Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Segir Þórdísi engan áhuga hafa á þjóðarmorðinu á Gaza: „Við erum stödd í hruni siðmenningarinnar“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir.

Sólveig Anna Jóns­dóttir skýtur bylm­ings­fast á utan­rík­is­ráð­herra Íslands í nýrri Facebook-færslu og segir hann hafa „engan áhuga á þeim börnum, konum og mönnum sem að myrt eru“ á Gaza um þessar mundir.

Verka­lýðs­for­ing­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir talar um grein eftir Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra, sem birt­ist í helg­ar­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins. Skýtur hún fast á Þórdísi vegna þess að hún minn­ist ekki einu orði á þján­ingu Gazabúa: „Í helg­ar­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins er grein eftir utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur. Minnist hún á þján­ingar fólks­ins á Gaza sem að ísra­elski her­inn murkar lífið úr? Nei, það gerir hún svo sann­ar­lega ekki. Hún hefur engan áhuga á þeim börnum, konum og mönnum sem að myrt eru þar. Hún hvorki sér þau né heyrir. Enda vinnur hún við að senda þau skila­boð til Band­arikj­anna nótt sem nýtan dag að Ísland hafi ekki sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu, sé aðeins leppur banda­rískra stjórn­valda. Ekkert annað skiptir máli.“

Sólveig lét þessa sorg­legu ljós­mynd fylgja færslu sinni en hún sýnir sært barn á Gaza.

Sólveig telur svo upp allt það sem hún segir að skipti ekki Þórdísi máli: „Þjóð­ar­morð framið á fólki sem hefur enga unda­komu­leið, enda­lausar fregnir af myrtum börnum, börn að svelta í hel, börn að deyja vegna þess að sprengjur fram­leiddar í Banda­ríkj­unum og Þýska­landi hafa sprengt gat á höfuð þeirra og ekk­ert er hægt að gera vegna þess að ísra­elski her­inn hefur sprengt næstum alla spít­ala og þeir sem eftir standa geta ekki starfað vegna þess að ísra­elsk stjórn­völd, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna og sam­einaðra evr­ópskara valda­sjúkra sið­vill­inga, koma í veg fyrir að hægt sé að koma sjúkra­gögnum inn á Gaza;

ekk­ert af þessu skiptir Þórdísi Kolbrúnu neinu máli. Utan­rík­is­ráð­herra Íslands lætur ein­fald­lega eins og þetta sé ekki að eiga sér stað.“

Að lokum segir verka­lýðs­for­ing­inn að ástandið sem fólk sé að upp­lifa nú sé sjúkt og að nú sé fólk statt í „hruni sið­menn­ing­ar­innar“.

„Ástandið sem að við upp­lifum er svo sjúkt að það er varla hægt að koma að því orðum. Fólki er slátrað í beinni útsend­ingu á hverjum degi mán­uðum saman. Og ekk­ert er gert til að stöðva glæp­inn. Þvert á móti er allt gert til að hægt sé að halda honum áfram.Við erum stödd í hruni sið­menn­ing­ar­innar. Og valda­stétt okkar tekur mark­vissan þátt í því að sjá til að sið­menn­ingin hrynji sem hrað­ast og með sem skelfi­leg­ustum afleið­ingum. Allt fyrir Ameríku og sad­is­mann sem að hún hefur breitt út um heim­inn, sad­is­mann sem að nú ræður algjörum ríkjum í Ísrael. Niður með sið­menn­ing­una, upp með sad­is­mann er slag­orð vorra daga. Hræði­legt er að upp­lifa það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum