Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

„Ekki vera fáviti“

Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunnarsson
Tón­list­ar­menn­irnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunn­ars­son Mynd: Samsett

Tón­list­ar­menn­irnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunn­ars­son tók­ust harka­lega á á Facebook í kjöl­far gagn­rýni Bubba á umsvif breska auð­jöf­urs­ins Jim Ratcliffe á Íslandi.

Bubbi deildi pistli Herdísar Kjerulf Þor­geirs­dóttur um Ratcliffe og lét sjálfur þung orð falla. Hann gagn­rýndi meðal ann­ars jarða­kaup og ítök auð­jöf­urs­ins í íslenskum lax­veiðiám og sagði stöð­una vera komna út fyrir öll mörk.

„Allt við þetta lið er ógeð­fellt,“ skrif­aði Bubbi og hélt því fram að íslenskum veiði­mönnum væri í auknum mæli haldið frá ánum. Sagði hann þær vera orðnar að „leik­föngum fyrir hann og hirð­ina í kringum hann“.

Bubbi dró jafn­framt í efa að nátt­úru­vernd væri raun­veru­leg ástæða umsvif­anna og sagði það vera fyr­ir­slátt. Hann kall­aði eftir því að stjórn­völd gripu inn í þró­un­ina.

Í upp­haf­legri færslu sagði Bubbi jafn­framt að Ratcliffe hefði verið að reyna að ná yfir­ráðum yfir Laxá í Aðaldal. Sú full­yrð­ing varð kveikjan að orða­skiptum hans og Pálma.

Pálmi krafði Bubba svara

Pálmi spurði Bubba hvort Ratcliffe hefði í raun reynt að kaupa ána ásamt jörðum og öðru sem henni tengd­ist. Bubbi svar­aði ekki spurn­ing­unni beint í fyrstu heldur sagði við Pálma að hann væri „of tengdur honum“.

Pálmi brást við og krafð­ist skýr­inga.

„Hvað áttu við? Og get­urðu ekki svarað spurn­ing­unni með öðrum hætti en aðdrótt­unum,“ skrif­aði Pálmi.

Bubbi spurði þá hvort Pálmi væri ekki að vinna fyrir Ratcliffe og Gísla og sæi um neðra svæðið við Hofsá. Hann bætti við að ef svo væri ekki myndi hann taka orð sín til baka.

Pálmi hafn­aði því alfarið.

„Ég er ekki að vinna fyrir einn eða neinn nema sjálfan mig. Er með sil­unga­svæði Hofsár á leigu ásamt vinum mínum,“ skrif­aði Pálmi og krafði Bubba aftur svara um Laxá.

Bubbi leið­rétti þá fyrri ummæli sín. Sagði hann orða­lagið hafa verið klaufa­legt og að átt hefði verið við að menn hefðu fal­ast eftir því að taka Laxá á leigu en ekki kaupa hana.

Orða­skipt­unum lauk þó ekki þar. Bubbi sagði að ef Pálmi leigði neðra svæðið af Ratcliffe væri hann tengdur honum. Pálmi svar­aði þá stutt og ákveðið og sagði Bubba „ekki vera fáviti“.

Deilan varð enn per­sónu­legri undir lokin. Bubbi sagð­ist ekki vera að „hossa“ Ratcliffe en Pálmi svar­aði að Bubbi hoss­aði engum nema eitt­hvað væri í því fyrir hann. Sagðist Pálmi að lokum ekki nenna frek­ari orða­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Fólk

Fólk

Hjátrúin um föstu­dag­inn þrett­ánda hefur raun­veru­leg áhrif

Margir fresta brúðkaupum og ferðum vegna ótta við dagsetninguna, þótt rannsóknir sýni ekki að hún sé hættulegri en aðrir dagar.
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Fólk

Glúmur er rif­beins­brot­inn

Fólk

Gusu­m­eist­ari og fag­ur­keri taka höndum saman

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?