Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Amnesty fordæmir brottvísanir mansalsþolenda: „Harmar ómann­úð­lega meðferð stjórn­valda“

Konurnar þrjár frá Nígeríu.
Konurnar þrjár frá Nígeríu.

Íslands­deild Amnesty Internati­onal for­dæmir brott­vís­anir íslenskra stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem eru mansals­þo­lendur. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá deild­inni.

Á dög­unum var þremur konum frá Nígeríu vísað frá Íslandi og þær sendar aftur til Nígeríu, ásamt karl­manni sem einnig fékk synjun um hæli hér á landi. Konurnar segj­ast allar þolendur mansals en ein þeirra, Blessing Newton er með sex æxli í legi og þarf á bráða­þjón­ustu að halda.

Í yfir­lýs­ingu Íslands­deildar Amnesty International segir meðal ann­ars:

„Deildin harmar þá ómann­úð­legu og van­virð­andi með­ferð stjórn­valda á þeim við­kvæma og sér­staka hópi umsækj­enda sem sviptur var frelsi sínu og þving­aður var úr landi aðfara­nótt 14. maí sl.

Íslands­deildin hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­anir við­kvæmra hópa og harð­neskju­lega stefnu íslenskra stjórn­valda í málum ein­stak­linga í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi.“

Þá er vísað í skýrslu Evr­ópu­ráðs­ins um kyn­bundið umsóknir um alþjóð­lega vernd en þar kemur fram að ofsóknir á hendur konum og stúlkum séu oft á tíðum öðru­vísi en ofsóknir sem karl­menn verða fyrir. Þar segir að konur og stúlkur eigi frekar á hættu að verða fyrir kyn­bundnum ofsóknum og ofbeldi á borð við kyn­ferð­is­of­beldi, þvinguð hjóna­bönd og man­sal. Segir enn­fremur að þing Evr­ópu­ráðs­ins kalli eftir því að kyn­bundið ofbeld, sem og kyn­bundnar ofsóknir verði metnar á við­eig­andi hátt við með­ferð hæl­is­um­sókna í aðild­ar­rikjum þess.

„Þá er Ísland einnig aðili að Pal­er­mó­samn­ingnum auk bók­ana við hann, þar á meðal bók­unar til að koma í veg fyrir, berj­ast gegn og refsa fyrir verslun með fólk, einkum konur og börn. Samkvæmt Istan­búl­samn­ingnum skulu aðild­ar­ríki gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir, með laga­setn­ingu eða öðrum hætti, til að virða þá megin­reglu í sam­ræmi við skyldur þjóða­réttar að vísa hælis­leit­anda ekki aftur þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu.“

Að lokum hvetur Íslands­deildin íslensk yfir­völd til að endu­skoða „harð­neskju­lega stefnu sína“:

„

Deildin áréttar jafn­framt mikil­vægi þess að tekið sé sér­stakt til­lit til stöðu og þarfa kvenna og stúlkna við mat á umsóknum um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Kyn og kyn­gervi skiptir miklu máli þegar fjallað er um mál­efni flótta­fólks. Það er stað­reynd að staða kvenna í neyð og á flótta er sér­stak­lega við­kvæm þar sem þær standa frammi fyrir fjöl­þættri mis­munun, svo sem kyn­bund­inni mis­munun og kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Með vísan til fram­an­greindra við­miða, umfjöll­unar um aðstæður mansals­þo­lenda og ein­stak­lings­bund­inna aðstæðna umsækj­enda hvetur Íslands­deild Amnesty Internati­onal íslensk stjórn­völd til að endur­skoða harð­neskju­lega stefnu sína varð­andi brott­vís­anir þeirra umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á Íslandi sem eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, sbr. mansals­fórn­ar­lömb.“

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum