Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Fiskeldi á Ísland á mannamáli

Sjókvíaeldi –
Sjó­kvía­eldi – Mynd: Arnarlax Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Það er fátt umdeild­ara á Íslandi þessa dag­ana en fisk­eldi og þá sér­stak­lega sjó­kvía­eldi, en fyr­ir­tæki sem starfa við slíkt á Íslandi hafa mátt þola harða gagn­rýni frá umhverf­is­vernd­ar­sinnum sem telja að fisk­eldið geti mögu­lega stór­skaðað líf­ríki Íslands. Til dæmis má nefna að stjórn­ar­með­limur HSÍ sagði af sér í kjöl­far þess að samið var við Arnarlax sem styrkt­ar­að­ila Hand­knatt­leiks­sam­bands­ins. Þar með er þó ekki sagt að land­eldi sé endi­lega frá­bær kostur, en báðar teg­undir fisk­eldis hafa sína kosti og galla.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa sett mikið púður og pen­ing í að reyna fá íslensku þjóð­ina með sér í lið og hafa aug­lýs­ingar um að fisk­eldi sé að bjarga Vest­fjörðum frá glötun verið spil­aðar óspart á öllum miðlum.

Málið er hins vegar flókið og ekki allra að kynna sér það auð­veld­lega, en þó er ljóst að þjóðin verður á næst­unni að taka ákvörðun um hvort að fisk­eldi eigi sér fram­tíð á land­inu.

Því er um að gera að reyna að setja kosti og áhættu­þætti fisk­eldis upp á ein­faldan máta. Upp­lýs­ingar sem þessi umfjöllun styðst við er úr umtal­aðri skýrslu sem ber nafnið „Staða og fram­tíð lagar­eldis á Íslandi“ og var unnin fyrir Mat­væla­ráðu­neytið árið 2023 af Boston Consulting Group.

Sjó­kvía­eldi –

Sjókvíaeldi

Í skýrsl­unni er talað um að íslenskir firðir henti vel fyrir sjó­kvía­eldi. Einnig sé á Íslandi þró­aður tækni­iðn­aður tengdur nýt­ingu sjáv­ar­af­urða sem nýt­ist. Að auki er talið að lágt hita­stig sjávar geti dregið úr laxa­lús og þá séu sjúk­dómar ekki eins algengir og ann­ars staðar. Aðferða­fræði við fram­leiðslu lax með sjó­kvía­eldi sé sann­reynd aðferð sam­an­borið við aðrar aðferðir til umræðu og að sú tækni sem þörf sé á hafi verið sann­reynd.

Áskor­anir sem snúa að sjó­kvía­eldi voru einnig umfjöll­un­ar­efni skýrsl­unnar og er þá fyrst nefnd stærð grein­ar­innar hér­lendis og umfang virð­is­keðj­unnar í sam­an­burði við aðra mark­aði, en það geti verið hamlandi. Þá hafi lágt hita­stig sjávar áhrif á vaxt­ar­hraða í eldi og almennt sé skil­virkni, eins og staðan er í dag, í fram­leiðslu þ.a.l. lág. Að auki er tekið fram að reglu­verk og stjórn­kerfið hafi ekki náð að fylgja vexti grein­ar­innar. Áskor­anir tengdar sjúk­dómum og laxa­lús eru lík­legri sé þessi fram­leiðslu­að­ferð nýtt frekar en aðrar þekktar aðferðir við ræktun á laxi, auk þess sé hætta á slysa­slepp­ingum sem geta valdið erfða­blöndun við villta stofna ásamt smiti sjúk­dóma þeirra á milli.

Landeldi

Á Íslandi er hreinn jarð­sjór við gott hita­stig aðgengi­legur og end­ur­nýj­an­leg orka fáan­leg á góðum kjörum. Lítil áhætta er á umhverf­is­á­hrifum tengdum smitum eða slysa­slepp­ingum. Mögu­leikar til að velja stað­setn­ingu fram­leiðslu eru meiri og því mögu­legt að koma henni fyrir nær mörk­uðum og þannig draga úr flutn­ings­tíma sem er sér­stak­lega mik­il­vægt í við­skiptum með ferskvöru. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að sú stýr­ing á umhverfi sem aðferðir við land­eldi bjóða upp á gætu aukið vaxt­ar­hraða ásamt því að bæta heilsu fiska en þó er tekið fram að það sé ósann­reynt. Að lokum verða til tæki­færi til að skapa verð­mæti úr efni sem tap­ast við aðrar fram­leiðslu­að­ferðir í opnum kerfum, t.d. úrgang fisks­ins sem mögu­lega gæti hentað vel til áburð­ar­fram­leiðslu.

Áskor­anir tengdar land­eldi liggja í upp­hafi við meiri kostnað við upp­bygg­ingu. Sú tækni sem nauð­syn­leg er til fram­leiðsl­unnar er ósann­reynd á þeim stóra skala sem áætl­aður er hér­lendis og því fjár­fest­ing­ar­á­hætta sem gæti tekið langan tíma að skila árangri. Þá séu til dæmi um tækni­legar áskor­anir t.d. bil­anir í bún­aði sem gætu leitt til affalla ásamt mögu­legum áskor­unum tengdum vatns­notkun, síun á frá­veitu­vatni og úrgangs­söfnun.

Það er vissu­lega í mörg horn að líta þegar kemur að fisk­eldi á Íslandi í dag og klárt mál að fólk mun halda áfram að berj­ast fram í rauðan dauð­ann fyrir sinn mál­stað.

Umdeild sam­starf HSÍ við Arnarlax inn­siglað með handa­bandi –

Pistill þessi birt­ist í nýju Sjó­ara­blaði sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Ámundi Loftsson segir hreinlæti sundlaugagesta hafa versnað og kallar eftir auknu eftirliti og skýrari reglum á sundstöðum.
Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum