Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

„Hugsandi fólk hlýtur að spyrja sig hvort ekki hrikti í full­veld­inu“

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands
Jim Ratcliffe Ratcliffe á um 1,4% af flat­ar­máli Íslands Mynd: RUDY CAREZZEVOLI / GETTY IMAGES VIA AFP

Herdís Kjerulf Þor­geirs­dóttir lög­maður og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi gagn­rýnir mikil land­eignar­í­tök breska auð­kýf­ings­ins Jim Ratcliffe á Íslandi og spyr hvort þau geti ógnað full­veldi lands­ins.

Í Facebook-færslu sinni bendir Herdís á að Ratcliffe, sem er einn auð­ug­asti maður heims, eigi um 1.500 fer­kíló­metra lands á Íslandi. Fyr­ir­tæki hans, Six Rivers, fer jafn­framt með víð­tæk rétt­indi og umráð tengd lax­veiði og nátt­úru­vernd á Norð­aust­ur­landi.

Meðal þeirra 30 jarða sem Ratcliffe á eru Gríms­staðir á Fjöllum. Hann hefur einnig umráð yfir fimm þekktum lax­veiðiám á Norð­aust­ur­landi: Selá, Hofsá, Hafra­lónsá, Mið­fjarð­ará og Vest­ur­dalsá.

Herdís telur ástæðu til að ræða hvaða áhrif slík eign­ar­hald og ítök geti haft á sam­fé­lagið og stjórn­skipan lands­ins. Hún áætlar að ef aðeins 10–15 pró­sent flat­ar­máls Norð­aust­ur­kjör­dæmis séu byggi­legt lág­lendi gæti Ratcliffe átt hátt í helm­ing þess lands.

„Hugsandi fólk hlýtur að spyrja sig hvort ekki hrikti í full­veld­inu þegar lung­inn af heilu kjör­dæmi er kom­inn í eigu erlends auð­kýf­ings (eða félaga í hans eigu) því ef gert er ráð fyrir að um 10–15% af flat­ar­máli kjör­dæm­is­ins sé raun­veru­legt lág­lendi, þar sem hægt er að búa, má áætla að Ratcliffe eigi hátt í helm­ing af byggi­legu landi í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hann er fjórði stærsti land­eig­andi á Íslandi, á eftir rík­is­sjóði, sveit­ar­fé­lögum og þjóð­kirkj­unni.“

Líkir stöðunni við Sturlungaöld

Herdís líkir stöðu Ratcliffe við valda­mikla goða á Sturl­unga­öld, þegar fáar valda­ættir söfn­uðu undir sig stórum land­svæðum og höfðu mikil áhrif á líf fólks.

Hún vísar í verk Sigurðar Nordals, Íslenska menn­ingu, þar sem segir að völd goð­anna hafi verið „for­ráð manna en ekki lands­svæða“.

Í færsl­unni gagn­rýnir Herdís jafn­framt heim­sókn þing­manna til Six Rivers, áður en þeir fóru í næt­ur­sund eins og frægt er orðið. Ratcliffe tók ekki sjálfur á móti hópnum, heldur íslenskur full­trúi hans.

Hún spyr hvort þing­menn­irnir hafi velt fyrir sér stöðu lands­ins sem full­valda ríkis og áhrifum þess að erlendur auð­kýf­ingur eigi stór land­svæði og hafi víð­tæk við­skipta­hags­muni í kjör­dæm­inu.

Herdís varar við því að auð­legð og stað­bundin áhrif geti skapað mögu­leika á að hafa áhrif á stjórn­mál og ákvarð­anir sem snerta hags­muni almenn­ings.

„Hugsuðu þeir um landið sem yfir­ráða­svæði íslensks rík­is­valds? Hugsuðu þeir um stjórn­skipun Íslands og fólkið sem til­heyrir rík­inu?“ spyr hún.

Hún segir að lokum athygl­is­vert að þessar spurn­ingar virð­ist ekki hafa vakið mikla umræðu meðal þing­manna eða fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi