Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Einmana simpansinn Yoko fær frelsi

Alinn upp af kólombískum eit­ur­lyfja­bar­óni.

Simpansinn Yoko
Simpans­inn Yoko Yoko var fluttur til Brasilíu þar sem hann mun búa með sínum líkum. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Simpans­inn Yoko, sem var rænt frá fjöl­skyldu sinni sem simpansaungi, alinn upp af eit­ur­lyfja­bar­óni, og síðan sendur í dýra­garð, hefur lifað síð­ustu tvö ár sín í ein­angrun. Hann hefur nú fengið frelsi.

Hann missti síð­asta vin sinn, Chita, árið 2023 þegar hún slapp úr dýra­garð­inum ásamt Pancho, erkió­vini Yoko en þau voru bæði skotin af her­mönnum af örygg­is­á­stæðum.

Á sunnu­dag­inn var hinn 38 ára gamli Yoko fluttur til Brasilíu þar sem hann fær loks­ins að vera með öðrum simpönsum í athvarfi þar.

En mun hann ná að eign­ast vini?

Yoko er að mörgu leyti mann­legri en simpansi, segja umönn­un­ar­að­ilar hans. Hann notar hníf og gaffal, spilar bolta­leiki, horfir á sjón­varp og teiknar með litum á pappír og striga.

Hann er sér­stak­lega hrif­inn af sæl­gæti og kjúklingi.

Vegna þess að ræn­ingi hans, eit­ur­lyfja­bar­ónn sem ekki hefur verið nafn­greindur, gaf honum óhollan mat, hefur Yoko aðeins fjórar tennur eftir af þeim 32 sem simpansar eiga að hafa.

Á tíunda ára­tugnum var algengt að fíkni­efna­bar­ónar á borð við Pablo Escobar ættu fram­andi dýr sem gælu­dýr, þar á meðal tígris­dýr, ljón og jafn­vel flóð­hesta og gíraffa.

Yoko var kennt að reykja og klæddur í föt, sem olli húð­sjúk­dómi og því að hann missti hluta af feld­inum.

„Yoko ... er mjög mann­legur simpansi, hann er mjög tamin ... Hann hegðar sér í raun­inni eins og barn,“ segir dýra­lækn­ir­inn Javier Guerrero.

Guerrero fylgdi Yoko á fyrstu hluta ferðar hans, sem kölluð var „Operation Noah’s Ark“, frá Ukumari-dýra­garð­inum í borg­inni Pereira í Kólumbíu.

Bros er ekki bros

Sér­fræð­ingar ótt­ast að Yoko eigi erfitt með að aðlag­ast lífi með öðrum simpönsum í Sorocaba í brasil­íska rík­inu São Paulo, sem er stærsta athvarf stórapa í Suður-Ameríku.

Þar eru yfir 40 simpansar, en dýra­læknar og hegð­un­ar­sér­fræð­ingar hafa áhyggjur af því að Yoko passi ekki inn í hóp­inn.

„Yoko ... er ekki simpansi í eig­in­legri merk­ingu... hann sam­samar sig mun meira við menn en aðra simpansa,“ segir Cesar Gomez, þjálf­un­ar­stjóri Ukumari.

„Til dæmis, bros er eitt­hvað jákvætt fyrir menn, en fyrir simpansa er það nei­kvætt merki, og Yoko skilur ekki svona sam­skipti,“ bætti hann við.

Yoko var bjargað úr búri eig­anda síns af lög­reglu árið 2017 eftir óljósa dvöl þar og var síðan fluttur á athvarf sem flæddi yfir áður en hann kom í dýra­garð­inn í Pereira.

„Honum var neitað um að vera simpansi og alast upp með fjöl­skyldu sinni,“ sagði Alej­andra Marin, aðstoð­ar­dýra­læknir, við AFP.

Í nátt­úr­unni í Afríku verða simpansar um 40–45 ára gamlir, en þeir geta lifað allt að 60 ár í góðri umönnun í haldi manna.

Simpansar eru á lista Alþjóð­legu nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna (IUCN) yfir teg­undir í útrým­ing­ar­hættu.

Með flutn­ingi Yoko á sunnu­dag­inn varð Kólumbía fyrsta landið í heim­inum til að losa sig við alla fang­aða stórapa, sam­kvæmt sam­tök­unum Great Ape Project.

„Stórapar eru simpansar, órangút­anar, gór­illur og bonobo-simpansar, engin þess­ara teg­unda á nátt­úru­legt heim­ili í land­inu okkar og þær hafa enga ástæðu til að vera hér,“ sagði Andrea Padilla, kól­umbískur öld­unga­deild­ar­þing­maður fyrir Græna banda­lagið, sem hafði umsjón með flutn­ingi Yoko.

„Frá unga aldri var Yoko fórn­ar­lamb mansals og ólög­legra við­skipta, færður frá einum eit­ur­lyfja­bar­óni til ann­ars,“ bætti hún við.

Á mánu­dags­morgun til­kynnti Padilla á sam­fé­lags­miðl­inum X að Yoko væri lentur í Brasilíu, „öruggur og heill á húfi og við það að hefja nýtt líf með sínum eigin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram