Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Telja sig geta upprætt kvíða: „Misnotkun breytir barnsheilanum“

Telja sig geta upprætt kvíða: „Misnotkun breytir barnsheilanum“

Þeir sem grein­ast með kvíða­röskun fer stöðugt fjölg­andi. Það er talið að þriðji hver þjá­ist af kvíða ein­hvern tím­ann á ævinni. Vís­inda­menn hafa nú upp­götvað ástæður þess hvers vegna heil­inn setur sig í umsát­urs­á­stand. Þeir hafa fundið tvö gen sem breyt­ast þegar börn verða fyrir áföllum. Samkvæmt sam­an­tekt Lifandi Vísinda verður unnt innan tíðar að upp­ræta sjálfar orsakir kvíð­ans.

Heila­sér­fræð­ingar og sál­fræð­ingar standa frammi fyrir áber­andi mót­sögn: Í fjöl­mörgum löndum fer tíðni mann­drápa lækk­andi, stríð verða sjald­gæfari og vel­ferð fer vax­andi, færri þurfa að fara soltnir að sofa, sjúk­dómar hrjá fólk í minna mæli en nokkru sinni fyrr og lífaldur hefur aldrei verið hærri.

Misnotkun breytir barnsheila

Eitt af þeim ótta­við­brögðum sem rann­sakað hefur verið af miklum krafti er svo­nefnd „áfallastreituröskun“ eða „Post-traumatic stress dis­order“, skamm­stafað PTSD. Þessi gerð kvíða­kasta felur í sér að fólk end­ur­lifir skelf­ing­una sem fylgdi til­teknum atburði aftur og aftur.

Í lang­flestum til­vikum geta læknar og sál­fræð­ingar kom­ist að því nákvæm­lega hvaða atburður það var sem var und­ir­rótin að þess­ari sjúk­legu röskun.

Algeng­ustu fórn­ar­lömb þeirra eft­irkasta áfalla sem kall­ast PTSD eru fyrrum her­menn sem hafa orðið vitni að skelfi­legum atburðum á víg­velli og svo börn sem hafa orðið fyrir mis­þyrm­ingum eða alvar­legri mis­notkun.

Í yfir­lits­grein frá á árinu 2020 lýsti barna­geð­lækn­ir­inn Charlotte Cecil hjá Ersamus-lækn­is­fræði­stofn­un­inni í Rott­er­dam hvernig kyn­ferð­is­leg mis­notkun getur breytt genum barna, þannig að heil­inn tekur að hegða sér óeðli­lega og það ástand verður við­var­andi.

Einkum eru breyt­ingar í tveimur genum vel skjal­festar, NR3C1 og SLC6A4. Bæði genin eiga þátt í sam­skiptum tauga­frumna, m.a. í möndlungnum, með boð­efn­inu serótóníni. Kyn­ferð­is­leg mis­neyt­ing gang­setur líf­efna­ferli í tauga­fru­munum og í ferl­inu tengj­ast til­teknar sam­eindir, svo­nefndar metyl­sam­eindir, þessum tveimur genum. Þetta breytir ekki hlut­verki gen­anna en virkni þeirra verður óeðli­lega lítil og sú breyt­ing helst til fram­búðar.

Þetta merkir að lík­indum að serótónín getur ekki lengur haldið uppi sam­skiptum milli tauga­frumna í möndlungnum og það gæti verið orsök þess að allt að þriðja hvert barn sem orðið hefur fyrir kyn­ferð­is­legri mis­neyt­ingu, þróar með sér PTSD.

Nýjar lukkupillur gætu lagað genagalla

Það þykir styrkja þessa kenn­ingu að flestar gerðir ótta og kvíða ein­kenn­ast einmitt af slakri virkni serótóníns, m.a. í möndlungnum. Þau lyf sem mest eru notuð við kvíða eru svo­nefnd SSRI-lyf eða „lukkupillur“ og verkun þess­ara lyfja felst einmitt í því að end­ur­vekja hæfni tauga­frumna til boð­skipta með serótóníni.

Samtalsmeðferð virkar lítið betur en lyfleysa

Stór kvíða­rann­sókn sýnir að sam­tals­með­ferð hefur örlítið betri áhrif en með­ferð með lyf­leysu. Með­ferð­ar­á­hrifin eru þó mis­jöfn eftir því um hvers konar kvíða er að ræða.

En nú kynnu börn sem þjást af PTSD eftir mis­neyt­ingu, kannski geta fengið með­ferð sem upp­rætir ástæð­una fyrir þessum vanda.

Árið 2017 sýndu kín­verskir vís­inda­menn hjá Xi‘an Jioatong­há­skóla fram á að unnt væri að fjar­lægja metyl­sam­eind­irnar úr erfða­efni í heil­anum og fá genin þannig til að virka eðli­lega á ný. Vís­inda­menn­irnir not­uðu efnið 5-Aza-dc sem vitað er að byggir sig inn í litn­ing­ana og kemur í veg fyrir að metyl­sam­eindir nái fót­festu.

Nið­ur­stöður þess­arar til­raunar bentu til að efnið fjar­lægði af NTF3-gen­inu þær metyl­sam­eindir sem höfðu orsakað kvíða í músum sem gerðar höfðu verið að áfeng­is­sjúk­lingum. Vís­inda­menn láta sig nú dreyma um að með ísprautun þessa efnis verði líka unnt að fjar­lægja metyl­sam­eindir af þeim tveimur genum sem orðið hafa fyrir áhrifum í börnum eftir kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu. Verði sá draumur að veru­leika gæti þetta orðið sú með­ferð sem í eitt skipti fyrir öll læknar börnin af PTSD (áfallastreituröskun).

Erfðabreytt efni gætu sannfært heilann um að hafa ekki áhyggjur

Vís­inda­menn vita enn ekki hvers vegna æ fleiri þjást af ýmis konar kvíða­rösk­unum en aftur á móti eru ótta­virkni­kerfi heil­ans orðin nægi­lega vel þekkt til að hægt sé að beita með­ferð sem hrífur. Og eftir nokkur ár til við­bótar gætu erfða­breytt efni og bólu­efni kannski loks­ins sann­fært heil­ann um að í raun­inni sé óþarfi að hafa mjög miklar áhyggjur í heimi sem orð­inn er svo miklu örugg­ari en fyrrum.

Áhyggjuefnin ættu að vera orðin færri en æ fleiri þjást af kvíða

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO metur það svo að greindum kvíða­rösk­un­ar­til­vikum hafi fjölgað um 15% á síð­ustu tíu árum. Talið er að á heims­vísu þjá­ist 264 millj­ónir manna af kvíða og um þriðji hver muni þróa með sér sjúk­lega kvíða­röskun ein­hvern tíma á ævinni.

Kvíði hjálpar okkur við að halda uppi við­bún­aði þannig að við séum reiðu­búin til aðgerða ef hættur verða á vegi okkar. Í litlum skömmtum og við réttar aðstæður er kvíð­inn sem sagt heppi­legt við­bragð sem kemur í veg fyrir að við styttum okkur leið um dimm húsa­sund eða tökum of glæfra­lega áhættu í fjár­málum.

En í sumum til­vikum verður kvíð­inn sjúk­legur og gegn­sýrir hugs­un­ina svo mikið að hann kemur í veg fyrir að fólk geti lifað eðli­legu lífi.

Samfélagsmiðlar og minni svefn kvíðavaldandi

Flestir vís­inda­menn eru þó sam­mála um að æ stærri hluti fólks þjá­ist af kvíða. Margir vís­inda­menn benda á að sam­fé­lags­miðlar setji auk­inn þrýst­ing á fólk varð­andi það að standa undir bæði eigin vænt­ingum og ann­arra og telja þetta eina af senni­leg­ustu skýr­ing­unum.

Önnur mögu­leg skýr­ing er sú að fólk sofi almennt minna en áður var og svefn­leysið hafi óheppi­leg áhrif á heil­ann. Heilinn eykur og minnkar kvíða. Þegar við upp­götvum mögu­lega ógn leysir það sjálf­krafa úr læð­ingi ótta í möndl­ungi heil­ans (amygdala). Vitundin ein­beitir sér að ógn­inni og eykur þannig á ótt­ann en skyn­semi heil­ans ákvarðar svo hvort hættan sé raun­veru­leg.

Ógn virkjar möndl­ung­inn. Þegar skyn­færin greina t.d. ógn­væn­lega sjón, ber­ast tauga­boð til möndl­ungs­ins sem með­höndlar nei­kvæðar til­finn­ingar. Telji þessi heila­stöð hættu á ferðum sendir hún lík­am­anum boð um að fram­leiða streitu­hormón.

Orsakir kvíðaröskunar umdeildar en ákveðin tilhneiging mjög skýr

Hjá fólki með kvíða­röskun er möndl­ung­ur­inn oft stærri og virk­ari en í öðrum.

Vitundin bein­ist að hætt­unni. Heila­stöðin ACC í heila­berki í enn­is­blaði beinir athygl­inni að því sem mik­il­væg­ast er að athuga. Heila­stöðin bregst við ógnum og sendir möndlungnum boð sem auka enn á ótt­ann. Hjá fólki með kvíða­röskun er ACC-heila­stöðin bæði stærri og virk­ari en í öðrum. Skyn­semin tekur í taumana. Heila­stöðin PFC í fremsta og neðsta hluta enn­is­blaðs­ins á þátt í sjálf­stjórn og skyn­sam­legri ákvarð­ana­töku. Meti þessi heila­stöð hætt­una sem óveru­lega ber­ast möndlungnum boð sem draga úr ótt­anum.

Hjá fólki með kvíða­röskun er PFC-heila­stöðin ekki jafn virk og í öðrum.
Þótt orsakir kvíða séu umdeildar, er ákveðin til­hneig­ing mjög skýr: Nærri tvö­falt fleiri konur en karlar þjást af kvíða­röskun. Að hluta til stafar þetta af því að karl- og kven­hormón hafa mis­mun­andi áhrif á sam­skipti tauga­frumna í þeim heila­stöðvum sem eiga þátt í kvíða­við­brögðum. Testó­sterón veldur því t.d. að það þarf meira til að vekja karl­mönnum ótta en estrógen og progesterón tor­velda konum að venj­ast end­ur­teknum kvíða­vekj­andi aðstæðum, jafn­vel þótt þær reyn­ist alveg hættu­lausar.

Frá nátt­úr­unnar hendi er hins vegar öllu fólki eðl­is­lægt að hræð­ast skyndi­leg hljóð eða hluti sem nálg­ast á miklum hraða.

Kvíði viðurkenndur sem sjúkdómsástand

Hjá WHO segja menn vax­andi hlut­fall fólks búa við stöðugan kvíða og harð­ast bitnar þró­unin á ungu fólki. Í rann­sókn sem náði til 22 millj­óna barna og ung­linga sem heim­sóttu banda­ríska heil­brigð­is­kerfið á árunum 2013-2017 reynd­ist hlut­fall þeirra sem þjáð­ust af kvíða hafa meira en tvö­fald­ast á tíma­bil­inu.

Af þessum sökum leita vís­inda­menn nú inn í heila kvíða­sjúk­linga til að finna orsakir þessa ástands. Með heilaskönnun hafa þeir fundið þær heila­stöðvar sem auka eða draga úr kvíða og borið kennsl á gena­breyt­ingar sem verða af völdum alvar­legra áfalla. Með þessa nýju þekk­ingu að vopni hafa menn svo þróað með­ferð­ar­úr­ræði sem leið­rétta þessar gena­breyt­ingar og eiga á end­anum að bólu­setja okkur við því að þróa kvíða­röskun.

Ein af ástæðum vax­andi kvíða er trú­lega sú að umræða um geð­ræna kvilla er nú opin­skárri en áður og þess vegna snúa fleiri sér til læknis, þar sem kvíða­rösk­unin er greind. Það magnar upp þessa þróun að lækn­is­fræði­legar skil­grein­ingar á kvíða­röskun hafa líka breyst. Félags­legur kvíði var þannig ekki við­ur­kenndur sem sjúk­dóms­á­stand fyrr en á síð­asta ára­tug 20. aldar. Þess í stað var litið á kvíða sem hluta per­sónu­gerð­ar­innar.

Kvíði tvöfalt algengari hjá konum

Kvíði eða ótti vaknar að öðru leyti hjá okkur öllum á ákveðnum ævi­skeiðum og af til­teknum ástæðum og hafa rann­sóknir sýnt fram á það að konur séu kvíðn­ari á öllum aldri.
Kvíði er ámóta algengur í öllum ald­urs­hópum en er nærri tvö­falt algeng­ari hjá konum en körlum.

Ung börn ótt­ast ókunn­uga og að vera skilin eftir ein. Á ung­lings­árum kemur að því að losa tengslin við for­eld­rana og þá tekur við ótti við úti­lokun úr vina­hópnum. Síðar á ævinni eru heil­brigði, efna­hagur og öryggi algeng­ustu kvíða­vald­arnir.

Það er líka fylli­lega eðli­legt og yfir­leitt líka hollt að finna stundum fyrir kvíða og áhyggjum þegar við sjáum t.d. fréttir af hryðju­verkum.

En ef kvíð­inn bítur sig fastan og þú ótt­ast það dag­lega að verða fórn­ar­lamb hryðju­verka, þá gæti verið um að ræða það fyr­ir­brigði sem læknar eru farnir að kalla alhæfðan kvíða.

Óttinn á sér mörg andlit

Þetta merki­lega fyr­ir­brigði sem við köllum kvíða eða ótta eftir atvikum, nær yfir allt frá fælni, þar sem orsök ógn­ar­innar er fólgin í til­teknum aðstæðum ofsa­hræðslu og síð­bú­innar áfallastreiturösk­unar en í þeim til­vikum getur ótta­til­finn­ingin valdið skyndi­legum hjartslætti, svitakasti og aðsvifs­til­finn­ingu. Þetta getur gerst fyr­ir­vara­laust, en læknar greina milli fimm gerða ótta og kvíða:

Alhæfður kvíði

  • Orsök: Alltaf til staðar.
  • Einkenni: Óeðli­lega miklar áhyggjur og kvíði vegna atriða á borð við heil­brigði, öryggi, efna­hag o.s.frv.
  • Útbreiðsla: Um 2% fólks, tvö­falt fleiri konur en karlar. Verður oft fyrst vart á þrí­tugs­aldri.
  • Algeng með­ferð: Sam­tals­með­ferð.

Fælni

  • Orsök: Ákveðnar aðstæður.
  • Einkenni: Skyndi­legur ótti við til­tekin atriði. Hér flokk­ast t.d. loft- og flug­hræðsla, inni­lok­un­ar­kennd, ótti við nálar eða jafn­vel trúða.
  • Útbreiðsla: Um 15% fólks. Verður oft fyrst vart á ung­lings­árum.
  • Algeng með­ferð: Ímyndar- og skynj­un­ar­með­ferð, t.d. í sýnd­ar­veru­leika. Fólk er látið ná valdi á ótt­anum í hægum skrefum.

Félagsfælni

  • Orsök: Félags­skapur ann­arra.
  • Einkenni: Sjúkleg feimni og ótti við ranga hegðun og gagn­rýni.
  • Útbreiðsla: Um 5% fólks, einkum konur. Verður oft fyrst vart á ung­lings­árum.
  • Algeng með­ferð: Kvíða­still­andi og þung­lynd­is­lyf.

Ofsahræðsla

  • Orsök: Kemur skyndi­lega.
  • Einkenni: Skyndi­legur ótti. Órök­studd hræðsla við að eitt­hvað hræði­legt sé yfir­vof­andi.
  • Útbreiðsla: Um 5% fólks, einkum konur. Verður oft fyrst vart á þrí­tugs­aldri.
  • Algeng með­ferð: Sam­tals­með­ferð.

Áfallastreituröskun

  • Orsök: Minn­ingar úr for­tíð.
  • Einkenni: Skyndi­leg end­ur­upp­lifun mik­ils áfalls, t.d. nauðg­unar, árásar eða slyss.
  • Útbreiðsla: Um 1% fólks en 10-30% fórn­ar­lamba nauð­gana eða lík­ams­árása og fyrrum her­manna sem tekið hafa þátt í stríði.
  • Algeng með­ferð: Kvíða­still­andi og þung­lynd­is­lyf og sam­tals­með­ferð.

Aðferð til að meðhöndla og fyrirbyggja sjúklegan kvíða

Andrew Fox byrj­aði á því að valda 46 ungum resu­söpum ótta­til­finn­ingu með því að láta fólk fara inn í búr þeirra án þess að aparnir fengju að ná augn­sam­bandi við við­kom­andi. Kvíða­við­brögð hvers og eins voru metin og Fox not­aði síðan ýmsar líf­efna­fræði­legar aðferðir til að finna út til hvaða gena mætti rekja við­bragða­virkni í möndlungnum.

Eitt þess­ara gena var NTF3 sem kóðar fyrir boð­efni. Því virkara sem þetta gen var í möndlungnum, því lík­legra var að apinn héldi ró sinni við kvíð­væn­legar aðstæður. Andrew Fox kom þessu geni fyrir í skað­lausri veiru og spraut­aði henni inn í möndl­ung­inn í heila fimm af tíu öpum sem allir höfðu sýnt sams konar og miðl­ungs­sterk ótta­við­brögð. Aðferðin sam­svarar þeim sem not­aðar eru við til­rauna­bólu­efni, bæði DNA- og RNA-bólu­efni, t.d. gegn Covid-19.

Í þessu til­viki var hug­myndin sú að veiran kæm­ist inn í tauga­frumur í möndlungnum og koma þeim til að fram­leiða mikið af boð­efn­inu, rétt eins og gerð­ist í þeim öpum sem í fyrstu til­raun­inni höfðu sýnt minnst ótta­merki. Þegar síðan var farið inn í klefa apanna án þess að þeir næðu augn­sam­bandi við við­kom­andi, sýndu bólu­settu aparnir fimm mun minni kvíða­merki en þeir fimm sem ekki voru bólu­settir. Enn vita Andrew Fox og sam­starfs­menn hans ekki með vissu hvernig NTF3 heldur kvíð­anum í skefjum en þeim þykir senni­leg­ast að boð­efnið örvi myndun tauga­net­verks frumna sem dempi virkni í möndlungnum.

Þetta á nú að rann­saka nánar og vonir standa til að þessi aðferð geti orðið upp­hafið að alveg nýrri aðferð til að með­höndla og fyr­ir­byggja sjúk­legan kvíða í fólki.

„NTF3 er fyrsta sam­eindin sem hefur reynst sýna orsaka­sam­band við kvíða í öpum. Slíkar sam­eindir gætu þó skipt hund­ruðum eða jafn­vel þús­undum,“ segir Andrew Fox.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag