Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Sæmi Rokk er fallinn frá

Leik­ar­inn, dans­ar­inn, líf­vörð­ur­inn og fyrr­ver­andi lög­reglu­mað­ur­inn Sæmi Rokk Pálsson lést í gær­morgun, níræður að aldri. Tón­list­ar­mað­ur­inn Val­garður Guð­jóns­son minn­ist hans í ein­lægri færslu á Facebook þar sem hann segir Sæma hafa verið ein­stakan mann sem hafi haft jákvæðni, hlý­hug og virð­ingu fyrir öllu fólki að leið­ar­ljósi.

Val­garður segir Sæma hafa verið þekktan fyrir störf sín sem lög­reglu­maður og þá nálgun að leysa vanda­mál án átaka. Hann hafi jafn­vel mætt klukku­tíma fyrr til vinnu til að fylgj­ast með börnum á leið í skóla.

„Í lög­reglu­skól­anum var lengi nefnt að í erf­iðum aðstæðum væri gott að hugsa: Hvað myndi Sæmi gera?“ skrifar Val­garður.

Hann segir þó að Sæmi hafi verið miklu meira en góður lög­reglu­maður. Vinátta hans og hlý­hugur hafi verið ein­stök og hann hafi komið fram við alla af sömu virð­ingu, óháð því hverjir þeir voru.

Val­garður rifjar meðal ann­ars upp að Sæmi hafi hitt fólk á borð við Bobby Fischer og Muhammad Ali, en einnig hann sjálfan þegar hann var aðeins fjórtán ára. Enginn hafi fengið sér­staka með­ferð eða verið met­inn eftir stöðu sinni.

„En hann var svo miklu meira en það.. það geisl­aði af honum vin­átta og hlý­hugur - hvort sem hann var að hitta Bobby Fischer eða Muhammad Ali eða mig fjórtán ára. Hann fór aldrei í mann­greinar­át­lit, öllum var sýnd virð­ing og hlý­hugur,“ skrifar Val­garður.

Tengsl Valgarðs og Sæma voru einnig per­sónu­leg. Sæmi og Magnús, tengda­faðir Valgarðs, voru tví­bura­bræður og Val­garður segir það hafa verið mikið lán að kynn­ast þeim báðum.

Eftir and­lát Magnúsar hafi sam­band Sæma við börn Valgarðs og síðar barna­börn verið ein­stakt, að því er fram kemur í færslu Valgarðs.

Í lok færsl­unnar sendir Val­garður fjöl­skyldu Sæma inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Sæmi Rokk fædd­ist 31. júlí 1936 og ólst upp í Reykja­vík. Hann var skýrður Sæmundur en árið 2017 fékk hann því í gegn að hann mætti heita Sæmi og ári síðar fékk hann að heita Rokk en á árum áður gerði hann garð­inn frægan sem dans­ari og vann meðal ann­ars tit­il­inn Rokk­meist­arar Reykja­víkur ásamt dans­fé­laga sínum Lóu.

Eig­in­kona Sæma var Ásgerður Ásgeirs­dóttir en hún lést árið 2022. Saman áttu þau fjögur börn. Þá áttu þau fjöl­mörg barna­börn og barna­barna­börn.

Vinátta Sæma við Banda­ríska skák­meist­ar­ann Bobby Fisher var fræg en Sæmi var sér­stakur líf­vörður Fishers er hann atti kappi við heims­meist­ar­ann Boris Spaskíj í „ein­vígi ald­ar­innar“ árið 1972 í Reykja­vík. Þá vakti Sæmi einnig verð­skuld­aða athygli sem Óliver Twist í hinni epísku tón­list­ar­mynd Stuð­manna, Með allt á hreinu.

Hér fyrir neðan má lesa hina fal­legu Facebook-færslu Valgarðs Guð­jóns­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Minning

Minning

Arin­björn Jóhanns­son er fall­inn frá

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Minning

Mörður Árnason er fall­inn frá

Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn