Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Surtshellir í sýndarveruleika

Surtshellir í sýndarveruleika

„Verkið var krefj­andi enda kalt, dimmt og rakt í hellum sem þessum og mik­il­vægt að gæta öryggis á allan hátt. Út frá rúm­lega þrjú hund­ruð skönn­un­ar­stöðum var hægt að útbúa sam­fellt punkta­ský og í kjöl­farið sýnd­ar­veru­leika af öllum hell­inum,“ þessu lýsir Diego Bitzenhofer, verk­fræði­nemi við Háskóla Íslands. Hann og Ravindra Thapa, verk­fræði­nemi við Hí unnu að því að kort­leggja Surts­helli af nákvæmni með leysiskanna og flygildi til varð­veita ásýnd hans í sýnd­ar­veru­leika í vernd­ar­skyni og til kynn­ingar.

Nú er þetta leik­svið sum sé kort­lagt af ótrú­legri nákvæmni og er að auki hægt að horfa á mynd­band þar sem hægt er að ferð­ast um í hell­inum, fara hann á enda og í alla rangala.

„Til­gangur verk­efn­is­ins var að afla nákvæmra gagna um lögun og gerð hell­is­ins til að skilja betur hraun­rás­ina, sem flutn­ings­kerfi innan hraun­breiðu og jafn­framt varð­veita ásýnd hans í sýnd­ar­veru­leika í vernd­ar­skyni og til kynn­ingar,“ segir annar nem­end­anna, Ravindra Thapa sem er frá Nepal.

Þeir Diego og Ravindra unnu þetta verk­efni undir leið­sögn Ingi­bjargar Jóns­dóttur, dós­ents í land­fræði og Þor­valdar Þórð­ar­sonar, pró­fess­ors í eld­fjalla- og berg­fræði. Þau starfa bæði við Jarð­vís­inda­deild Háskól­ans.

Surts­hellir er afar sögu­frægur og leik­svið óhæfu­verka í Sturl­ungu þar sem segir af því þegar einn af höfð­ingjum Sturl­unga, sjálfur Sturla Sig­hvats­son, lét færa Órækju Snorra­son niður í hell­inn hvar hann var pynt­aður og skadd­aður fyrir lífs­tíð. Þetta var árið 1236. Það er til marks um skálmöld­ina sem þá ríkti að Sturla og Órækja voru bræðra­synir. Órækja var sonur skálds­ins og höfð­ingj­ans Snorra Sturlu­sonar.

Nú var þetta leik­svið sum sé kort­lagt af ótrú­legri nákvæmni og er að auki hægt að horfa á mynd­band þar sem hægt er að ferð­ast um í hell­inum, fara hann á enda og í alla rangala.

Þeir Ravindra Thapa og Diego Bitzenhofer. MYND/Kristinn Ingv­ars­son.

Sá lengsti sem hefur uppgötvast 

Surts­hellir er í Hall­mund­ar­hrauni í Borg­ar­firði og er talin hafa runnið á tíundu öld eða fljót­lega eftir land­nám. Hann er sá lengsti sem hefur upp­götvast hér­lendis eða hart­nær um tveir kíló­metrar að lengd.

Diego Bitzenhofer, sem er frá Þýska­landi, segir að vinnan á vett­vangi hafi tekið um tíu daga, og falist í upp­setn­ingu leysi­bún­aðar, ljósa­kerfis og við­mið­un­ar­punkta.

„Stór hluti verk­efn­is­ins var úrvinnsla, hreinsun og sam­setn­ing gagna. Yfirborð hrauns­ins var myndað með flygildi og út frá mynd­mæl­ingum var reiknað hæð­ar­líkan og sam­fellt mynd­kort, sem svo má tengja við hella­gögnin.“

Verk­efnið var unnið af Háskóla Íslands í sam­starfi við Árna B. Stef­áns­son – Fjörgyn ses. og Jón Bergmann Heim­is­son – Punkta­ský ehf. auk Vinnu­mála­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil