Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Victoria svaf óvart hjá bróður sínum

„Þetta hefur gjör­breytt minni sýn á alla mína mennta­skóla­göngu.“

Victoria Hill
Victoria Hill Hill komst að því að hún á 23 hálf­systk­ini.

Victoria Hill komst að því að fyrr­ver­andi kær­asti hennar væri hálf­bróðir hennar eftir ára­tuga leynd­ar­mál.

Alla ævi hafði Victoria Hill fundið á sér að eitt­hvað var ekki alveg eins og það ætti að vera í fjöl­skyldu hennar. Svo fékk hún óvænt texta­skila­boð sem stað­festu hennar versta ótta.

Tveggja barna móð­irin Victoria hafði lengi velt því fyrir sér hvers vegna hún líkt­ist föður sínum alls ekki neitt og hafði meira að segja oft grín­ast með að hún hlyti að vera dóttir póst­manns­ins. Áhyggjur hennar juk­ust þegar hún greind­ist með heilsu­far­s­vanda­mál sem hvor­ugt for­eldri hennar hafði nokkru sinni sýnt ein­kenni af.

Í leit sinni að svörum tók hin 40 ára gamla Victoria erfða­próf heima hjá sér, sem sýndi að hún átti hvorki meira né minna en 23 hálf­systk­ini. Þegar hún gróf dýpra komst hún að því að líf­fræði­legur faðir hennar var í raun frjó­sem­is­læknir móður hennar, Dr. Burton Caldwell, sem hafði blekkt fjölda kvenna og notað eigið sæði án þeirra sam­þykkis.

En annað áfall var í vændum fyrir Victoriu. Eftir að hún sagði sínum nán­ustu frá upp­götvun sinni ákvað gam­all kær­asti hennar úr mennta­skóla, sem var enn vinur hennar, að taka líka erfða­próf þar sem hann hafði sjálfur spurn­ingar sem brunnu á honum. Þegar nið­ur­stöð­urnar komu sendi hann henni skila­boð með skelfi­legri stað­reynd: „Þú ert systir mín.“

Í gær kom Victoria fram í þætt­inum This Morning í gegnum fjar­fund­ar­búnað, þar sem hún ræddi við þátta­stjórn­end­una Cat Deeley og Ben Shephard um hvernig líf hennar breytt­ist á einu augna­bliki.

„Við komumst að þessu þegar við vorum á end­ur­fundi mennta­skól­ans okkar. Við byrj­uðum að deila upp­lýs­ingum með nánum vinum, og svo í kvöld­verð­inum var ég að segja frá þessu þegar gam­all kær­asti minn leit út fyrir að vera að púsla ein­hverju saman í hausnum á sér,“ sagði hún.

„Móðir hans hafði nýlega sagt honum að ástæðan fyrir því að hann og bróðir hans, sem er einnig góður vinur minn, höfðu fæðst væri sú að móðir þeirra fór í frjó­sem­is­með­ferð. Við gerðum bara ráð fyrir að hún hefði farið á sama stað og móðir mín.“

Þegar hún tjáði sig um ótta sinn við frek­ari slæm tíð­indi bætti hún við: „Þetta er eins og högg eftir högg. Við vitum enn ekki hvað gæti komið í ljós næst.“

Í sam­tali við CNN sagði hún að hún hefði orðið fyrir áfalli þegar hún átt­aði sig á því að mað­ur­inn sem hún hefði hæg­lega getað gifst var í raun hálf­bróðir hennar.

„Nú horfi ég á myndir af fólki og hugsa: „Ef hann var systk­ini mitt, þá gæti hver sem er verið systk­ini mitt.“ Þetta hefur gjör­breytt minni sýn á alla mína mennta­skóla­göngu. Það skemmir alla minn­ing­una.“

Hún við­ur­kenndi einnig að hún hafi verið ást­fangin: „Ég ætla bara að segja það beint út: Ég var ást­fangin af hálf­bróður mínum.“

Dr. Caldwell, sem lést nýlega, hafði hjálpað móður Victoriu að verða þunguð með því að nota sæði sem hann sagði koma frá óþekktum lækna­nema. En í raun var hann að nota sitt eigið.

Nú vinnur Victoria að því að berj­ast fyrir laga­breyt­ingum í frjó­sem­is­með­ferðum og deilir sögu sinni til að vekja athygli á þessu alvar­lega broti.

Í yfir­lýs­ingu frá Yale New Haven Health sagði að engar vís­bend­ingar væru um að heil­brigð­is­stofn­unin hefði haft aðkomu að brotum Dr. Caldwell. Lög­fræð­ingar stofn­un­ar­innar tóku fram að svikin hafi átt sér stað í einka­rekstri lækn­is­ins og að Yale hefði ekki haft vit­neskju um málið.

Mirror sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram