Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Singapúr er þekkt fyrir strangar reglur um hegðun og umgengni

Strætóstöð í Singapúr
Strætó­stöð í Singapúr Mynd: ROSLAN RAHMAN / AFP

Farþegar almennings­vagna í Singapúr geta átt yfir höfði sér háar sektir fyrir ýmiss konar óæskilega hegðun, þar á meðal að borða um borð eða leggja fæturna á sæti. Nýjar reglur þess efnis voru kynntar af samgöngu­yfirvöldum landsins á mánudag.

Samkvæmt reglunum getur sekt fyrir að leggja fæturna á sæti numið allt að 400 Bandaríkja­dölum en það er tæplega 50 þúsund íslenskar krónmur. Mun þyngri viðurlög geta fylgt því að óhreinka strætis­vagn eða skapa hættu fyrir aðra farþega, en fyrir slík brot getur sektin farið allt upp í 3.900 Bandaríkja­dali, sem jafn­gildir 475 þúsund í íslenskum krónum.

Í leið­beiningum yfirvalda kemur fram að alvarleg óhreinkun geti meðal annars falist í því að æla, kasta af sér vatni eða hrækja í vagninum. Einnig getur það fallið undir reglurnar að óhreinka sæti, gólf eða handrið með líkams­vökvum, mat, leðju eða fitu.

Singapúr er þekkt fyrir strangar reglur um hegðun og umgengni á almanna­færi og hefur fyrir vikið fengið viðurnefnið „Fine City“. Það vísar bæði til þess hversu snyrtileg borgin þykir og þess mikla fjölda sekta sem hægt er að fá fyrir ýmis brot.

Nýju reglurnar færa reglur í strætis­vögnum nær þeim sem þegar gilda í neðan­jarðarlesta­kerfi Singapúr. Að sögn samgöngu­yfirvalda er markmiðið að skapa öruggara, tillits­samara og þægilegra umhverfi í almennings­samgöngum.

Yfirvöld taka þó fram að gæta eigi sanngirni við framkvæmd reglnanna. Sérstakt tillit verði tekið til aðstæðna farþega sem glíma við líkamleg eða andleg veikindi.

Singapúr hefur lengi beitt ströngum reglum til að halda almennings­rýmum hreinum. Þekkt dæmi er bann við sölu tyggigúmmís sem tók gildi árið 1992.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu