Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þróa tölvuleik til hjálpar börnum: „Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif á barnið“

Þróa tölvuleik til hjálpar börnum: „Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif á barnið“
Brynja Inga­dóttir, dós­ent í hjúkr­un­ar­fræði. Mynd. Háskóli Íslands

Brynja Inga­dóttir, dós­ent í hjúkr­un­ar­fræði segir í sam­tali við Háskól­ann að:

„Hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem sinna ungum börnum þekkja vel af eigin reynslu að börn geta verið mjög hrædd og kvíðin fyrir því að fara í svæf­ingu. Bæði er það ókunn­ugt umhverfi, starfs­fólkið og ótti við sárs­auka og aðskilnað frá for­eldrum sem veldur þeim van­líðan. Mikill kvíði getur haft mjög nei­kvæð áhrif á barnið sjálft og líðan þess en einnig á árangur og útkomu með­ferð­ar­innar.“

Vegna þess­ara áhrifa hefur Brynja ásamt sam­starfs­fólki þróað tölvu­leik til þess að hjálpa börnum við að takast á við þennan ótta.

Mína og Draumlandið

Leik­ur­inn heitir Mína og Drauma­landið (e. Mina and the Land of Dreams) og er ætl­aður börnum á aldr­inum 4-8 ára. Hann er aðgengi­legur bæði á AppStore og Google Play og hefur þegar verið gef­inn út á þremur tungu­málum: íslensku, finnsku og ensku, en Brynja segir mögu­legt að bæta fleiri tungu­málum við.

Brynja segir að leik­ur­inn geti gagn­ast þeim sem glíma við þroska­hömlun, en: „Leikinn geta börn spilað með eða án aðstoðar for­eldra sinna nokkrum dögum áður en kemur að svæf­ing­unni.

Þau læra um und­ir­bún­ing (t.d. föstu á mat og drykk, bað), kynn­ast umhverfi á spít­ala (stutt mynd­bönd tekin á skurð­stofu), læra slök­unaræf­ingar, fá jákvæða styrk­ingu og hvatn­ingu til að efla hug­rekki og svo verð­laun í lokin.“

Tölvuleikir góð leið til fræðslu og þjálfunar

Brynja segir mark­miðið með þróun leiks­ins sé að hanna úrræði sem fræðir börn og kennir þeim að takast á við kvíða og hræðslu. Leikur sem er byggður á gagn­reyndri þekk­ingu og tækni.

Brynja lýsir því að: „Fyrri úrræði, eins og heim­sóknir á spít­ala, leikúr­ræði, notkun trúða, hafa reynst dýr, ekki aðgengi­leg öllum og ekki fýsi­leg þótt þau hafi borið ágætan árangur.“

En hún hefur stofnað fyr­ir­tækið NúnaTrix ehf. ásamt sam­starfs­konu sinni, Katrínu Jóns­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ingi, utan um þróun hug­mynd­ar­innar og fleiri kennslu­tölvu­leikja.

Leikskólabörn aðstoðuðu við hönnun 

Brynja segir enn fremur að tölvu­leik­ur­inn hafi verið hann­aður með aðstoð leik­skóla­barna sem tóku þátt í vinnu­smiðjum og not­hæfni­próf­unum, en tölvu­leikir til kennslu séu áhuga­verð við­bót við hefð­bundnar kennslu­að­ferðir.

„Þeir búa yfir mörgum eig­in­leikum sem geta stutt við áhuga­hvöt og nám, jafnt barna sem full­orð­inna. Innan heil­brigð­is­geirans eru hann­aðir leikir fyrir börn og full­orðna sjúk­linga en einnig til að þjálfa heil­brigð­is­starfs­fólk. Þetta er ung grein og það hefur verið gagn­rýnt að ekki skuli vera gerðar vand­aðar rann­sóknir sam­hliða gerð þeirra og útgáfu.“

Nýtist vel í undirbúningi fyrir svæfingu

Það á þó ekki við í þessu til­viki því Brynja og sam­starfs­fólk vinna að rann­sóknum sem lýsa þróun og gerð leiks­ins, nota­gildi hans og áhrifum á kvíða, þekk­ingu og trú á eigin getu og fýsi­leika þess að inn­leiða hann í klíníska starf­semi. Hópurinn hefur þegar fengið eina rit­rýnda grein birta í vís­inda­tíma­riti en þar er þróun og prófun á nota­gildi leiks­ins lýst.

„Prófanir leiddu í ljós að leik­ur­inn nýt­ist vel í und­ir­bún­ingi fyrir svæf­ingu en um leið fengum við mik­il­vægar upp­lýs­ingar sem við nýttum til að breyta leiknum áður en við gerðum hann aðgengi­legan,“ segir Brynja og bætir við: „Við höfum einnig gert for­rann­sókn á leiknum með þátt­töku barna sem fóru í svæf­ingu á Land­spít­ala og for­eldra þeirra og sam­bæri­leg rann­sókn var gerð í Finn­landi. Þá erum við að und­ir­búa íhlut­un­ar­rann­sókn í báðum löndum þar sem áhrif leiks­ins á kvíða, þekk­ingu og fleira verður könnuð.“

Fjölbreytt og þverfræðilegt þróunarverkefni

Brynja segir að tón­listin við leik­inn sé frum­samin og tekin upp á Íslandi. En vinna við tölvu­leiki sem þennan er afar umfangs­mikil og krefst fjöl­breyttrar og þver­fræði­legrar þekk­ingar. Að verk­efn­inu koma bæði full­trúar Háskóla Íslands og Land­spít­ala og fræða­fólk frá Háskól­anum í Turku í Finn­landi.

„Í rann­sókn­ar­hóp­unum eru rann­sak­endur, sér­fræð­ingar í sjúk­linga­fræðslu, barna­hjúkrun og svæf­inga­hjúkrun, marg­miðl­un­ar­fræð­ingur, sál­fræð­ingur og leik­skóla­kenn­ari. Finnskt tölvu­leikja­fyr­ir­tæki hann­aði leik­inn og frá því komu leikja­hönn­uðir, tölv­un­ar­fræð­ingar, mennt­un­ar­fræð­ingar og fleiri.“

Brynja segir nánar frá verk­efn­inu og Núnatrix ehf. á hádeg­is­við­burði í Háskóla Íslands sem nefn­ist Skyndikynni af sprota­fyr­ir­tækjum Háskóla Íslands þann 19. maí. Við­burð­ur­inn er hluti af Nýsköp­un­ar­viku sem stendur dag­ana 16.-20. maí og Háskól­inn tekur virkan þátt í

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ