Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Kallar fólk í valdastöðum til ábyrgðar: „Grimmd íslenska ríkisins er eitthvað sem ég skil ekki“

Hryggðarmynd.
Hryggð­ar­mynd. Mynd: Valur Grettisson – RÚV

Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta kallar yfir­völd til ábyrgðar gagn­vart níger­ísku kon­unum þremur sem neyddar voru úr landi á mánu­dag­inn var. Segir hún sög­una „sem verður að segja“.

„Sagan sem verður að segja:

Það er komin vika síðan Blessing, Mary og Esther voru hand­teknar eins og glæpa­menn hent í fang­elsi að Hólms­heiði, neitað um heim­sóknir (jafn­vel presta og sál­fræð­inga) og síðan neyddar úr landi ásamt öðrum manni frá Nígeríu á mánu­deg­inum. Þær eru að flýja man­sal (skipu­lagðar nauðg­anir er reyndar rétt­nefni) sem þær voru hnepptar í árum saman. Það er þeirra glæpur.“ Þannig hefst eldræða Drífa Snædal sem hún birti í Facebook-færslu í dag.

Drífa heldur áfram:

„Þær voru búnar að vera hér í mörg ár, stunda íslensku­nám, eign­ast vini og reyna þrátt fyrir óör­ugga stöðu að vinna úr röð áfalla. Blessing var veik, þurfti á blóð­gjöf að halda og utan­um­haldi síð­ustu vikur, fyrir því var lækn­is­vott­orð frá Land­spít­al­anum.“

Þá segir hún frá erf­ið­leikum sem beið kvenn­anna þegar þær lentu á flug­vell­inum á Lagos, alls­lausar og hræddar:

„Hópur Íslend­inga sem er ekki sama um þær hafa síðan reynt að afla upp­lýs­inga og vera þeim til aðstoðar. Það er nefn­in­lega þannig að þær voru skildar eftir á flug­vell­inum í Lagos, án skil­ríkja, án pen­inga og án bjarg­ráða. Þannig förum við með mansals­þolendur og þetta þarf þjóðin að vita. Þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir fengum við ekki að vita hvert þær yrðu sendar eða hvenær þær myndu lenda fyrr en um tveim tímum fyrir lend­ingu í Nígeríu. Við áttum því erfitt með að finna ein­hvern til að taka á móti þeim þó það hafi verið reynt.

Eftir mikil og flókin sam­skipti var hægt að panta fyrir þær gisti­að­stöðu í Lagos. Þær eru hræddar, ótt­ast um öryggi sitt, svangar og í áfalli. Nú reynum við af öllum mætti að finna handa þeim athvarf í gegnum alþjóð­legt net kvenna sem berj­ast gegn ofbeldi. Við vitum ekki hvort það gangi en erum á þess­ari stundu nokkuð von­góð. Næstu dagar skera úr um það.“

Því næst seg­ist Drífa ekki skilja grimmd íslenskra yfir­valda gagn­vart kon­unum.

„Það er nefn­in­lega ekki þannig að þegar við hendum fólki úr landi eins og ein­hverju rusli að þar með sé sagan búin. Framkoma okkar hefur afleið­ingar þó við fréttum ekki endi­lega af því. Grimmd íslenska rík­is­ins gagn­vart þessum konum er eitt­hvað sem ég á erfitt með að skilja. Ekki nóg með að koma fram við þær eins og glæpa­menn heldur virð­ist ekk­ert hafa verið gert til að tryggja öryggi þeirra, ekki svo mikið sem haft sam­band við hjálp­ar­sam­tök þarna úti.“

Drífa segir að þetta sé mann­gerður vandi og kallar fólk til ábyrgðar.

„Stjórn­mála­fólki þykir þetta frekar miður og jafn­vel sárt, en þetta er mann­gerður vandi og ég kalla fólk í valda­stöðum til ábyrgðar. Fólk sem hefur sam­þykkt meiri hörku, neitað mansals­þolendum um skjól og fólk sem fram­kvæmir hörk­una án þess að blikna.

Á sama tíma fylgj­umst við með for­seta­fra­bjóð­endum ræða mann­rétt­indi, lýð­ræði og umburða­lyndi. Það er svo mik­il­vægt. Enginn þeirra hefur for­dæmt þessar aðgerðir. Þetta er eins og að búa í hlið­ar­veru­leika við grimmd­ina.“

Að lokum fer Drífa fram á að mál kvenn­ann falli ekki í gleymsku hjá þjóð­inni.

„Ég fer fram á að mál Esther, Mary og Blessing falli ekki í gleymsku, ég fer fram á að við aðstoðum þær og reynum að draga úr skað­anum og ég fer fram á að fólk í valda­stöðum geti ekki bara hrist þetta af sér eins og ein­hver óþæg­indi heldur verður gert ábyrgt fyrir grimmd­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum