 2022 Hver hefur ekki heyrt talað um A- eða B- týpuna? Í þessu samhengi er vanalega átt við mismunandi svefnmynstur hjá fólki. Nú hafa vísindin sýnt fram á að til eru mismunandi grundvallarmynstur. Í daglegu tali er talað um að A-manneskjur séu hressu týpurnar, vakna snemma á morgnana, en þreytast líka snemma. Á meðan B-manneskjur vakna seint, en geta aftur á...
InnlentEyrnasuðssjúklingar: Eiga hættu á að fá þunglyndi og ekki nægan djúpsvefn1. júní 2022 Talið er að í kring um 15 prósent alls mannkyns þjáist af eyrnasuði. Fólk sem þjáist af eyrnasuði (tinnitus) er talið fá minni djúpsvefn að meðaltali. Nú hafa vísindamenn við Oxford-háskóla í Englandi gert uppgötvun sem mögulega hjálpar við að greina orsakirnar og þar með skapa betri grundvöll fyrir meðhöndlun sem virkar. Linus Milinski, Fernando R. Nodal, Vladyslav V. Vyazovskiy...
FólkHeilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“23. maí 2022 Við þekkjum hugsanlega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálparhönd með bros á vör. Þetta kann að tengjast því að heilinn losar meira af efninu oxýtósíni í takt við hækkandi aldur, ef marka má nýlega rannsókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ástarhormónið“, virðist gera fólk sáttara við lífið og tilveruna, auk þess að reynast öðrum hjálplegra. Ástarhormón...
InnlentAðferð fundin upp á Íslandi gegn sýkingum í sílíkonígræðslum: „Þekking til góðs fyrir samfélagið“18. maí 2022 Ný aðferð vísindamanna Háskóla Íslands, sem ætlað er að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar á yfirborði sílikonígræðsla og gerviliða, bar sigur úr býtum í hinni árlegu samkeppni um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun skólans sem fór fram í Hátíðasal Háskólans í gær. Unnið er að því að fá einkaleyfi á tækninni sem þróuð er í samstarfi við fyrirtækin Össur og Primex....
InnlentÞróa tölvuleik til hjálpar börnum: „Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif á barnið“2. maí 2022 Brynja Ingadóttir, dósent í hjúkrunarfræði segir í samtali við Háskólann að: „Hjúkrunarfræðingar sem sinna ungum börnum þekkja vel af eigin reynslu að börn geta verið mjög hrædd og kvíðin fyrir því að fara í svæfingu. Bæði er það ókunnugt umhverfi, starfsfólkið og ótti við sársauka og aðskilnað frá foreldrum sem veldur þeim vanlíðan. Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif... Myndband
InnlentTelja sig geta upprætt kvíða: „Misnotkun breytir barnsheilanum“26. apríl 2022 Þeir sem greinast með kvíðaröskun fer stöðugt fjölgandi. Það er talið að þriðji hver þjáist af kvíða einhvern tímann á ævinni. Vísindamenn hafa nú uppgötvað ástæður þess hvers vegna heilinn setur sig í umsátursástand. Þeir hafa fundið tvö gen sem breytast þegar börn verða fyrir áföllum. Samkvæmt samantekt Lifandi Vísinda verður unnt innan tíðar að uppræta sjálfar orsakir kvíðans. Heilasérfræðingar...
InnlentGenalækningar eiga að gera líkamsfitu heilsusamlegri: „Brún fita brennir orku“18. apríl 2022 Þegar hvítri fitu er breytt í brúna verður ekki einvörðungu þyngdartap heldur batnar ástand lifrarinnar að sama skapi. Í líkömum okkar fyrirfinnast tvö afbrigði fitu, svokölluð hvít fita, svo og brún fita. Í hvítu fitunni gegna frumurnar hlutverki óvirkrar fituuppsöfnunar á meðan brúnu fitufrumurnar virkja brennsluna og láta líkamann breyta fitu í varma. Genatilraunir á músum sýna að hægt sé...